Ráðherra hitti sendiherra Rússlands - Kaupa engan fisk nema í dós

Sigurður Ingi Jóhanns­son, sjáv­ar­út­vegs- og land­bún­að­ar­ráð­herra og sendi­herra Rúss­lands á Íslandi, Anton V. Vasiliev rædd­ust við á óform­legum fundi í dag. Farið var yfir stöð­una sem uppi er í sam­skiptum ríkj­anna, vegna ákvörð­unar Rússa um að setja inn­flutn­ings­bann á íslenska mat­vöru.

Þetta kemur fram í til­kynn­ingu frá atvinnu­vega­ráðu­neyt­inu. Fram kemur að ráð­herra hafi á fund­inum bent á það að bann Rússa væri mun þyngra högg fyrir íslenskt efna­hags­líf, en ann­arra þjóða. Helgist það einkum af því að mikið af sjáv­ar­af­urðum hafi verið flutt út til Rúss­lands á und­an­förnum árum.


„Sendi­herr­ann sagði að ákvörð­unin frá því í morgun, beind­ist ekki sér­stak­lega gegn Íslandi, heldur væru Rússar að svara í sömu mynt fyrir þær aðgerðir sem beitt hefði verið gegn þeim. Aðgerðir sem Rússar telji ólög­legar. Sendi­herr­ann sagð­ist ekki hafa upp­lýs­ingar um hversu víð­tækt inn­flutn­ings­bannið væri, en það væri tíma­bundið og nauð­syn­legt að vinna að sam­eig­in­legri lausn,“ segir í til­kynn­ing­unni.

Ekki hægt að markaðssetja sjávarafurðir

Utan­rík­is­ráðu­neytið sendi sam­tímis frá sér til­kynn­ingu í dag þar sem íslensk stjórn­völd eru sögð harma ákvörðun rúss­neskra yfir­valda að bæta Íslandi á lista yfir lönd sem sæta inn­flutn­ings­banni til Rúss­lands. Samkvæmt upp­lýs­ingum utan­rík­is­ráðu­neyt­is­ins liggur fyrir að íslenskar vörur verði ekki toll­af­greiddar og hætta sé á að vörum verði fargað á landa­mær­unum.


„Þetta eru gríð­ar­leg von­brigði. Við höfum leitað allra leita til að útskýra afstöðu okkar fyrir rúss­neskum stjórn­völdum og þá hags­muni sem undir eru,“ segir Gunnar Bragi Sveins­son utan­rík­is­ráð­herra í til­kynn­ing­unni.


Ljóst er að bannið felur í sér að íslenskum fyr­ir­tækjum verður ekki lengur unnt að mark­aðs­setja sjáv­ar­af­urðir í Rúss­landi auk þess sem bannið tekur til land­bún­að­ar­vara að frá­töldu lamba­kjöti, ærkjöti, hrossa­kjöti og nið­ur­soðnu fisk­meti í dósum.


Ísland mun halda áfram því sam­tali sem ráð­herrar og emb­ætt­is­menn hafa átt við Rússa á síð­ustu vikum til að draga úr áhrifum þess­arar ákvörð­unar.


Ísland, Albanía, Liechtenstein, Svart­fjalla­land og Úkraína bæt­ast nú í hóp þar sem fyrir eru Danmörk, Svíþjóð, Finnland, Þýska­land, Bretland, Írland, Frakk­land, Spánn, Portúgal, Ítalía, Holland, Belgía, Lúx­em­borg, Malta, Grikk­land, Kýpur, Aust­ur­ríki, Pólland, Ung­verja­land, Eistland, Lettland, Litháen,Tékkland, Slóvakía,Slóvenía, Rúmenía, Búlgaría, Króatía, Banda­ríkin, Noregur, Kanada og Ástralía.


*Athuga­semd rit­stjórnar: Í upp­haf­legri frétt sagði í fyr­ir­sögn að Rússar kaupi engan fisk á meðan inn­flutn­ings­bann er í gildi. Það er ekki nákvæmt, því í til­kynn­ing­unni frá utan­rík­is­ráðu­neyt­inu kemur fram að fisk­meti í dósum verður und­an­þegið bann­inu.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár