Gunnar Bragi: Ísland endurskoðar ekki þátttöku í viðskiptaþvingunum

Utan­rík­is­ráðu­neytið hefur ekki fengið neinar upp­lýs­ingar um hversu víð­tækt inn­flutn­ings­bannið gagn­vart Íslandi er en leitað verður eftir upp­lýs­ingum í dag. Þetta segir Gunnar Bragi Sveins­son, utan­rík­is­ráð­herra, í sam­tali við Kjarnann. Hann væntir upp­lýs­inga um málið síðar í dag.

Dmitry Medvedev, for­sæt­is­ráð­herra Rúss­lands, til­kynnti í morgun að Ísland væri á lista yfir lönd þaðan sem bannað er að flytja inn mat­vörur. Íslandi hefur þar með verið bætt á lista með Evr­ópu­sam­bands­löndum, Banda­ríkj­unum og Ástralíu en þessi lönd standa saman að við­skipta­þving­unum gagn­vart Rúss­landi vegna átak­anna í Úkraínu.

Gunnar Bragi segir Ísland ekki ætla að end­ur­skoða þátt­töku í við­skipta­þving­un­ar­að­gerð­unum. „Ég mun ekki leggja til neina end­ur­skoðun á þátt­töku í við­skipta­þving­unum. Það byggir á prinsippi og miklu stærra hags­muna­mati en þetta, í raun­inni, þó hér séu auð­vitað miklir hags­munir,“ segir hann.

Ráðu­neytið hefur átt í miklum sam­skiptum við Rússa eftir að Ísland hóf við­skipta­þving­anir. Gunnar Bragi segir útspil Rússa koma á óvart. „Við höfum átt fín sam­skipti við Rússa og rúss­nesk stjórn­völd. Við höfum stutt þá í ýmsu bæði innan Sam­ein­uðu þjóð­anna og ann­ars staðar, í því sem þeir eru að gera. Sam­skiptin hafa verið mjög góð og í raun­inni kemur þetta á óvart að því leyt­inu til.“

Spurður hvort það hafi ekki verið við­búið að Íslandi yrði bætt í inn­flutn­ings­bannið segir Gunnar Bragi að svo hafi verið en að von­brigðin séu samt mikil. „Það sem við gerum núna er að leita upp­lýs­inga um útfærsl­una á þessu. Það liggur ekki fyrir hver hún verður, hvaða tíma­bil eða dag­setn­ingar eru á bak­við og svo fram­vegis. Þannig að næsta skref er að reyna að fá upp­lýs­ingar um slíkt.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár