Kjarninn birtir bréf Sigríðar Bjarkar til Persónuverndar

Kjarninn hefur bréf sem Sigríður Björk Guð­jóns­dóttir, lög­reglu­stjóri á höf­uð­borg­ar­svæð­inu, sendi Per­sónu­vernd þann 30. jan­úar síð­ast­lið­inn. Bréfið má rekja til athug­unar Per­sónu­verndar á sam­skiptum Sigríðar Bjarkar, þáver­andi lög­reglu­stjóra á Suð­ur­nesjum, og Gísla Freys Val­dórs­sonar, þáver­andi aðstoð­ar­manns Hönnu Birnu Krist­jáns­dóttur inn­an­rík­is­ráð­herra. Hægt er að nálg­ast bréfið hér.

Eins og kunn­ugt er braut Sigríður Björk lög um per­sónu­vernd og með­ferð per­sónu­upp­lýs­inga er hún miðl­aði grein­ar­gerð um hæl­is­leit­and­ann Tony Omos til Gísla Freys. Þá er í úrskurði Per­sónu­verndar gerðar alvar­legar athuga­semdir við að miðl­unin hafi farið í bága við kröfur um upp­lýs­inga­ör­yggi, þar sem ekki var beitt sér­stökum ráð­stöf­unum á borð við dulkóðun eða læs­ingu með sterku lyk­il­orði.

Svar Sigríðar Bjarkar fyrr­greindu bréfi til Per­sónu­verndar er áhuga­vert hvað þetta varðar. Þar segir: „Ekki hefur tíðkast að gera sér­stakar ráð­staf­anir við send­ingu pósta til inn­an­rík­is­ráðu­neytis né hafa tölvu­póstar frá ráðu­neyt­inu verið sér­stak­lega auð­kenndir, til dæmis með atbeina raf­rænna skil­ríkja eða þess háttar.“

Póstþjónn Stjórnarráðsins studdi ekki dulkóðuð samskipti


Í bréfi Sigríðar Bjarkar kemur fram að Rík­is­lög­reglu­stjóri reki mið­lægt upp­lýs­inga- og fjar­skipta­kerfi lög­reglu. Net­fjar­skipti á neti lög­regl­unnar séu dulkóðuð og því séu send­ingar á borð við tölvu­pósta dulkóð­aðar á milli starfs­manna innan lög­reglu­nets­ins. Póst­þjónn rík­is­lög­reglu­stjóra er þannig stilltur að við hverja send­ingu á ytri póst­þjón spyr hann mót­að­il­ann hvort hann geti tekið við dulkóð­aðri send­ingu. Ef svarið er já, fer tölvu­póst­ur­inn dulkóð­aður frá einum póst­þjóni til ann­ars. Ef svarið er nei fer hins vegar póst­ur­inn ódulkóð­aður frá póst­þjóni lög­regl­unnar.

Eftir fyr­ir­spurn Per­sónu­verndar um öryggi áður­nefndrar póst­send­ingar Sigríðar Bjarkar á við­kvæmum per­sónu­upp­lýs­ingum til Gísla Freys, leit­aði Sigríður upp­lýs­inga hjá tölvu­deild rík­is­lög­reglu­stjóra, að því er fram kemur í bréfi hennar. „Í ljós kom að póst­þjónn Stjórn­ar­ráðs­ins studdi ekki á þeim tíma dulkóðuð sam­skipti. Slík til­högun varð hins vegar virk hjá þeim síðla árs 2014.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Lekamálið

FréttirLekamálið

Umboðs­maður Alþingis: Borgarar verða að geta treyst því að stjórn­mála­menn skipti sér ekki af lög­reglu­rann­sóknum

„Ég tel nauð­syn­legt sem umboðs­maður Alþingis að vera á varð­bergi um að slík þróun verði ekki í íslenskri stjórn­sýslu,“ segir umboðs­maður í umfjöllun sinni um hátt­semi Hönnu Birnu Krist­jáns­dóttur í árs­skýrslu fyrir 2015. Afskipti ráð­herra af störfum lög­regl­unnar drógu dilk á eftir sér.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár