Ísland á innflutningsbannlista Rússa

Rússar hafa sett inn­flutn­ings­bann á mat­væli frá Íslandi og fjórum öðrum ríkjum, sam­kvæmt yfir­lýs­ingu frá Dmitry Medvedev, for­sæt­is­ráð­herra Rúss­lands í dag. Íslandi hefur þannig verið bætt á lista Rúss­lands yfir þau lönd sem óhem­ilt er að flytja inn mat­væli frá. Löndin sem bæt­ast við á list­ann, þar sem Evr­ópu­sam­bands­ríkin eru fyrir, eru Albanía, Svart­fjalla­land, Ísland, Liectenstein og Úkraína, sam­kvæmt rúss­neska frétta­miðl­inum Sputnik News auk þess sem frétta­veitur Bloomberg og Reuters greindu frá tíð­ind­unum.

„Fleiri lönd hafa verið sett innan við við­skipta­bannið sem nær yfir Evr­ópu­sam­bandið, Ástralíu, Kanada, Noreg og Banda­ríkin. Þessum löndum er bannað að flytja inn ákveðnar mat­vörur til Rúss­lands. Nýju löndin eru Albanía, Svart­fjalla­land, Ísland og Lichtenstein, auk þess að bannið á við Úkraínu í ein­hverjum til­vikum,“ sagði Medvedev á rík­is­stjórn­ar­fundi í dag.


Ekki liggur fyrir hversu víð­tækt inn­flutn­ings­bannið á mat­vörum er gagn­vart Íslandi og hinum ríkj­unum sem bæt­ast á list­ann.


Stjórn­völd í Rúss­landi til­kynntu í byrjun síð­ustu viku að til greina kæmi að víkka inn­flutn­ings­bann á mat­vælum gagn­vart Evr­ópu­sam­bands­löndum og láta það einnig ná til sjö ríkja utan sam­bands­ins. Löndin sjö styðja við­skipta­þving­anir sam­bands­ins, Banda­ríkj­anna og Kanada gegn Rúss­landi vegna hern­að­ar­að­gerða Rússa í Úkraínu. Í dag var til­kynnt um víkkun inn­flutn­ings­banns­ins þannig að það nær til fimm ríkja. Ísland er þeirra á meðal.

Miklir hagsmunir

Miklir hags­munir eru í húfi fyrir íslensk sjáv­ar­út­vegs­fyr­ir­tæki en útflutn­ingur til Rúss­lands er helst á sjáv­ar­fangi, einkum frosnum loðnu­af­urðum, mak­ríl og síld. Grafið hér að neðan sýnir verð­mæti útflutn­ings til Rúss­lands á árunum 2010 til 2014. Nærri helm­ingur af mak­ríl var seldur til Rúss­lands árið 2013.

Þetta er ekki í fyrsta sinn á und­an­förnum mán­uðum sem Íslend­ingar ótt­ast að Rússar loki fyrir inn­flutn­ing héðan vegna stuðn­ings Íslands við við­skipta­þving­anir gegn land­inu vegna aðgerða þess í Úkraínu. 23. októ­ber 2014 greindi Kjarninn frá því að fundað hefði verið með hags­muna­að­ilum í sjáv­ar­út­vegi í utan­rík­is­ráðu­neyt­inu vegna stöð­unnar sem komin er upp milli Íslands og Rúss­lands. Rússar höfðu þá hug á að loka á við­skipti við Ísland, og útvíkka þannig inn­flutn­ings­bann á mat­vælum til Rúss­lands frá Vest­ur­löndum,.

Heild­arutan­rík­is­við­skipti við Rússland árinu 2013 námu ríf­lega 20 millj­örðum króna. Þar af voru um 18 millj­arðar vegna við­skipta með mak­ríl, en um 47 pró­sent af öllum mak­ríl sem veiddur var við Ísland árið 2013 fór inn á Rúss­lands­markað.

Á þessum tíma höfðu sjáv­ar­út­vegs­fyr­ir­tæki fengið upp­lýs­ingar um að lokað yrði á við­skipi við Ísland, ekki síst vegna stuðn­ings Íslands við hertar póli­tískar og efna­hags­legar aðgerðir gegn Rúss­landi, sem rekja má rekja til póli­tískrar spennu og aðgerða Rússa í Úkraínu. Af þessu varð þó ekki.

Ástæðan fyrir þess­ari stöðu er sú að hinn 15. októ­ber 2014 birti Evr­ópu­ráðið til­kynn­ingu, um að Ísland, Makedónía, Svart­fjalla­land, Albanía, Liechtenstein, Noregur, auk Úkraínu og Georgíu, stilltu sér upp með Evr­ópu­sam­bands­ríkjum, með ákvörðun frá 23. júní, um hertar við­skipta­þvin­gangir gegn Rússum. Nýverið birti Evr­ópu­sam­bandið síðan frétta­til­kynn­ingu um áfram­hald­andi við­skipta­þving­anir gagn­vart Rússum vegna aðgerða þeirra í Úkraínu. Ísland styður áfram þær aðgerðir líkt og það hefur gert frá byrjun.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár