Bogi útskýrir stýrivexti

„Stýri­vextir eru þeir vextir sem Seðla­bank­inn leggur á lán sem bank­inn veitir bönkum og spari­sjóðum. Ef bank­arnir þurfa að greiða Seðla­bank­anum hærri vexti, þá þurfa bank­arnir að rukka þig um hærri vexti,“ sagði Bogi Ágústs­son frétta­maður við Helga Seljan í síð­asta þætti Ferðar til fjár sem sýndir voru á RÚV. Helgi trufl­aði Boga við lestur frétta og vildi vita hvað stýri­vextir eru. Hægt er að sjá þætt­ina hér.

„Ef stýri­vextir hækka þá er Seðla­bank­inn að nota vext­ina til þess að draga úr eft­ir­spurn og minnka þenslu í sam­fé­lag­inu,“ sagði Bogi. Þegar stýri­vextir hækka þá versna þau vaxta­kjör sem bank­arnir geta boðið almenn­ingi og fyr­ir­tækjum í land­inu. Það verður því dýr­ara að taka lán.


„Ef stýri­vextir hækka, á ég þá að hætta að eyða pen­ingum,“ spurði Helgi.


„Þú ræður því, og metur hverju þú hefur efni á, en það þýðir að ef þú tekur lán þá þarftu að borga hærra verð fyrir það,“ sagði Bogi.


Stýri­vextir eru helsta tæki Seðla­banka Íslands til þess að halda verð­bólgu í skefjum. Ef þensla er í sam­fé­lag­inu og verð­bólgan há, þá hækkar Seðla­bank­inn stýr­ir­vext­ina. Við­skipta­bank­arnir og spari­sjóðir eiga í við­skiptum við Seðla­bank­ann, fá hjá honum lán, og stýri­vext­irnir ákveða hversu hag­stæð þessi lán eru fyrir bank­ana. Þessi vaxta­kjör hafa síðan áhrif á almenna vexti á mark­aði, til dæmis á hús­næð­is­lánum og öðrum lánum til almenn­ings og fyr­ir­tækja, vegna þess að ef lána­kjör bank­ans hækka, þá þarf hann að bregð­ast við með því að hækka vexti á sínum lán­veit­ingum.


Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Ferð til fjár

SkýringFerð til fjár

Fjögur gröf sem útskýra fast­eigna­mark­að­inn

Í nýjasta riti Fjár­mála­stöð­ug­leika, árs­fjórð­ungs­legri skýrslu Seðla­banka Íslands, er nokkuð fjallað um þróun fast­eigna­verðs og þær hækk­anir sem orðið hafa á íbúða­verði að und­an­förnu. Þróunin á Íslandi er meðal ann­ars borin saman við önnur lönd en í skýrsl­unni segir að ekki séu merki um bólu­myndun á fast­eigna­mark­aðnum í heild. Engu að síður sé fast­eigna­verð orðið hátt á flesta mæli­kvarða í...
FréttirFerð til fjár

Vænt­ingar dvína í skugga kjara­við­ræðna

Vænt­inga­vísi­tala Gallups lækk­aði um 17 stig í apr­íl­mán­uði og mælist nú 84,3 stig. Lækkunin er sú mesta á vísi­töl­unni milli mán­aða í tæp tvö ár. Vísi­talan fór yfir 100 stig í mars síð­ast­liðnum en vísi­talan er mæld á bil­inu 0 til 200 stigug, þar sem gildið 100 þýðir að jafn­margir aðspurðra neyt­enda eru bjart­sýnir og svart­sýnir á stöðu og horfir...
FréttirFerð til fjár

Per­sónu­af­slátt­ur­inn er 610.825 krónur í ár

Per­sónu­af­sláttur ein­stak­linga er 610.825 krónur fyrir árið 2015 eða 50.902 krónur að með­al­tali á mán­uði. Það er hækkun um 4.848 krónur frá árinu 2014, eða um 404 krónur á mán­uði. Hækkunin nemur 0,8% en hún er lögum sam­kvæmt í takt við verð­bólgu­þróun. Fjallað er um per­sónu­af­slátt, stað­greiðslu og trygg­inga­gjald árs­ins 2015 í grein í Tíund, frétta­blaði Rík­is­skatt­stjóra. Fram kemur að...
FréttirFerð til fjár

Verð­bólgan étur kaup­mátt­inn

Hækkun verð­lags í mars­mán­uði varð til þess að kaup­máttur launa dróst saman um 0,8 pró­sent. Kaup­máttur launa, eins og hann mælist sam­kvæmt vísi­tölu Hag­stof­unnar, hafði hækkað nán­ast stans­laust í tólf mán­uði en dróst núna saman. Árs­hækkun kaup­máttar launa mælist engu að síður um 4 pró­sent, en árs­hækkun mæld­ist 5,6 pró­sent í febr­úar. Hag­stofan birti í dag upp­færða vísi­tölu launa í...
FréttirFerð til fjár

Íslend­ingar eru sam­vinnu­þýð­ari en aðrir

Íslenskir stúd­entar eru sam­vinnu­þýð­ari en banda­rískir stúd­entar og leggja sig harðar fram við að halda hópa­vinnu gang­andi. Ýmsir félags­þættir benda til að Íslend­ingar sam­svari sig almennt betur í hópi fólks og séu það sem kallað er á ensku group minded á kostnað ein­stak­lings­hyggju. [caption id="attachment_26395" align="alignleft" width="139"] Dr. Anna Gunn­þórs­dóttir.[/caption]Þetta sýna nið­ur­stöður rann­sóknar sem Dr. Anna Gunn­þórs­dóttir hefur unnið að...
SkýringFerð til fjár

Deilt um sam­band launa­hækk­ana og verð­bólgu

Kröfur margra stétt­ar­fé­laga í yfir­stand­andi kjara­deilum á vinnu­mark­aði hljóða upp á veru­lega hækkun launa­taxta og dæmi eru um að kröfur hljóði upp á um 20 pró­sent hækkun lægstu launa. Staðan sem uppi er á vinnu­mark­aði hefur að mati pen­inga­stefnu­nefndar Seðla­bank­ans verið ein helsta ástæða fyrir því að halda stýri­vöxtum óbreyttum und­an­farna mán­uði, þrátt fyrir lága verð­bólgu sem er undir 2,5...

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár