Kúabændur: Tillögurnar „kollvarpa“ núverandi fyrirkomulagi

Lands­sam­band kúa­bænda og Bænda­sam­tök Íslands segja að raun­verð á mjólk­ur­vörum hafi lækkað á ára­bil­inu frá 2003 til 2013, og því veki það athygli, að „þrátt fyrir þennan árangur“ þá séu í skýrslu Hag­fræði­stofn­unar Íslands gerðar „til­lögur að breyt­ingum sem koll­varpa núver­andi fyr­ir­komu­lagi mjólk­ur­fram­leiðslu.“

Í til­kynn­ingu frá Lands­sam­bandi kúa­bænda og Bænda­sam­tök­unum segir að verð á mjólk­ur­vörum hafi verið hag­felld neyt­endum, og því hefði átt að vera gert hærra undir höfði í skýrslu Hag­fræði­stofn­unar. Í skýrsl­unni segir meðal ann­ars að ríkið og neyt­endur hafi greitt átta millj­arða á ári með mjólk­ur­fram­leiðslu.

„Í skýrsl­unni segir að raun­verð á nýmjólk, rjóma, skyri, jógúrt, smjöri og osti hafi verið lægra árið 2013 en 2003. Kemur fram að þó svo verð á mjólk­ur­vörum fari hækk­andi hafi það ekki haldið í við þróun á vísi­tölu neyslu­verðs. Einnig að 70% mat­vara á þessu tíma­bili, 2003 til 2013, hækk­aði meira en sú mjólk­ur­af­urð sem hækk­aði mest. Aðeins 10% mat­vara hækk­uðu minna í verði. Athygli vekur að þrátt fyrir þennan árangur eru í skýrsl­unni gerðar til­lögur að breyt­ingum sem koll­varpa núver­andi fyr­ir­komu­lagi mjólk­ur­fram­leiðslu,“ segir til­kynn­ing­unni.

Í skýrslu Hag­fræði­stofn­unar segir að hag­kvæmni hafi auk­ist, og vilja kúa­bændur að horf sé meira til þess­ara þátta. „Hag­kvæmni hefur auk­ist mikið í rekstri íslenskra kúa­búa und­an­farin ár. Meðalnyt á hverja íslenska kú jókst um nálægt 45% frá 1994-2012, en áður hafði hún lítið auk­ist í ára­tugi,“ segir í skýrsl­unni og vitna kúa­bændur sér­stak­lega til þess að hag­ræð­ingin hafi skilað sér til neyt­enda. „Á móti kemur fram í skýrsl­unni að auka þurfi mögu­leika til nýliðun í grein­inni og auka skil­virkni greiðslna úr rík­is­sjóði þannig að þær skili sér betur til bænda. Þessi atriði þarf að taka til nán­ari skoð­unar sem og ýmis önnur atriði skýrsl­unnar í kom­andi búvöru­samn­ingum,“ segir í til­kynn­ing­unni.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár