Krefjast leiðréttingar á hækkunum verðlagsnefndar - Segja rekstri KÚ stefnt í hættu

For­svars­menn mjólk­ur­bús­ins KÚ hafa óskað eftir fundi með Sigurði Inga Jóhanns­syni land­bún­að­ar­ráð­herra vegna ákvörð­unar verð­lags­nefndar búvöru frá 17. júní síð­ast­liðnum en þá ákvað nefndin að hækka verð á mjólk­ur­varn­ingi um 3,6 pró­sent. Í til­kynn­ingu til fjöl­miðla segir KÚ að leið­rétt­ing á þessum hækk­unum sé for­senda þess að mjólk­ur­búið geti haldið áfram rekstri. „Að öðrum kosti sjáum við okkur nauð­beygða að draga okkur út úr sam­keppni á mjólk­ur­vöru­mark­aði með til­heyr­andi skaða fyrir neyt­endur.“ Ólafur M. Magn­ús­son, fram­kvæmda­stjóri KÚ, telur ákvörð­un­ina um hækkun á verði hrá­vöru fyrst og fremst tekna í þágu Mjólk­ur­sam­söl­unnar (MS) og til að koma höggi á sam­keppn­is­að­ila MS.

Síðasta mánu­dag sagði Ólafur að hækk­unin fæli í sér sér­stakan sam­keppn­is­skatt og kall­aði verð­lags­nefnd­ina, sem skipuð er af ráð­herra, „verð­lags­nefnd MS“.

Hagfræðiprófessor krefst endurskoðunar

Þórólfur Matth­í­as­son, pró­fessor í hag­fræði við Háskóla Íslands, ritar grein í Frétta­blaðið í dag og kallar eftir því að verð­lags­nefnd búvara end­ur­skoði verlagn­ingu sína frá 17. júní og lækki heild­sölu­verð á ópakk­aðri mjólk um minnst tíu krónur á lítr­ann. Er þá átt við mjólk sem er keypt áður en hún fer í fernur. Helstu kaup­endur ópakk­aðrar mjólkur eru aðilar í sam­keppni við MS í fram­leiðslu og sölu afurða sem eru unnar úr ópakk­aðri mjólk.


Þórólfur segir að miðað við ákvörðun verð­lags­nefnd­ar­innar um hækkun verðs þá virð­ist það vera mat hennar að kostn­aður við pökkun sé 16 krónur á hvern lítra, en nefndin ákvað að heild­sölu­verð skyldi verða 105 krónur fyrir lítra af ger­il­sneyddri mjólk og verð á mjólk í eins lítra fernu skyldi vera 121 króna.


„Samkvæmt þeim upp­lýs­ingum sem mér hefur tek­ist að afla mér kostar papp­írs­fernan sjálf komin í átöpp­un­ar­sal á bil­inu 16 til 18 krónur. Þá á eftir að koma mjólk­inni í fern­una. Til þess að gera það þarf mikið hús­næði, stóra og dýra véla­sam­stæðu auk nokk­urs mann­afla. Varlega áætlað kostar það 10 krónur á hvern lítra að koma mjólk­inni úr tanknum í fern­una,“ segir Þórólfur sem telur verð­lags­nefnd hafa brugð­ist hlut­verki sínu. „Það er ekki nóg að láta full­trúa Mjólk­ur­sam­söl­unnar segja sér hvað kostar að tappa mjólk á fernu. Það þarf að afla sjálf­stæðra upp­lýs­inga. Sem er auð­velt því Mjólk­ur­sam­salan er ekki ein um að tappa vökva í Tetra­Pakk-umbúðir hér á landi!“ Auk þess að kalla eftir aft­ur­köllun verð­hækk­ana þá fer Þórólfur fram á opin­beran rök­stuðn­ing Verð­lags­nefnd­ar­innar fyrir verð­hækk­unum.

Hagfræðistofnun vill breyta kerfinu

Hag­fræði­stofnun Háskóla Íslands birti í síð­asta mán­uði skýrslu um stöðu mjólk­ur­fram­leiðslu á Íslandi og lagði til miklar breyt­ingar á núgild­andi kerfi, sem er sagt kosta neyt­endur um átta millj­arða á ári. „Það kerfi sem er við­haft á Íslandi við mjólk­ur­fram­leiðslu gerir það að verkum að íslenska ríkið og eig­endur þess, íslenskir neyt­endur, þurfa að borga um átta millj­örðum krónum meira fyrir fram­leiðslu á henni en ef mjólkin hefði ein­fald­lega verið flutt inn frá öðru fram­leiðslu­landi á árunum 2011 til 2013. Ríkið og neyt­endur borg­uðu 15,5 millj­arða króna fyrir mjólk­ina á tíma­bil­inu en inn­flutt mjólk, með flutn­ings­kostn­aði, hefði kostað 7,5 millj­arða króna. Reyndar er það svo að á tíma­bil­inu sem um ræðir var fram­leitt meira af mjólk hér­lendis en neytt var af henni. Neysla Íslend­inga hefði ein­ungis kostað tæp­lega 6,5 millj­arða króna á ári. Offram­leiðsla á nið­ur­greiddri mjólk­inni kost­aði neyt­endur og ríkið því millj­arð til við­bótar,“ segir í ítar­legri umfjöllun Kjarnans um skýrsl­una frá því í fyrri hluta júní.


Lands­sam­band kúa­bænda og Bænda­sam­tökum brugð­ust fljótt við skýrsl­unni og sögðu hug­myndir sem í henni er að finna koll­varpa núver­andi fyr­ir­komu­lagi mjólk­ur­fram­leiðslu. Í til­kynn­ingu frá Lands­sam­bandi kúa­bænda og Bænda­sam­tök­unum segir að verð á mjólk­ur­vörum hafi verið hag­felld neyt­endum, og því hefði átt að vera gert hærra undir höfði í skýrslu Hag­fræði­stofn­unar.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár