Skattframtalið: Þetta máttu draga frá tekjum

Skila­frestur skatt­fram­tals ein­stak­linga er til föstu­dags­ins 20. mars næst­kom­andi en fram­lengdur skila­frestur getur lengst varið til 31. mars. Fyrir flesta er auð­velt að ganga frá fram­tal­inu, örfáir smellir á vef­síðu skatts­ins klára dæmið.

En það er ýmis­legt sem hafa ber í huga, til að mynda það sem hægt er að draga frá tekjum. Guðrún Björg Braga­dóttir, verk­efna­stjóri á skatta- og lög­fræðisviði KPMG tók saman helstu atriði um frá­drátt­ar­bæra liði, að beiðni Kjarnans og Stofn­unar um fjár­mála­læsi. Fékkstu öku­tækja­styrk, dag­pen­inga, rann­sókn­ar­styrk eða glímdir þú við veik­indi á liðnu ári? Hér að neðan má sjá þau atriði sem gott er að hafa í huga við skatt­fram­tals­gerð­ina. Einnig er að finna ágætar upp­lýs­ingar um fram­tals­skil á vef Rík­is­skatt­stjóra.

Skattframtal einstaklinga 2015


Frádráttur frá tekjum


Öku­tækja­styrkur

  • Nýjar reglur tóku gildi þann 1. jan­úar 2014.
  • Frá öku­tækja­styrk heim­il­ast til frá­dráttar til­tek­inn stig­lækk­andi kostn­aður á hvern ekinn km. í þágu launa­greið­anda.
  • Ekki er lengur þörf á að halda saman öllum rekstr­ar­kostn­aði bif­reiða.
  • Skilyrði fyrir frá­drætt­inum eru að fyrir liggi skrif­legur afnota­samn­ingur á milli laun­þega og launa­greið­anda þar sem akst­ur­s­er­indum er skil­merki­lega lýst og að færð hafi verið akst­urs­dag­bók.

Dag­pen­ingar

  • Á móti fengnum dag­pen­ingum er heim­ilt að færa til frá­dráttar ferða- og dval­ar­kostnað sem laun­þegi hefur sann­an­lega greitt vegna ferða á vegum launa­greið­anda.
  • Ef dag­pen­ingar eru undir 1.000.000 kr. á árinu 2014 þarf ekki að fylla dag­pen­inga­blað út, frá­drátt­ur­inn fær­ist sjálf­krafa á fram­talið.

Iðgjöld í líf­eyr­is­sjóð

  • Hámarks­frá­dráttur er 8%, 4% vegna skyldu­ið­gjalda í líf­eyr­is­sjóð og 2 – 4% vegna iðgjalda í sér­eigna­sjóð.
  • Frá­drátt­ur­inn hækk­aði úr 6% í 8% frá og með 1. júlí 2014.
  • Frá­drátt­ur­inn er yfir­leitt for­skráður á fram­talið af inn­sendum launa­miða, líkt og launin.

Frá­dráttur á móti náms-, rann­sóknar- og vís­inda­styrkjum

  • Heimilt er að draga frá kostnað á móti náms-, rann­sóknar- og vís­inda­styrkjum.
  • Þó er ekki heim­ilt að draga frá kostnað á móti náms­styrkjum vegna náms sem veitir rétt til að stunda til­tek­inn atvinnu­rekstur og sjálf­stæða starf­semi.
  • Gjald­færslu kostn­aðar við meist­ara­nám hefur af skatt­yf­ir­völdum verið synjað á þeirri for­sendu. Kostn­aður vegna náms í hinu almenna skóla­kerfi telst almennt vera einka­kostn­aður og því ekki frá­drátt­ar­bær.
  • Þá er ekki heim­ilt að draga frá náms­styrkjum kostnað vegna tóm­stunda­náms.

Frá­dráttur frá öðrum styrkjum og starfstengdum greiðslum

  • Kostn­aður vegna lík­ams­ræktar að hámarki fjár­hæð styrks­ins eða mest 50.000 kr. (hækkar í 55.000 kr. á tekju­ár­inu 2015).
  • Frá­dráttur á móti sam­göngu­greiðslum að hámarki 84.000 kr.

Lækkun vegna fram­færslu ung­menna

  • Hægt er að sækja um lækkun á tekju­skatts­stofni hafi fram­telj­andi á fram­færi sínu ung­menni sem eru við nám eða hafa að öðrum ástæðum það lágar tekjur að þær duga ekki til fram­færslu.
  • Hér er fyrst og fremst átt við ung­menni á aldr­inum 16 – 21 ára sem ekki stunda láns­hæft nám.
  • Mesta lækkun á tekju­skatts­stofni fram­fær­anda við álagn­ingu 2015 er 348.000 kr. miðað við að ung­menni hafi engar tekjur haft.
  • Frá þess­ari fjár­hæð dregst 1/3 af tekjum ungennis þannig að þegar tekjur þess eru orðnar 1.044.000 kr. fellur réttur til íviln­unar fram­fær­anda niður.

Lækkun á tekjuskattsstofni við tilteknar aðstæður


Veikindi, slys, elli­hrör­leiki eða manns­lát

  • Ef veik­indi, slys, elli­hrör­leiki eða manns­lát hafa í för með sér veru­lega skert gjald­þol. Fyrst og fremst kemur til álita að lækka skatt­stofna skv. þessum lið ef til hefur fallið óbættur kostn­aður sem fram­telj­andi hefur greitt sjálfur og er umfram það sem telst venju­legur kostn­aður, t.d. vegna lyfja og lækn­is­hjálpar.
  • Einnig er heim­ilt að lækka auð­legð­ar­skatt­stofn af þessum sömu orsökum.

Veikindi/fötlun barns


  • Ef maður hefur á fram­færi sínu barn sem haldið er lang­vinnum sjúk­dómi eða fötlun sem hefur í för með sér veru­leg óbætt útgjöld umfram venju­legan fram­færslu­kostnað sem

  • greidd eru af fram­fær­endum.


Fram­færsla vanda­manna

  • Ef maður hefur for­eldra eða aðra vanda­menn á fram­færi sínu, enda geti þeir ekki sjálfir staðið undir fram­færslu sinni.


Eigna­tjón

  • Hafi maður orðið fyrir veru­legu eigna­tjóni sem hann hefur ekki fengið bætt. Með veru­legu eigna­tjóni er hér átt við að fjár­hags­legar afleið­ingar tjóns sem verður á eignum manns skerði gjald­þol hans. Ívilnun kemur ekki til álita ef mögu­legt er að fá tjónið bætt úr hendi ann­ars aðila.


Tapaðar kröfur

  • Hafi gjald­þol manns skerst veru­lega vegna tapa á útistand­andi kröfum sem ekki tengj­ast atvinnu­rekstri hans. Þetta gildir m.a. um ábyrgðir sem fallið hafa á fram­telj­anda til greiðslu án mögu­leika til end­ur­kröfu.


Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Ferð til fjár

SkýringFerð til fjár

Fjögur gröf sem útskýra fast­eigna­mark­að­inn

Í nýjasta riti Fjár­mála­stöð­ug­leika, árs­fjórð­ungs­legri skýrslu Seðla­banka Íslands, er nokkuð fjallað um þróun fast­eigna­verðs og þær hækk­anir sem orðið hafa á íbúða­verði að und­an­förnu. Þróunin á Íslandi er meðal ann­ars borin saman við önnur lönd en í skýrsl­unni segir að ekki séu merki um bólu­myndun á fast­eigna­mark­aðnum í heild. Engu að síður sé fast­eigna­verð orðið hátt á flesta mæli­kvarða í...
FréttirFerð til fjár

Vænt­ingar dvína í skugga kjara­við­ræðna

Vænt­inga­vísi­tala Gallups lækk­aði um 17 stig í apr­íl­mán­uði og mælist nú 84,3 stig. Lækkunin er sú mesta á vísi­töl­unni milli mán­aða í tæp tvö ár. Vísi­talan fór yfir 100 stig í mars síð­ast­liðnum en vísi­talan er mæld á bil­inu 0 til 200 stigug, þar sem gildið 100 þýðir að jafn­margir aðspurðra neyt­enda eru bjart­sýnir og svart­sýnir á stöðu og horfir...
FréttirFerð til fjár

Per­sónu­af­slátt­ur­inn er 610.825 krónur í ár

Per­sónu­af­sláttur ein­stak­linga er 610.825 krónur fyrir árið 2015 eða 50.902 krónur að með­al­tali á mán­uði. Það er hækkun um 4.848 krónur frá árinu 2014, eða um 404 krónur á mán­uði. Hækkunin nemur 0,8% en hún er lögum sam­kvæmt í takt við verð­bólgu­þróun. Fjallað er um per­sónu­af­slátt, stað­greiðslu og trygg­inga­gjald árs­ins 2015 í grein í Tíund, frétta­blaði Rík­is­skatt­stjóra. Fram kemur að...
FréttirFerð til fjár

Verð­bólgan étur kaup­mátt­inn

Hækkun verð­lags í mars­mán­uði varð til þess að kaup­máttur launa dróst saman um 0,8 pró­sent. Kaup­máttur launa, eins og hann mælist sam­kvæmt vísi­tölu Hag­stof­unnar, hafði hækkað nán­ast stans­laust í tólf mán­uði en dróst núna saman. Árs­hækkun kaup­máttar launa mælist engu að síður um 4 pró­sent, en árs­hækkun mæld­ist 5,6 pró­sent í febr­úar. Hag­stofan birti í dag upp­færða vísi­tölu launa í...
FréttirFerð til fjár

Íslend­ingar eru sam­vinnu­þýð­ari en aðrir

Íslenskir stúd­entar eru sam­vinnu­þýð­ari en banda­rískir stúd­entar og leggja sig harðar fram við að halda hópa­vinnu gang­andi. Ýmsir félags­þættir benda til að Íslend­ingar sam­svari sig almennt betur í hópi fólks og séu það sem kallað er á ensku group minded á kostnað ein­stak­lings­hyggju. [caption id="attachment_26395" align="alignleft" width="139"] Dr. Anna Gunn­þórs­dóttir.[/caption]Þetta sýna nið­ur­stöður rann­sóknar sem Dr. Anna Gunn­þórs­dóttir hefur unnið að...
SkýringFerð til fjár

Deilt um sam­band launa­hækk­ana og verð­bólgu

Kröfur margra stétt­ar­fé­laga í yfir­stand­andi kjara­deilum á vinnu­mark­aði hljóða upp á veru­lega hækkun launa­taxta og dæmi eru um að kröfur hljóði upp á um 20 pró­sent hækkun lægstu launa. Staðan sem uppi er á vinnu­mark­aði hefur að mati pen­inga­stefnu­nefndar Seðla­bank­ans verið ein helsta ástæða fyrir því að halda stýri­vöxtum óbreyttum und­an­farna mán­uði, þrátt fyrir lága verð­bólgu sem er undir 2,5...

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár