Viðskipti stöðvuð: Upplýsingarnar geta verið verðmyndandi

Ástæða þess að við­skipti voru stöðvuð í morgun með skulda­bréf útgefin af rík­is­sjóði og Íbúða­lána­sjóði, hluta­bréf trygg­inga­fé­lag­anna auk ákveð­inna verð­bréfa­sjóða er sú að upp­lýs­ing­arnar sem kynntar verða á blaða­manna­fundi í Hörpu í hádeg­inu geta verið verð­mynd­andi á mark­aði. Ákvörð­unin er tekin til að vernda jafn­ræði fjár­festa. For­sæt­is­ráð­herra og fjár­mála­ráð­herra hafa boðað til blaða­manna­fundar í dag þar sem kynna á aðgerðir stjórn­valda til los­unar fjár­magns­hafta.

Trygg­inga­fé­lögin þrjú, TM, VÍS og Sjóvá, eru stórir eig­endur skulda­bréfa útgefin af rík­is­sjóði og Íbúða­lána­sjóði. Upp­lýs­ingar sem hafa áhrif á verð­myndun skulda­bréfa geta því einnig haft verð­mynd­andi áhrif á hluta­bréf trygg­inga­fé­lag­anna, segir Sigurður Val­geirs­son, upp­lýs­inga­full­trúi FME. Því hafi verið tekin ákvörðun um að stöðva við­skipti með hluta­bréf trygg­inga­fé­lag­anna til klukkan 14 í dag, rétt eins og með skulda­bréf útgef­inu af rík­is­sjóði og Íbúð­lána­sjóði auk hlut­deild­ar­skír­teina í rík­is­verð­bréfa­sjóðum Íslands­sjóða og Lands­bréfa.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár