Kröfuhafar stóru búanna hafa undirritað viljayfirlýsingu um stöðugleikaskilyrði

Kröfu­hafar stærstu föllnu bank­anna hafa und­ir­ritað vilja­yf­ir­lýs­ingu þar sem þeir und­ir­gang­ast þau stöð­ug­leika­skil­yrði sem sett hafa verið fram af hendi stjórn­valda. Um er að ræða skil­yrði sem ná yfir 900 millj­arða króna eignir þeirra. Þetta kom fram í kynn­ingu sem Benedikt Gíslason og Sigurður Hann­es­son, vara­for­menn fram­kvæmda­hóps um losun fjár­magns­hafta, halda nú í Hörpu á aðgerðum stjórn­valda til þess að losa um fjár­magns­höft. Þótt vilja­yf­ir­lýs­ingin liggi fyrir er það þó, að sögn þeirra ,ein­ungis eitt skref í átt að slita­búin gangi að skil­yrðum stjórn­valda. Engin afsláttur verði gefin á skil­yrð­unum.

Fyrr í kynn­ing­unni hafði komið fram að slita­búum föllnu bank­anna verður boðið að ljúka nauða­samn­ingi fyrir árs­lok. Til þess að geta það þurfa þau að fá und­an­þágu frá fjár­magns­höftum. Til þess að fá slíka und­an­þágu þurfa slita­búin að gang­ast við ákveðnum stöð­ug­leika­skil­yrðum og greiða ákveðið stöð­ug­leika­fram­lag. Samkvæmt því fá slita­búin val­frjálst þann mögu­leika að greiða upp­hæð sem er svipuð að umfangi og það fé sem stöð­ug­leika­skattur myndi inn­heimta, eða 850 millj­arðar króna. Ef slita­búin mæta ekki þessum skil­yrðum verður lagður á stöð­ug­leika­skattur sem er 39 pró­sent á heild­ar­eignir fall­inna við­skipta­banka eða spari­sjóða. Sá skattur á að skila um 850 millj­örðum króna, eða 682 millj­örðum króna að teknu til­liti til frá­drátt­ar­heim­ildar.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár