KÚ kærir ákvörðun verðlagsnefndar og segir henni stefnt gegn samkeppni

Mjólk­ur­búið KÚ mót­mælir harð­lega ákvörðun verð­lags­nefndar búvara um hækkun á óger­il­sneiddri hrá­mjólk til úrvinnslu og segir að smærri úrvinnslu­að­ilar þurfi nú að greiða 17,44 pró­sent sam­keppn­is­skatt til Mjólk­ur­sam­söl­unnar (MS) ofan á mjólk­ur­verð. Í frétta­til­kynn­ingu frá KÚ er ein­hliða ákvörðun verð­lags­nefndar sögð óeðli­leg. Verð á óger­il­sneiddri hrá­mjólk til úrvinnslu hækki um 4 pró­sent á sama tíma og hækkun á afurða­verði til bænda hækki aðeins um 1,47 krónur eða 1,77 pró­sent. „Þessari hækkun er stefnt gegn sam­keppni á mjólk­ur­vöru­mark­aði og mun valda smærri fyr­ir­tækjum sem starfa á þessum mark­aði fjár­hags­legu tjóni. Ákvörðun er með öllu óskilj­an­leg þar sem mjólk­ur­verð hækkar aðeins um 1,47 krónur eða 1,77% til bænda og engin hækkun hefur orðið á flutn­ings­kostn­aði sem er eftir sem áður 3,5 krónur á hvern ltr. Þannig er sam­keppn­is­að­ilum MS ætlað að greiða niður rekstur MS enn frekar með til­heyr­andi skaða fyrir neyt­endur. Sam­keppn­is­að­ilar MS greiða því 17,44% hærra hrá­efn­is­verð en MS sem er ólíð­andi,“ segir í til­kynn­ing­unni en í henni er verð­lags­nefnd búvara kölluð „verð­lags­nefnd MS“.

Ólafur M. Magn­ús­son, eig­andi KÚ mjólk­ur­bús, sendir fjöl­miðlum í dag yfir­lýs­ingu þar sem meðal ann­ars segir að KÚ muni kæra ákvörðun verð­lags­nefnd­ar­innar til Sam­keppn­is­eft­ir­lits­ins, þar sem hún gangi frek­lega gegn sam­keppni á mjólk­ur­vöru­mark­aði og sé brot á sam­keppn­is­lögum er varða mark­aðs­mis­notkun. „Hags­munir neyt­enda eru með öllu bornir fyrir róða með þess­ari ákvörðun ekki síst þar sem mjólk­ur­fram­leiðsla á Íslandi býr jafn­framt við mikla toll­vernd. Verð­lags­nefnd „Mjólk­ur­sam­söl­unnar“ stefnir því leynt og ljóst að því tryggja að nýir aðilar geta ekki með nokkru móti keppt við MS vegna ofur „skatt­lagn­ingar“ á hrá­efnið. Þessi fram­ganga er sér­stak­lega ámæl­is­verð þar sem MS hefur komið sér hjá því að taka ábyrgð á langvar­andi og ítrek­uðum brotum á Sam­keppn­is­lögum með laga­tækni­legum klækjum og útúr­snún­ingum. Með þess­ari ákvörðun er ljóst að Mjólk­ur­sam­salan er í þeirri sér­stöðu að geta lagt íþyngj­andi skatt á sam­keppn­is­að­ila sína og nýtur til þess bless­unar stjórn­valda,“ segir Ólafur í frétta­til­kynn­ing­unni.


„Stjórn­völd hafa svo bitið haus­inn af skömminni með því að fjársvelta Sam­keppn­is­eft­ir­litið og fleiri eft­ir­lit­stofn­anir með þeim afleið­ingum að þau geta illa eða mjög seint sinnt hlut­verki sínu og lokið málum. Þannig taki afgreiðsla kæru­mála lengri tíma en eðli­legt getur talist sem bitnar á hags­munum neyt­enda og almenn­ings. Nú er því brýna en nokkru sinni fyrr að nið­ur­stöður fáist í margra ára kæru­mál sem eru til með­ferðar hjá Sam­keppn­is­eft­ir­lit­inu og snúa að alvar­legum og ítrek­uðum brotum Mjólk­ur­sam­söl­unnar á sam­keppn­is­lögum.“


Vísað er til nýlegrar skýrslu Hag­fræði­stofn­unar þar sem lagt er til að mjólk­ur­fram­leiðslu­kerfi á Íslandi verði gjör­bylt. „Er það ekki síst brýnt í ljósi nýlegar skýrslu Hag­fræði­stofnun Háskóla Íslands sem hefur tekið mjög afdrátt­ar­laust undir gagn­rýni og ábend­ingar Sam­keppn­is­eft­ir­lits­ins um sam­keppn­is­hömlur í mjólkur­iðn­aði og land­bún­aði hér á landi,“ segir Ólafur.

Leggja til miklar breytingar

Fjallað var um skýrslu Hag­fræði­stofn­unar á Kjarn­anum í síð­asta mán­uði. Lagðar eru til miklar breyt­ingar á mjólk­ur­fram­leiðslu­kerf­inu á Íslandi en fram kom í skýrsl­unni að í dag þurfa ríkið og eig­endur þess, íslenskir neyt­endur, að borga um átta millj­örðum krónum meira fyrir fram­leiðslu á henni en ef mjólkin hefði ein­fald­lega verið flutt inn frá öðru fram­leiðslu­landi á árunum 2011 til 2013. Ríkið og neyt­endur borg­uðu 15,5 millj­arða króna fyrir mjólk­ina á tíma­bil­inu en inn­flutt mjólk, með flutn­ings­kostn­aði, hefði kostað 7,5 millj­arða króna.


Lands­sam­band kúa­bænda og Bænda­sam­tökum brugð­ust fljótt við skýrsl­unni og sögðu hug­myndir sem í henni er að finna koll­varpa núver­andi fyr­ir­komu­lagi mjólk­ur­fram­leiðslu. Í til­kynn­ingu frá Lands­sam­bandi kúa­bænda og Bænda­sam­tök­unum segir að verð á mjólk­ur­vörum hafi verið hag­felld neyt­endum, og því hefði átt að vera gert hærra undir höfði í skýrslu Hag­fræði­stofn­unar


Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár