Bann Rússa er líklegast án undantekninga og tekur gildi strax

Flest bendir til þess að inn­flutn­ings­bann Rússa á mat­vörum frá Íslandi taki gildi strax og sé án und­an­tekn­inga hvað varðar inn­flutn­ing á mak­ríl eða öðrum afurðum. Verið er að kanna hvort bannið gildi um þær vörur sem eru á leið yfir hafið í dag. Þetta virð­ist vera staðan, segir Haukur Þór Hauksson, aðstoð­ar­fram­kvæmda­stjóri Samtaka fyr­ir­tækja í sjáv­ar­út­vegi (SFS), í sam­tali við Kjarnann.

Sendiráð Íslands í Rúss­landi vís­aði fyr­ir­spurnum til utan­rík­is­ráðu­neyt­is­ins þegar Kjarninn hafði sam­band.


Dmitry Medvedev, for­sæt­is­ráð­herra Rúss­lands, til­kynnti í morgun að Ísland hafi verið bætt við á lista yfir lönd þaðan sem bannað er að flytja inn mat­vörur frá. Íslandi hefur þar með verið bætt á lista með Evr­ópu­sam­bands­löndum, Banda­ríkj­unum og Ástralíu en þessi lönd standa saman að við­skipta­þving­unum gagn­vart Rúss­landi vegna átak­anna í Úkraínu.


Enn liggur ekki nákvæm­lega fyrir hversu víð­tækt inn­flutn­ings­bannið er gagn­vart Íslandi. Gunnar Bragi Sveins­son utan­rík­is­ráð­herra, sagði í sam­tali við Kjarnann að ráðu­neyt­inu hafi ekki borist neinar upp­lýs­ingar og væntir upp­lýs­inga um málið síðar í dag.

Mikilvægur markaður

Rússland er stærsti upp­sjáv­ar­fisk­mark­aður íslenskra sjáv­ar­út­flutn­ings­fyr­ir­tækja og áætlar SFS að við eðli­legar aðstæður hefði virði útflutn­ings á sjáv­ar­af­urðum til Rúss­lands numið um 37 millj­örðum króna á þessu ári. Mestu munar um útflutn­ing til Rúss­lands á loðnu og mak­ríl. Áætlað virði útflutn­ings á þessum tveimur fisk­teg­undum er um 23,3 millj­arðar króna árið 2015, miðað við eðli­legar aðstæður. Haukur Þór segir þetta sér­stak­lega baga­legt í ljósi nýlegrar athug­unar Haf­rann­sókn­ar­stofn­unar sem sýndi að aldrei hefur meiri mak­ríll verið í lög­sögu Íslands.


Virði útflutn­ings sjáv­ar­út­vegs­af­urða til Rúss­lands í fyrra nam um 31 millj­arði króna, sam­kvæmt útreikn­ingum SFS. Er það nokkru hærra en tölur Hag­stof­unnar sýna, en SFS gerir ráð fyrir að 40 pró­sent af útfluttum sjáv­ar­af­urðum til Hollands fari áfram til Rúss­lands og 80% af útfluttum sjáv­ar­af­urðum til Litháen.

Taka ekki afstöðu en telja viðskiptabann óvænlegt

„Við höfum sagt að við ætl­umst ekki til að það verði gerðar breyt­ingar á utan­rík­is­stefnu Íslands. Póli­tíkin sér um það. En okkur finnst eðli­legra að málin séu rædd með löngum aðdrag­anda,“ segir Haukur Þór. Það er mat SFS að við­skipta­bönn séu ekki lík­leg til að leysa deilur á borð við Úkra­ínu­deil­una. Auk þess sé um að ræða inn­flutn­ing á mat­vöru sem ekki geti skaðað fólk og sé ætluð almenn­ingi.


Haukur Þór segir það taka langan tíma að finna og byggja upp nýja mark­aði fyrir upp­sjáv­ar­fisk­inn auk þess sem aðrir mark­aðir fyrir fisk­inn í Afríku borgi lægra verð. Það sé ekki létt verk að finna vör­unni nýjan far­veg og taki langan tíma.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár