Aldrei meira af makríl á Íslandsmiðum

Samkvæmt bráða­birgða­nið­ur­stöðum Haf­rann­sókn­ar­stofn­unar er heild­ar­magn mak­ríls meira en nokkru sinni fyrr á Íslands­miðum, eða frá því að athug­anir hófust árið 2009. Hafró greinir frá þessu á vef­svæði sínu í dag en í gær lauk rúm­lega fimm vikna löngum leið­angri Árna Frið­riks­sonar sem hafði það megin mark­mið að meta magn og útbreiðslu mak­ríls umhverfis Íslands og við Grænland. Framundan er frek­ari úrvinnsla á gögnum frá leið­angrinum og munu helstu nið­ur­stöður verða kynntar síðar, segir í frétt Hafró.

„Bráð­birgða­nið­ur­stöður sýna mun meira magn og suð­læg­ari útbreiðslu mak­ríls sunnan við Ísland en und­an­farin ár. Þá var mak­ríll fyrir öllu Vestur- og Aust­ur­landi í svip­uðu magni og fyrri ár, en lít­ils var vart norður af land­inu. Samkvæmt bráða­birgða­nið­ur­stöðum er heild­ar­magn mak­ríls á Íslands­miðum meira en nokkru sinni frá því að athug­an­irnar hófust árið 2009.

Við Grænland var mak­ríl að sjá á stærsta hluta rann­sókna­svæð­is­ins og náði útbreiðsla hans allt suður fyrir Hvarf. Mak­ríll­inn var þó á þessu svæði hnapp­dreifð­ari en fyrri ár og magn hans minna,“ segir í frétt­inni. Alls var mælt á 92 fyr­ir­fram ákveðnum rann­sókn­ar­stöðvum auk mæl­inga á umhverf­is­þáttum.

Fram kemur að síld fannst nokkuð víða á rann­sókn­ar­svæð­inu, norsk-íslensk síld austur og norður af Íslandi og íslensk sum­ar­gots­síld fyrir sunnan og vestan. „Norður af Íslandi var vart við tölu­vert magn norsk-íslenskrar síldar allt vestur að Horni, en svo vest­ar­lega hefur síldin lík­lega ekki gengið síðan á 7. ára­tugi síð­ustu aldar. Skörun á útbreiðslu síldar og mak­ríls var mest austan við land, en einnig tölu­verð á grunn­slóð sunnan og vestan lands þar sem mak­ríll var í bland við íslenska sum­ar­gots­síld. Í þessum leið­angri var minni áhersla lögð á að kanna útbreiðslu kolmunna en mak­ríls og síldar, en hann er að öllu jöfnu að finna á meira dýpi en togað var á.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár