Hanna Birna stefnir ótrauð á að setjast aftur á þing

Hanna Birna Krist­jáns­dóttir, fyrr­ver­andi inn­an­rík­is­ráð­herra og vara­þing­maður Sjálf­stæð­is­flokks­ins, hefur ekki til­kynnt skrif­stofu Alþingis um að hún sé vænt­an­leg aftur á þing. Þetta stað­festir Helgi Bern­ód­us­son, skrif­stofu­stjóri Alþingis, í sam­tali við Kjarnann.

Heim­ildir Kjarnans herma að Hanna Birna stefni ótrauð á að snúa aftur til þing­starfa í þar næstu viku.

Í bréfi sem Hanna Birna sendi Ögmundi Jónassyni, for­manni stjórn­skip­unar- og eft­ir­lits­nefndar Alþingis, 16. mars síð­ast­lið­inn, þar sem hún afþakkar boð nefnd­ar­innar um að ræða Leka­málið, kom jafn­framt fram að hún hygg­ist snúa aftur á Alþingi eftir miðjan apríl.

Hanna Birna sagði af sér sem inn­an­rík­is­ráð­herra 21. nóv­em­ber síð­ast­lið­inn vegna Leka­máls­ins og óskaði eftir ótíma­bundnu leyfi frá þing­störfum í kjöl­farið. Hún þiggur ekki þing­fara­kaup á meðan.

Kjarninn náði ekki tali af Hönnu Birnu í dag til að for­vitn­ast um hvenær von sé á henni aftur til þing­starfa. Sigríður Á. Andersen, vara­þing­maður Sjálf­stæð­is­flokks­ins sem tók sæti á Alþingi fyrir Hönnu Birnu, stað­festir í sam­tali við Kjarnann að hún hafi átt í nýlegum sam­skiptum við inn­an­rík­is­ráð­herr­ann fyrr­ver­andi þar sem hún hafi til­kynnt henni að engin breyt­ing hafi orðið á áformum hennar um að setj­ast aftur á þing.

Samkvæmt heim­ildum Kjarnans er hins vegar ekki von á Hönnu Birnu aftur til þing­starfa fyrr en í þar næstu viku.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Lekamálið

FréttirLekamálið

Umboðs­maður Alþingis: Borgarar verða að geta treyst því að stjórn­mála­menn skipti sér ekki af lög­reglu­rann­sóknum

„Ég tel nauð­syn­legt sem umboðs­maður Alþingis að vera á varð­bergi um að slík þróun verði ekki í íslenskri stjórn­sýslu,“ segir umboðs­maður í umfjöllun sinni um hátt­semi Hönnu Birnu Krist­jáns­dóttur í árs­skýrslu fyrir 2015. Afskipti ráð­herra af störfum lög­regl­unnar drógu dilk á eftir sér.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár