Hanna Birna fór með ósannindi í viðtali í Íslandi í dag

Hanna Birna Krist­jáns­dóttir, vara­for­maður Sjálf­stæð­is­flokks­ins og fyrr­ver­andi inn­an­rík­is­ráð­herra, full­yrti í við­tali við sjón­varps­mann­inn Sindra Sindra­son í Íslandi í dag á Stöð 2 í gær­kvöldi, að sími hennar og tölva hafi verið skoðuð við rann­sókn leka­máls­ins. Sú full­yrð­ing stenst hins vegar ekki skoðun, því hið rétta er að ein­ungis símar og tölvur aðstoð­ar­manna hennar voru skoð­aðar í rann­sókn lög­reglu.

Sindri spurði hvort það hefði verið við­eig­andi fyrir ráð­herra að hafa jafn mikil sam­skipti við Stefán Eiríks­son, þáver­andi lög­reglu­stjóra höf­uð­borg­ar­svæð­is­ins, og raun ber vitni.

„Eftir á að hyggja, nei. Hins vegar var þetta algjör­lega for­dæma­laust. Það hefur ekki komið upp áður að lög­regla, sem er und­ir­stofnun ráðu­neytis, þarf að rann­saka ráðu­neyti. Ég var til rann­sóknar og ég auð­vitað fór í yfir­heyrslur og svo fram­vegis þannig að þannig hafði ég auð­vitað ákveðnar upp­lýs­ingar. Ég er líka ráð­herra sem þarf að vera viss um það að aðrar upp­lýs­ingar sem ég hef, til dæmis í sím­anum mínum sem var skoð­aður, tölv­unni minni sem var skoðuð, og aðgangskort­inu mínu sem var skoðað í ráðu­neyt­inu og svo fram­vegis, ég varð að vera viss um að þær upp­lýs­ingar sem menn fengju snéru ein­ungis að þessu máli. Þannig að þegar ég tal­aði við Stefán var það alltaf um svona almenn atriði er vörð­uðu slíka rann­sók,“ sagði Hanna Birna í við­tal­inu í Íslandi í dag.

Hvorki sími né tölva rannsökuð af tillitsemi við ráðherra


Í skrif­legu svari Helga Magnúsar Gunn­ars­sonar, vara­rík­is­sak­sókn­ara, við fyr­ir­spurn DV í lok nóv­em­ber, kemur fram að síma­notkun Hönnu Birnu hafi ekki ekki skoðuð við rann­sókn leka­máls­ins. Þar sem „emb­ætti rík­is­sak­sókn­ara og lög­reglu­stjór­ans á höf­uð­borg­ar­svæð­inu vildu ekki ganga of nærri stöðu Hönnu Birnu Krist­jáns­dóttur, frá­far­andi inn­an­rík­is­ráð­herra, við rann­sókn máls­ins [...] Þetta var gert til þess að gæta með­al­hófs,“ eins og segir í svari vara­rík­is­sak­sókn­ara. Ákvörðun um að rann­saka ekki síma Hönnu Birnu var á for­ræði lög­regl­unnar á höf­uð­borg­ar­svæð­inu.

Samkvæmt heim­ildum Kjarnans gilti það sama um tölvu Hönnu Birnu, það er að hún var ekki tekin til rann­sóknar í leka­mál­inu til að ganga ekki of nærri ráð­herr­anum. Sömu heim­ildir Kjarnans herma að aðgangskort Hönnu Birnu hafi lík­lega verið rann­sakað hins vegar, eins og ann­arra í inn­an­rík­is­ráðu­neyt­inu.

Uppfært klukkan 22:58

Í sam­tali við Kjarnann vill Hanna Birna árétta að með orð­unum „sím­anum mínum“ í umræddu sjón­varps­við­tali hafi hún átt við borðsím­ann sinn í inn­an­rík­is­ráðu­neyt­inu, sem hafi verið skoð­aður af lög­reglu, og með orð­unum „tölv­unni minni“ hafi hún átt við að tölvu­póstur hennar á póst­þjóni ráðu­neyt­is­ins hafi verið skoð­aður.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Lekamálið

FréttirLekamálið

Umboðs­maður Alþingis: Borgarar verða að geta treyst því að stjórn­mála­menn skipti sér ekki af lög­reglu­rann­sóknum

„Ég tel nauð­syn­legt sem umboðs­maður Alþingis að vera á varð­bergi um að slík þróun verði ekki í íslenskri stjórn­sýslu,“ segir umboðs­maður í umfjöllun sinni um hátt­semi Hönnu Birnu Krist­jáns­dóttur í árs­skýrslu fyrir 2015. Afskipti ráð­herra af störfum lög­regl­unnar drógu dilk á eftir sér.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár