Segir Hönnu Birnu enn eiga eftir að gera hreint fyrir sínum dyrum

Hanna Birna Krist­jáns­dóttir, vara­for­maður Sjálf­stæð­is­flokks­ins og fyrr­ver­andi inn­an­rík­is­ráð­herra, hyggst snúa aftur á Alþingi á morgun, en hún tók sér frí frá þing­störfum þann 21. nóv­em­ber síð­ast­lið­inn þegar hún hætti sem ráð­herra vegna leka­máls­ins. Hanna Birna tók ákvörðun um að segja af sér sem inn­an­rík­is­ráð­herra í kjöl­far þess að aðstoð­ar­maður hennar Gísli Freyr Val­dórs­son hlaut skil­orðs­bundin fang­els­is­dóm fyrir aðild sína að leka­mál­inu.

Helgi Hjörvar, þing­maður Sam­fylk­ing­ar­innar og full­trúi í stjórn­skip­unar- og eft­ir­lits­nefnd Alþingis, sagði í sjón­varps­þætt­inum Eyjunni undir kvöld, þar sem hann var gestur ásamt Brynjari Níels­syni þing­manni Sjálf­stæð­is­flokks, að heppi­legra hefði verið ef Hanna Birna hefði gert hreint fyrir sínum dyrum gagn­vart Alþingi áður en hún tók ákvörðun um að snúa aftur á þing. Eins og kunn­ugt er afþakk­aði Hanna Birna boð stjórn­skip­unar- og eft­ir­lits­nefndar um að mæta á fund til að ræða leka­málið.

Nefndin bauð Hönnu Birnu að mæta á fund­inn bréfleiðis þann 22. jan­úar síð­ast­lið­inn, þar sem mörgum þing­mönnum hafi þótt full­yrð­ingar hennar um leka­málið í þing­sal vera mót­sagna­kenndar eða ekki geta stað­ist. Eftir að boð nefnd­ar­innar var ítrekað þann 12. mars afþakk­aði Hanna Birna form­lega boðið bréfleiðis fjórum dögum síðar.

Óheppilegt að Hanna Birna hafi ekki viljað ræða lekamálið


Í Eyjunni í kvöld sagði Helgi Hjörvar: „Það sem er ein­hvern veg­inn ólokið í þessu er fram­koma hennar eða sam­skipti við Alþingi sem ráð­herra. Vegna þess að það er erfitt, og nú hef ég ekki fengið tæki­færi til að ræða þetta við hana beint á nefnd­ar­fundi eins og ég hefði óskað, að líta öðru­vísi á en svo að hún hafi að minnsta kosti ekki upp­lýst þingið eins vel og hún gat, ef maður á ekki að segja að hún hafi bein­línis villt um fyrir þing­inu með ýmsum ummælum sem hún lét þar falla. Það er ekk­ert sem var tekið á í skýrslu umboðs­manns eða afsögn hennar sem ráð­herra laut að, og það varðar auð­vitað þann trúnað sem hún nýtur í þing­inu. Sagði hún okkur satt um það sem var að ger­ast? Það er óheppi­legt að hún hafi ekki tekið þá umræðu við nefnd­ina.“

Aðspurður um hvernig honum lit­ist á end­ur­komu Hönnu Birnu svar­aði Brynjar Níelsson, sem er vara­for­maður stjórn­skip­unar- og eft­ir­lits­nefndar: „Mér líst bara ágæt­lega á það. Hún er kjörin þing­maður og á að mæta í vinn­una.“ Aðspurður um hvort það ríki sátt innan þin­flokks­ins um end­ur­komu Hönnu Birnu svar­aði Brynjar: „Það held ég svona almennt, en ég svo sem hef ekki kannað það. Auðvitað getur verið að ein­hverjir hafi mis­mun­andi skoð­anir á því hvað sé best að gera og hvað sé skyn­sam­leg­ast fyrir hana að gera og svo fram­vegis, það er bara eins og gengur og ger­ist.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Lekamálið

FréttirLekamálið

Umboðs­maður Alþingis: Borgarar verða að geta treyst því að stjórn­mála­menn skipti sér ekki af lög­reglu­rann­sóknum

„Ég tel nauð­syn­legt sem umboðs­maður Alþingis að vera á varð­bergi um að slík þróun verði ekki í íslenskri stjórn­sýslu,“ segir umboðs­maður í umfjöllun sinni um hátt­semi Hönnu Birnu Krist­jáns­dóttur í árs­skýrslu fyrir 2015. Afskipti ráð­herra af störfum lög­regl­unnar drógu dilk á eftir sér.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár