Opnað fyrir viðskipti í Kauphöll á nýjan leik

Opnað hefur verið fyrir við­skipti með skulda­bréf útgefin af rík­is­sjóði og Íbúða­lána­sjóði, hluta­bréf í trygg­ing­ar­fé­lög­unum TM, VÍS og Sjóvá og hlut­deild­ar­skír­teini í ákveðnum verð­bréfa­sjóðum. Við­skipti í Kaup­höll­inni hófust á nýjan leik klukkan 14 með tíu mín­útna upp­boði. Fjár­mála­eft­ir­litið stöðv­aði í morgun við­skipti með rík­is­bréf, íbúða­bréf, hluta­bréf trygg­inga­fé­laga og ákveðna verð­bréfa­sjóði Lands­bréfa og Íslands­banka. Var það gert til að vernda jafn­ræði fjár­festa í aðdrag­anda kynn­ing­ar­fundar stjórn­mála á aðgerðum hennar við losun fjár­magns­hafta. Fund­ur­inn hófst í Hörpu klukkan tólf og lauk um klukku­stund síðar.

Upp­lýs­ing­arnar á fund­inum gátu verið verð­mynd­andi á hluta- og skulda­bréfa­mark­aði og ákvað FME því að loka fyrir við­skipti þar til honum lyki. Á fund­inum kynntu fjár­mála­ráð­herra og for­sæt­is­ráð­herra veiga­miklar aðgerðir við losun fjár­magns­hafta sem meðal ann­ars fela í sér stöð­ug­leika­skatt, gangi kröfu­hafar slita­búa gömlu bank­anna ekki að nauða­samn­ingum að upp­fylltum ákveðnum skil­yrðum.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár