Ungt og tekjulágt fólk kýs Pírata - Gamalt og ríkt fólk kýs stjórnarflokkanna

Fólk með lágar tekjur kýs helst Pírata en stuðn­ingur við Sjálf­stæð­is­flokk, Sam­fylk­ingu og Fram­sókn­ar­flokk er mestur hjá hátekju­hópum sam­fé­lags­ins. Vinstri grænir og Fram­sókn­ar­flokkur sækja þorra síns fylgis á lands­byggð­ina á meðan að Sam­fylk­ingin er miklu sterk­ari á höf­uð­borg­ar­svæð­inu en á öðrum svæðum lands­ins. Ungt fólk styður Pírata, Vinstri græn eða Bjarta fram­tíð en fylgi við Sjálf­stæð­is­flokk, Sam­fylk­ingu og Fram­sókn­ar­flokk er mun meira hjá eldra fólki en því sem yngra er. Þetta er meðal þess sem kemur þegar fylgi stjórn­mála­flokka sam­kvæmt könn­unum MMR er greint eftir hópum.

Könnun fyr­ir­tæk­is­ins, sem birt var í gær, sýndi Pírata með 32,7 pró­sent fylgi, Sjálf­stæð­is­flokk­inn og Sam­fylk­ing­una með fylgi á pari við það sem flokk­arnir fengu í verstu kosn­ing­unum sínum frá upp­hafi, Framsókn með lægsta fylgi sem flokk­ur­inn hefur mælst með frá því að skipt var um for­mann snemma árs 2009 og að Björt fram­tíð er áfram í frjálsu falli.

Ungir kjósa Pírata, gamlir stjórnarflokkanna


Það kemur kannski fæstum á óvart að Píratar, sem mæl­ast nú þriðju könn­un­ina í röð sem langstærsti flokkur lands­ins, sækja mest af sínu fylgi til ungs fólks. Í ald­urs­hópnum 18-29 ára segj­ast 44,5 pró­sent kjósa þá ef gengið yrði að kjör­borð­inu í dag. Það vekur samt sem áður athygli að stuðn­ingur við Pírata er umtals­verður í eldri ald­urs­hópum líka. Um 24 pró­sent fólks yfir 50 ára aldri seg­ist styðja flokk­inn.

Einu flokk­arnir utan Pírata sem mæl­ast með meira fylgi hjá ungu fólki en því sem eldra er eru Vinstri græn og Björt fram­tíð. Hvorugur flokk­ur­inn getur þó verið ánægður með heild­ar­fylgi sitt um þessar mundir.

Fylgi flokka á meðal kvenna

|

Create infographics

Þrír rót­grón­ustu flokkar lands­ins eiga hins vegar aug­ljós­lega við mik­inn vanda að stríða. Þeir höfða ekki til ungra kjós­enda. Fylgi Sjálf­stæð­is­flokks­ins hjá fólki á aldr­inum 18-29 ára mælist til að mynda ein­ungis 12,5 pró­sent. Það hlýtur að vera mikið áhyggju­efni hjá flokki sem alltaf hefur lagt upp með öfl­ugt flokka­starf og starf­rækt mjög öfl­ugar ung­liða­hreyf­ingar.

Þorri fylgis Sjálf­stæð­is­flokks­ins kemur frá fólki yfir fimm­tugu. Þar seg­ist um 30 pró­sent aðspurðra ætla að kjósa flokk­inn.


Þótt skilin séu ekki jafn skörp hjá Sam­fylk­ing­unni er vanda­málið hins vegar það sama þegar horft er á ald­urs­dreif­ingu kjós­enda. Í ald­urs­hópnum 18-29 ára er flokk­ur­inn jafn stór og Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn, með 12,5 pró­sent fylgi. Mest fylgi sækir Sam­fylk­ingin hins vegar í ald­urs­hóp­inn 68 ára og eldri. Þar nýtur flokk­ur­inn 18,6 pró­sent fylgis.

Fylgi flokka í ald­urs­hópnum 18-29 ára

|

Create infographics

Fram­sókn­ar­flokk­ur­inn mælist nú með lægsta fylgi sem hann hefur haft síðan að Sig­mundur Davíð Gunn­laugs­son for­sæt­is­ráð­herra tók við for­mennsku í flokknum, eða 8,6 pró­sent. Af tölum MMR að dæma þá er eng­inn flokkur sem glímir við jafn hraða úreld­ingu og hann.

Fram­sókn­ar­flokk­ur­inn er lang­vin­sælastur hjá þeim kjós­endum sem eru yfir 68 ára aldri, 13,5 pró­sent þeirra segj­ast myndu kjósa flokk­inn.


Þegar horft er á skipt­ingu fylgis milli lands­byggðar og höf­uð­borg­ar­svæð­is­ins eru mestu öfgarnar hjá ann­ars vegar Sam­fylk­ingu og hins vegar Fram­sókn­ar­flokki. Þ.e. Sam­fylk­ingin sækir langstærstan hluta síns fylgis til höf­uð­borg­ar­svæð­is­ins en Fram­sókn­ar­flokk­ur­inn er miklu sterk­ari á lands­byggð­inni en í þétt­býl­inu á suð­vest­ur­horni lands­ins.

Enginn í lægsta tekjuhóp kýs Bjarta framtíð, milljónafólkið styður stjórnina


MMR greinir líka fylgi flokka eftir tekju­hópum. Þar kemur í ljós að Píratar höfða mjög sterkt til þeirra sem eru með lægstu tekj­urnar. Alls segj­ast 53,1 pró­sent þeirra sem eru með heim­il­is­tekjur undir 250 þús­und krónum á mán­uði að þeir myndu kjósa Pírata og um 40 pró­sent þeirra sem eru með tekjur á bil­inu 250 til 600 þús­und krónur.

Ein mest slá­andi breytan í nýj­ustu könnun MMR, sem alls 932 ein­stak­lingar svör­uðu, er sú að eng­inn, ekki einn aðspurður, sem hefur heim­il­is­tekjur undir 250 þús­und krónum myndi kjósa Bjarta fram­tíð. Flokk­ur­inn mælist með 0,0 pró­sent fylgi í hópnum. Um fimmti hver í þessum tekju­hópi myndi kjósa rík­is­stjórn­ar­flokk­anna og fjórði hver sem er með tekjur á bil­inu 250 til 399 þús­und krónur. Það blasir því við að lægstu tekju­hóp­arnir deila ekki þeirri skoðun rík­is­stjórn­ar­innar að Íslend­ingar hafi aldrei haft það jafn gott og nákvæm­lega núna.

Fylgi flokka hjá heim­ilum með undir 250 þús­und í tekjur

|

Create infographics

Eini flokk­ur­inn sem er með nokkuð norm­al­dreift fylgi eftir tekju­hópum eru Vinstri grænir. Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn sækir þorra síns fylgis til þeirra sem eru með yfir 800 þús­und krónur í mán­að­ar­tekjur. Raunar er flokk­ur­inn sá eini sem nýtur alltaf vax­andi fylgis eftir því sem tekjur hækka og eini tekju­hóp­ur­inn sem Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn mælist stærsti flokkur lands­ins hjá er sá sem er með yfir eina milljón króna í mán­að­ar­tekjur.

Sam­fylk­ingin, jafn­að­ar­manna­flokkur Íslands, er með jafn­ara fylgi á milli tekju­hópa en það vekur þó athygli að flokk­ur­inn er með lang­mest fylgi ann­ars vegar hjá hópnum sem er með á milli 800 til 999 þús­und krónur á mán­uði (20,1 pró­sent) og þeim sem þéna yfir milljón krónur á mán­uði (13,6 pró­sent). Þessar tölur gefa staðalí­mynd­inni um elítu-jafn­að­ar­menn­ina eða „Epal-kommann“ sem séu úr tengslum við gras­rót verka­lýðs­ins byr undir báða vængi.


Ef Fram­sókn­ar­flokk­ur­inn telur sig vera að bjóða upp á stefnu sem á að höfða til lág- og milli­tekju­hópa þá end­ur­spegl­ast það ekki í fylgi flokks­ins. Það er lang­lægst hjá þeim hópum sem eru með á milli 250 og 599 þús­und krónur í mán­að­ar­tekjur og undir heild­ar­fylgi hjá þeim lægst­laun­uð­ustu.

Fylgið rýkur hins vegar upp þegar fylgi­spekt hæst laun­uð­ustu hópanna er skoðuð. Mest mælist fylgið við Framsókn hjá þeim sem eru með yfir milljón krónur í mán­að­ar­laun, eða 12,6 pró­sent. Það er heilum fjórum pró­sentu­stigum yfir heild­ar­fylg­inu.

Kjósendur flýja Framsókn og Bjarta framtíð


En hvaðan er allt þetta fylgi Pírata að koma? Hvaða kjós­endur eru það sem mynda þennan 32,7 pró­sent stofn sem vill nú kjósa flokk­inn? Í stuttu máli þá kemur fylgið frá öllum hinum, auk þess sem nán­ast allir sem kusu Pírata síð­ast ætla að kjósa þá aftur núna. Rúmlega helm­ingur þeirra sem kusu Bjarta fram­tíð í síð­ustu alþing­is­kosn­ingum ætlar nú að kjósa Pírata og um þriðj­ungur þeirra sem kusu Fram­sókn­ar­flokk­inn.

Þeir flokkar sem eru að upp­lifa mestan fylg­is­flótta frá síð­ustu kosn­ingum eru einmitt þessir tveir flokkar. Einungis 43,1 pró­sent þeirra sem kusu Framsókn þá myndu kjósa flokk­inn nú. Hjá Bjartri fram­tíð er staðan enn verri, sér­stak­lega þegar horft er til þess að flokk­ur­inn er í stjórn­ar­and­stöðu. 35,3 pró­sent þeirra sem kusu flokk­inn vorið 2013 myndu gera það í dag.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár