Neytendur og ríkið borga átta milljarða króna á ári í stuðning við mjólkurframleiðslu

Árin 2011 til 2013 kost­aði mjólk á bænda­verði neyt­endur og íslenska ríkið 15,5 millj­arða króna á ári að jafn­aði, en inn­flutt mjólk hefði kostað tæp­lega 7,5 millj­arða króna, með flutn­ings­kostn­aði. Stuðn­ingur ríkis og neyt­enda við mjólk­ur­fram­leiðslu var því með öðrum orðum átta millj­arðar króna á ári. Þetta kemur fram í nýrri skýrslu Hag­fræði­stofn­unar Háskóla Íslands um mjólk­ur­vöru­fram­leiðslu á Íslandi. Skýrslan var gerð opin­ber í dag.

Skýrslan er unnin fyrir atvinnu­vega- og nýsköp­un­ar­ráðu­neytið. Í lokakafla skýrsl­unnar eru gerðar til­lögur um breyt­ingar á opin­berum stuðn­ingi við mjólk­ur­fram­leiðslu. Lagt er til að tollar verði lækk­aðir, svo að fram­leiðsla grann­land­anna verði sam­keppn­is­fær við íslenskar mjólk­ur­af­urðir hér á landi. Í fram­haldi af því má leggja af opin­bert heild­sölu­verð á mjólk­ur­vörum. "Lagt er til að und­an­þágur mjólk­ur­vinnslu­fyr­ir­tækja frá sam­keppn­is­lögum verði felldar úr gildi. Í stað greiðslna úr rík­is­sjóði fyrir mjólk­ur­fram­leiðslu innan greiðslu­marks (fram­leiðslu­kvóta) komi annað hvort styrkir sem mið­aðir verði við fjölda naut­gripa og hey­feng, að ákveðnu marki, eða hreinir búsetu­styrkir. Lagt er til að greiðslu­mark (fram­leiðslu­kvóti) verði aflagt."

Lágmarksverð til bænda hefur hækkað


Í skýrsl­unni segir einnig að lág­marks­verð til bænda hafi hækkað miðað við almennt neyslu­verð síðan 2003. Heild­sölu­verð mjólk­ur­vara hefur á sama tíma lækkað miðað við almennt neyslu­verð og smá­sölu­verð mjólk­ur­vara var lægra árið 2013 en árið 2003 miðað við verð á almennum neyslu­vörum. "Þegar þróun verðs á ein­stökum mjólk­ur­af­urðum er borin saman við verð á ein­stökum teg­undum ann­arrar mat­vöru kemur í ljós að um 70 pró­sent af öðrum mat­vörum, sem til skoð­unar eru, hækk­uðu meira í verði en mjólk­ur­af­urðir," segir í skýrsl­unni.

Á árunum 1986 til 1988 var opin­ber stuðn­ingur við íslenska bændur fimm pró­sent af lands­fram­leiðslu, að mati OECD, en hlut­fallið var lið­lega eitt pró­sent árið 2013. Árin 1986 til 1988 var íslensk mjólk á bænda­verði níu sinnum dýr­ari en inn­flutt mjólk hefði verið, að mati OECD, en 2011-2013 var hún að jafn­aði um 30 pró­sent dýr­ari.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár