Framsókn ekki mælst með minna fylgi frá því að Sigmundur Davíð tók við formennsku

Fram­sókn­ar­flokk­ur­inn hefur ekki mælst með minna fylgi í könn­unum MMR frá því að Sig­mundur Davíð Gunn­laugs­son var kjör­inn for­maður flokks­ins í jan­úar 2009. Nýjasta könnun fyr­ir­tæk­is­ins, sem var birt í dag, sýnir að ein­ungis 8,6 pró­sent aðspurðra myndu kjósa flokk­inn í dag. Það er því ljóst að vera flokks­ins í rík­is­stjórn hefur ekki skilað honum miklum vin­sældum.

Sama má raunar segja um Sjálf­stæð­is­flokk­inn sem mælist enn tölu­vert frá kjör­fylgi sínu, sem var þó ein slakasta útkoma sem flokk­ur­inn hefur nokkru sinni fengið. Þessar óvin­sældir stjórn­ar­flokk­anna skila hefð­bundnum stjórn­mála­flokkum í and­stöðu á þing­inu hins vegar ekki miklu. Bæði Sam­fylk­ingin og Vinstri græn virð­ast föst í mik­illi til­vist­ar­kreppu sem gerir það að verkum að kjós­endur þýð­ast hvor­ugan flokk­inn og Björt fram­tíð, sem lengi vel mæld­ist næst stærsti flokkur lands­ins, mælist með minna fylgi en í síð­ustu könnun í sjö­unda skiptið í röð. Flokk­ur­inn mælist nú minnstur allra sem eiga full­trúa á þingi.

Ástæðan fyrir þess­ari stöðu blasir við: gríð­ar­leg fylg­is­aukn­ing Pírata.


Nýr botn Framsóknar


Sig­mundur Davíð Gunn­laugs­son, núver­andi for­sæt­is­ráð­herra, var kjör­inn for­maður Fram­sókn­ar­flokks­ins 18. jan­úar 2009. Flokk­ur­inn var í mik­illi krísu í kjöl­far hruns­ins á þeim tíma og könnun sem gerð var í des­em­ber 2008 sýndi að ein­ungis 4,9 pró­sent lands­manna vildi kjósa hann.

Þremur dögum eftir að Sig­mundur Davíð tók við for­mennsku birti MMR könnun sem sýndi að flokkur hans mæld­ist með 17,2 pró­sent fylgi. Það féll hins vegar skarpt næstu mán­uði og náði botni í apríl 2009 þegar fylgi flokks­ins mæld­ist ein­ungis níu pró­sent.

Flokk­ur­inn náði síðan flugi fyrir síð­ustu kosn­ingar og hlaut þá 24,4 pró­sent atkvæða. Það dugði til að Fram­sókn­ar­flokk­ur­inn leiddi rík­is­stjórn, þar sem Sig­mundur Davíð varð for­sæt­is­ráð­herra. Síðan má segja að flokk­ur­inn hafi verið í frjálsu falli. Sumarið 2014 var fylgið komið niður í um 9,5 pró­sent og það náði síðan lægsta punkti frá hveiti­brauðs­dögum Sig­mundar Davíðs á for­manns­stóli í jan­úar síð­ast­liðnum, þegar fylgið mæld­ist 9,4 pró­sent. Nú hefur það enn fallið og fylgi Fram­sókn­ar­flokks­ins mælist í dag lægra en nokkru sinni fyrr síðan að skipt var um for­mann í flokknum í jan­úar 2009, eða 8,6 pró­sent.

Sjálfstæðisflokkurinn ekki langt undan


Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn fékk 26,7 pró­sent atkvæða í síð­ustu kosn­ingum. Það var vissu­lega bæt­ing frá kosn­ing­unum 2009, þegar hann fékk 23,7 pró­sent, en langt frá því sem flokk­ur­inn er vanur að fá þegar litið er á fylgi hans í sögu­legu sam­hengi. Samhliða minnk­andi vin­sældum rík­is­stjórnar Fram­sókn­ar­flokks og Sjálf­stæð­is­flokks hefur fylgi hans dalað áfram allt frá síð­ustu kosn­ingum.

Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn fékk sína verstu fylg­is­mæl­ingu á kjör­tíma­bil­inu í apríl síð­ast­liðnum þegar fylgið mæld­ist ein­ungis 21,9 pró­sent. Fylgi flokks­ins hress­ist aðeins á milli kann­ana og mælist í dag 23,1 pró­sent. Það er samt sem áður lægra en Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn fékk í kosn­ing­unum 2009, sem eru verstu kosn­ingar flokks­ins frá upp­hafi.

Á töluvert í land við að ná síðustu ríkisstjórn í óvinsældum


Stuðn­ingur við rík­is­stjórn­ina eykst lít­il­lega á milli mán­aða en er samt ein­ungis 31,4 pró­sent. Þegar ný rík­is­stjórn Fram­sókn­ar­flokks og Sjálf­stæð­is­flokks tók við mæld­ist stuðn­ingur við hana 59,9 pró­sent. Hann hefur því tæp­lega helm­ing­ast frá því sem best lét. Sitjandi rík­is­stjórn á þó enn tölu­vert í land með að ná þeirri sem sat á undan henni í óvin­sældum. Þegar stuðn­ingur við hana mæld­ist minnstur, í októ­ber 2010, studdu ein­ungis 22,1 pró­sent aðspurðra rík­is­stjórn Sam­fylk­ingar og Vinstri grænna.

Vert er þó að taka fram að stuðn­ingur við hana jókst aftur þegar leið á kjör­tíma­bilið og þegar hún fór frá studdu 31,5 pró­sent þá rík­is­stjórn, 0,1 pró­sentu­stígi fleiri en styðja þá sem nú situr.

Tilvistarkreppa stjórnarandstöðunnar


En það eru ekki bara stjórn­ar­flokk­arnir tveir sem eiga í til­vist­ar­kreppu. Sam­fylk­ingin mælist nú með 13,1 pró­sent fylgi. Flokk­ur­inn bætir sann­ar­lega við sig milli kann­ana, en fylgið var 10,4 pró­sent í apríl. Sú mæl­ing er hins vegar sú versta sem Sam­fylk­ingin hefur fengið frá hruni. Fylgið eins og það stendur í dag er ein­ungis 0,2 pró­sent yfir kjör­fylgi Sam­fylk­ing­ar­innar, en útreiðin sem flokk­ur­inn fékk í síð­ustu alþing­is­kosn­ingum er sú versta sem íslenskum stjórn­mála­flokkur hefur nokkru sinni fengið milli kosn­inga. Fylgið fór úr 29,8 pró­sentum í kosn­ing­unum 2009 niður í 12,9 pró­sent vorið 2013.

[caption id="attachment_21298" align="alignnone" width="656"] Minnk­andi fylgi rík­is­stjórn­ar­flokk­anna skilar sér hvorki til Sam­fylk­ingar né Bjartrar fram­tíðar. Báðir flokkar virð­ast eiga við til­vist­ar­kreppu að etja.[/caption]

Vinstri grænir eiga vin­sælasta leið­tog­ann, Katrínu Jak­obs­dóttur, sem virð­ist höfða til mjög víðs hóps lands­manna. Það skilar sér þó enn og aftur ekki í neinni fylg­is­aukn­ingu við flokk­inn sem hún er í for­ystu fyrir. Fylgi Vinstri grænna lækkar lít­il­lega á milli kann­ana og stendur nú í 10,4 pró­sent. Það er aðeins minna en flokk­ur­inn fékk í síð­ustu alþing­is­kosn­ingum, þegar 10,5 pró­sent atkvæða féllu honum í skaut.

Fylgið dalar sjöunda mánuðinn í röð


Sá stjórn­ar­and­stöðu­flokkur sem ætti að hafa mestar áhyggjur yfir því að vera ekki að ná til almenn­ings er Björt fram­tíð. Flokk­ur­inn hlaut 8,2 pró­sent í síð­ustu kosn­ingum, þeim fyrstu sem hann bauð fram í. Fylgið hafði mælst hærra í aðdrag­anda kosn­ing­anna og því er ljóst að nið­ur­staða þeirra var að minnsta kosti sumum fram­bjóð­endum flokks­ins, sem von­ast höfðu eftir þing­sæti, tölu­verð von­brigði.

Í kjöl­far kosn­ing­anna fór fylgið að mæl­ast aftur hærra og í júní 2014 mæld­ist Björt fram­tíð næst stærsti flokkur lands­ins á eftir Sjálf­stæð­is­flokknum, með alls 21,8 pró­sent fylgi. Þetta fylgi hélst vel fram á haust og í októ­ber var stuðn­ingur við flokk­inn en að mæl­ast yfir 20 pró­sent. Þá hófst frjálst fall. Frá því í lok jan­úar hefur fylgi Bjartrar fram­tíðar í könn­unum MMR farið úr því að mæl­ast 16,8 pró­sent í 8,2 pró­sent. Fylgið hefur dal­aði í alls sjö könn­unum í röð.

Píratar halda ekki bara velli, heldur bæta við sig


Stóra fréttin í könn­unum MMR og fleiri sem mæla fylgi stjórn­mála­flokka í síð­asta mán­uði var að fylgi Pírata var komið yfir 30 pró­sent. Það er auð­vitað stór­frétt að það hald­ist ekki ein­ungis í slíkum hæðum heldur bæti flokk­ur­inn við sig. Fylgi hans mælist nú 32,7 pró­sent sem gerir Pírata að langstærsta flokki lands­ins ef kosið væri í dag.

Þetta er líka þriðja könnun MMR í röð sem mælir Pírata sem stærsta flokk lands­ins. Píratar fengu 5,1 pró­sent fylgi í kosn­ing­unum í apríl 2013 og hafa því rúm­lega sexfaldað fylgi sitt á þeim tveimur árum sem liðin eru frá því að þær fóru fram.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár