Eru Rússar að loka á Ísland? - Áhyggjur vegna aðgerða Rússa

Fundað var með hags­muna­að­ilum í sjáv­ar­út­vegi í utan­rík­is­ráðu­neyt­inu í dag vegna stöð­unnar sem komin er upp milli Íslands og Rúss­lands. Rússar hafa hug á að loka á við­skipti við Ísland, og útvíkka þannig inn­flutn­ings­bann á mat­vælum til Rúss­lands frá Vest­ur­löndum, sam­kvæmt heim­ildum Kjarnans. Miklir hags­munir eru í húfi fyrir íslensk sjáv­ar­út­vegs­fyr­ir­tæki, en heild­arutan­rík­is­við­skipti við Rússland í fyrra námu ríf­lega 20 millj­örðum króna. Þar af voru um 18 millj­arðar vegna við­skipta með mak­ríl, en um 47 pró­sent af öllum mak­ríl sem veiddur var við Ísland í fyrra fór inn á Rúss­lands­markað.

Samkvæmt heim­ildum Kjarnans höfðu sjáv­ar­út­vegs­fyr­ir­tæki fengið upp­lýs­ingar um að lokað yrði á við­skipi við Ísland, ekki síst vegna stuðn­ings Íslands við hertar póli­tískar og efna­hags­legar aðgerðir gegn Rúss­landi, sem rekja má rekja til póli­tískrar spennu og aðgerða Rússa í Úkraínu.

Ekki hefur náðst í Gunnar Braga Sveins­son, utan­rík­is­ráð­herra í dag, né Kolbein Árnason, fram­kvæmda­stjóra LÍÚ. Adolf Guð­munds­son, for­maður LÍÚ, sagð­ist í sam­tali við Kjarnann ekki hafa farið til fundar í dag, þar sem hann var staddur á Seyð­is­firði. En sagð­ist hafa heyrt af áhyggjum sjáv­ar­út­vegs­fyr­ir­tækja af því að Rússar væru að loka á við­skipti og útvíkka inn­flutn­ings­bannið, með þeim afleið­ingum að það hefði áhrif á við­skipti íslenskra fyr­ir­tækja. Þetta hafði hann þó ekki fengið stað­fest að væri raunin.

Hinn 15. októ­ber birti Evr­ópu­ráðið til­kynn­ingu, um að Ísland, Makedónía, Svart­fjalla­land, Albanía, Liechtenstein, Noregur, auk Úkraínu og Georgíu, stilltu sér upp með Evr­ópu­sam­bands­ríkjum, með ákvörðun frá 23. júní, um hertar við­skipta­þvin­gangir gegn Rússum. Samkvæmt heim­ildum Kjarnans fór þetta illa í Rússa sem hafa hug á því að loka á við­skipti við þessi ríki, eða í það minnsta bregð­ast við með aðgerðum.

Kjarninn mun halda áfram að fjalla um þetta mál eftir því sem upp­lýs­ingar ber­ast.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár