Medvedev, forsætisráðherra Rússlands, skoðar bann á innflutningi frá Íslandi

Dimítrí Medvedev, for­sæt­is­ráð­herra Rúss­lands, mun sjálfur stýra rann­sókn á því hvort Rússland eigi að grípa til banns á inn­flutn­ingi frá sjö löndum sem stutt hafa áfram­hald­andi við­skipta­þving­anir Evr­ópu­sam­band­ands­ins, Banda­ríkj­anna og Kanada á Rússland. Ísland er á meðal þeirra landa. Medvedev skip­aði fyrir um það í gær að rann­sóknin ætti að hafa fram. Þetta kemur fram í Morg­un­blað­inu í dag.

Þar er haft eftir Gunnari Braga Sveins­syni utan­rík­is­ráð­herra að þetta valdi auð­vitað áhyggjum og að verið sé að reyna að afla frek­ari upp­lýs­inga um hversu mikil alvara sé í mál­inu hjá Rússum. "Við höfum haft áhyggjur af því allan tím­ann að lenda á við­skipta­bann­lista hjá Rússum. Þessar fréttir eru ekki til þess fallnar að draga úr áhyggjum okkar."

Jón Garðar Helgason, for­maður Samtaka fyr­ir­tækja í sjáv­ar­út­vegi, segir við Morg­un­blaðið að við­skipta­bannið hafi sett mikla hags­muni Íslands í upp­nám. Alls nemur útflutn­ingur sjáv­ar­fangs til Rúss­lands frá Íslandi á bil­inu 21 til 25 millj­örðum króna á ári. Þar munar mest um frosnar loðnu­af­urðir, mak­ríl og síld.

[caption id="attachment_34509" align="align­right" width="1024"] "Við höfum haft áhyggjur af því allan tím­ann að lenda á við­skipta­bann­lista hjá Rússum. Þessar fréttir eru ekki til þess fallnar að draga úr áhyggjum okkar," segir Gunnar Bragi Sveins­son.[/caption]

 

Hefur staðið tæpt áður


Þetta er ekki í fyrsta sinn á und­an­förnum mán­uðum sem Íslend­ingar ótt­ast að Rússar loki fyrir inn­flutn­ing héðan vegna stuðn­ings Íslands við við­skipta­þving­anir gegn land­inu vegna aðgerða þess í Úkraínu. 23. októ­ber 2014 greindi Kjarninn frá því að fundað hefði verið með hags­muna­að­ilum í sjáv­ar­út­vegi í utan­rík­is­ráðu­neyt­inu vegna stöð­unnar sem komin er upp milli Íslands og Rúss­lands. Rússar höfðu þá hug á að loka á við­skipti við Ísland, og útvíkka þannig inn­flutn­ings­bann á mat­vælum til Rúss­lands frá Vest­ur­löndum,.

Miklir hags­munir eru í húfi fyrir íslensk sjáv­ar­út­vegs­fyr­ir­tæki, en heild­arutan­rík­is­við­skipti við Rússland árinu 2013 námu ríf­lega 20 millj­örðum króna. Þar af voru um 18 millj­arðar vegna við­skipta með mak­ríl, en um 47 pró­sent af öllum mak­ríl sem veiddur var við Ísland árið 2013 fór inn á Rúss­lands­markað.

Á þessum tíma höfðu sjáv­ar­út­vegs­fyr­ir­tæki fengið upp­lýs­ingar um að lokað yrði á við­skipi við Ísland, ekki síst vegna stuðn­ings Íslands við hertar póli­tískar og efna­hags­legar aðgerðir gegn Rúss­landi, sem rekja má rekja til póli­tískrar spennu og aðgerða Rússa í Úkraínu. Af þessu varð þó ekki.

Ástæðan fyrir þess­ari stöðu er sú að hinn 15. októ­ber 2014 birti Evr­ópu­ráðið til­kynn­ingu, um að Ísland, Makedónía, Svart­fjalla­land, Albanía, Liechtenstein, Noregur, auk Úkraínu og Georgíu, stilltu sér upp með Evr­ópu­sam­bands­ríkjum, með ákvörðun frá 23. júní, um hertar við­skipta­þvin­gangir gegn Rússum. Nýverið birti Evr­ópu­sam­bandið síðan frétta­til­kynn­ingu um áfram­hald­andi við­skipta­þving­anir gagn­vart Rússum vegna aðgerða þeirra í Úkraínu. Ísland styður áfram þær aðgerðir líkt og það hefur gert frá byrjun.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár