Viðskipti stöðvuð á skuldabréfamarkaði

Fjár­mála­eft­ir­litið hefur stöðvað tíma­bundið við­skipti á skulda­bréfa­mark­aði með skulda­bréf útgefin af Íbúða­lána­sjóði og rík­is­sjóði. Einnig hafa verið stöðvuð við­skipti með hluta­bréf trygg­inga­fé­lag­anna Sjóvá, TM og VÍS, og ákveðna verð­bréfa­sjóði Lands­bréfa og Íslands­sjóða. Í til­kynn­ingu til Kaup­hall­ar­innar er birtur listi yfir þau verð­bréf sem við­skipti eru stöðvuð með.

Fram kemur í til­kynn­ingu frá FME að ákvörð­unin sé tekin til að vernda jafn­ræði fjár­festa. Áætlað er að opna aftur fyrir við­skipti klukkan 14:00 í dag, eftir boð­aðan blaða­manna­fund for­sæt­is­ráð­herra og fjár­mála­ráð­herra þar sem kynnt verður áætlun um afnám gjald­eyr­is­hafta. Aðgerðir stjórn­valda til los­unar fjár­magsnhafta verða kynntar í Hörpu í hádeg­inu.

Verð­bréfa­fyr­ir­tæki og aðrir sem eru virkir kaup­endur og selj­endur á skulda­bréfa­mark­aði hafi í kjöl­far ákvörð­unar FME til­kynnt um stöðvun við­skipta þar til klukkan tvö í dag. Júpíter rekstr­ar­fé­lag, sem rekur verð­bréfa­sjóði, til­kynnti í kjöl­far ákvörð­unar FME að stöðva við­skipti með hlut­deild­ar­skír­teini allra sjóða í rekstri félags­ins. Stjórn Lands­bréfa ákvað einnig að fresta við­skiptum með rík­is­skulda­bréfa­sjóði félags­ins. Þá hafa Lána­sjóður sveit­ar­fé­laga og Reykja­vík­ur­borg veitt aðal­miðl­urum tíma­bundna und­an­þágu á skyldum á eft­ir­mark­aði, þar til opnað verður fyrir við­skipti á nýjan leik klukkan tvö. Aðal­miðl­urum er því heim­ilt að leggja ekki fram kaup- og sölu­til­boð í við­skipta­kerfi Kaup­hall­ar­innar.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár