Íslandsmet sett í útflutningi - Afgangur af vöruskiptum

Verðmæti útflutn­ings í mars­mán­uði nam 63,4 millj­örðum króna á sama tíma og fluttar voru til lands­ins vörur fyrir 52,1 millj­arð króna. Vöru­skiptin, það er munur á verð­mæti útflutn­ings og inn­flutn­ings, voru þannig hag­stæð um 11,3 millj­arða króna, sam­kvæmt bráða­birgða­tölum Hagstofu Íslands sem birtar voru í dag.

Greining Íslands­banka fjallar um hag­stæð vöru­skiptin og bendir á að útflutn­ingur í mars sé sá mesti frá upp­hafi í einum mán­uði. Þá er afgang­ur­inn, um 11,3 millj­arðar króna, sá mesti frá því í nóv­em­ber 2013. Aukinn útflutn­ingur skýrist helst af útflutn­ingi sjáv­ar­af­urða fyrir 27,4 millj­arða króna og útflutn­ingi iðn­að­ar­vara fyrir 33,7 millj­arða króna. Inn­flutn­ingur í mars var yfir með­al­lagi síð­ustu tólf mán­aða en þó á svip­uðu róli, segir grein­ing Íslands­banka.

Nýjar tölur Hag­stof­unnar benda einnig til að met hafi verið slegið í vöru-útflutn­ingi á fyrsta árs­fjórð­ungi þessa árs. Inn­flutn­ingur nam 159,5 millj­örðum króna á fyrstu þremur mán­uðum árs­ins en virði útflutn­ings var 165,2 millj­arðar króna. Afgangur af vöru­skiptum var þannig 5,7 millj­arðar til sam­an­burðar við 3,5 millj­arða á sama tíma­bili í fyrra.

„Hér þarf þó að hafa í huga að umfangs­mikil flug­véla­kaup lit­uðu vöru­skipta­tölur febr­ú­ar­mán­aðar, þótt þar sé frekar um bók­halds­legt atriði að ræða en við­skipti sem end­ur­spegla gjald­eyr­is­hreyf­ingar,“ segir grein­ing bank­ans. Ef skip og flug­vélar eru und­an­skilin töl­unum þá var vöru­skipta-afgangur á fyrstu þremur mán­uð­unum 25,4 millj­arðar. Það er meira en fjór­faldur afgangur sama tíma­bils 2014. Það skýrist meðal ann­ars af auknum útflutn­ingi, hag­stæð­ari verð­þróun á sjáv­ar­af­urðum og áli, betri loðnu­ver­tíð og lík­lega auknum útflutn­ingi bol­fisks milli ára.

Hagstæð vöru- og þjónustuviðskipti á árinu


Grein­ing­ar­deildin spáir því að afgangur af vöru- og þjón­ustu­við­skiptum gæti orðið á bil­inu 180 til 200 millj­arðar króna á þessu ári. „Hag­stæð­ari við­skipta­kjör, til­tölu­lega mynd­ar­leg loðnu­ver­tíð og lít­ils­háttar aukn­ing fisk­veiði­kvóta milli ára skýra auk­inn vöru­út­flutn­ing, og vart þarf að taka fram hversu þungt hraður vöxtur ferða­þjón­ust­unnar vegur í auknum þjón­ustu­út­flutn­ingi. Á móti má búast við auknum inn­flutn­ingi vegna vax­andi inn­lendrar eft­ir­spurnar og auk­innar aðfanga­notk­unar útflutn­ings­greina á árinu.

Þessi mynd­ar­legi vöru- og þjón­ustu­af­gangur sem við spáum mun svo vænt­an­lega hjálpa til að við­halda nettó­inn­flæði gjald­eyris á mark­aði, styðja þar með við gengi krónu og liðka fyrir losun hafta, enda safnar Seðla­bank­inn jafnt og þétt gjald­eyri í forða sinn þessa dag­ana líkt og raunin var í fyrra,“ segir grein­ing­ar­deild Íslands­banka.


Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Ferð til fjár

SkýringFerð til fjár

Fjögur gröf sem útskýra fast­eigna­mark­að­inn

Í nýjasta riti Fjár­mála­stöð­ug­leika, árs­fjórð­ungs­legri skýrslu Seðla­banka Íslands, er nokkuð fjallað um þróun fast­eigna­verðs og þær hækk­anir sem orðið hafa á íbúða­verði að und­an­förnu. Þróunin á Íslandi er meðal ann­ars borin saman við önnur lönd en í skýrsl­unni segir að ekki séu merki um bólu­myndun á fast­eigna­mark­aðnum í heild. Engu að síður sé fast­eigna­verð orðið hátt á flesta mæli­kvarða í...
FréttirFerð til fjár

Vænt­ingar dvína í skugga kjara­við­ræðna

Vænt­inga­vísi­tala Gallups lækk­aði um 17 stig í apr­íl­mán­uði og mælist nú 84,3 stig. Lækkunin er sú mesta á vísi­töl­unni milli mán­aða í tæp tvö ár. Vísi­talan fór yfir 100 stig í mars síð­ast­liðnum en vísi­talan er mæld á bil­inu 0 til 200 stigug, þar sem gildið 100 þýðir að jafn­margir aðspurðra neyt­enda eru bjart­sýnir og svart­sýnir á stöðu og horfir...
FréttirFerð til fjár

Per­sónu­af­slátt­ur­inn er 610.825 krónur í ár

Per­sónu­af­sláttur ein­stak­linga er 610.825 krónur fyrir árið 2015 eða 50.902 krónur að með­al­tali á mán­uði. Það er hækkun um 4.848 krónur frá árinu 2014, eða um 404 krónur á mán­uði. Hækkunin nemur 0,8% en hún er lögum sam­kvæmt í takt við verð­bólgu­þróun. Fjallað er um per­sónu­af­slátt, stað­greiðslu og trygg­inga­gjald árs­ins 2015 í grein í Tíund, frétta­blaði Rík­is­skatt­stjóra. Fram kemur að...
FréttirFerð til fjár

Verð­bólgan étur kaup­mátt­inn

Hækkun verð­lags í mars­mán­uði varð til þess að kaup­máttur launa dróst saman um 0,8 pró­sent. Kaup­máttur launa, eins og hann mælist sam­kvæmt vísi­tölu Hag­stof­unnar, hafði hækkað nán­ast stans­laust í tólf mán­uði en dróst núna saman. Árs­hækkun kaup­máttar launa mælist engu að síður um 4 pró­sent, en árs­hækkun mæld­ist 5,6 pró­sent í febr­úar. Hag­stofan birti í dag upp­færða vísi­tölu launa í...
FréttirFerð til fjár

Íslend­ingar eru sam­vinnu­þýð­ari en aðrir

Íslenskir stúd­entar eru sam­vinnu­þýð­ari en banda­rískir stúd­entar og leggja sig harðar fram við að halda hópa­vinnu gang­andi. Ýmsir félags­þættir benda til að Íslend­ingar sam­svari sig almennt betur í hópi fólks og séu það sem kallað er á ensku group minded á kostnað ein­stak­lings­hyggju. [caption id="attachment_26395" align="alignleft" width="139"] Dr. Anna Gunn­þórs­dóttir.[/caption]Þetta sýna nið­ur­stöður rann­sóknar sem Dr. Anna Gunn­þórs­dóttir hefur unnið að...
SkýringFerð til fjár

Deilt um sam­band launa­hækk­ana og verð­bólgu

Kröfur margra stétt­ar­fé­laga í yfir­stand­andi kjara­deilum á vinnu­mark­aði hljóða upp á veru­lega hækkun launa­taxta og dæmi eru um að kröfur hljóði upp á um 20 pró­sent hækkun lægstu launa. Staðan sem uppi er á vinnu­mark­aði hefur að mati pen­inga­stefnu­nefndar Seðla­bank­ans verið ein helsta ástæða fyrir því að halda stýri­vöxtum óbreyttum und­an­farna mán­uði, þrátt fyrir lága verð­bólgu sem er undir 2,5...

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár