Metri er alltaf metri en krónan breytist

Lúðvík Elíasson, hag­fræð­ingur hjá Seðla­banka Íslands, fjall­aði um virði pen­inga í erindi á ör-ráð­stefnu í Háskól­anum í Reykja­vík á mið­viku­dag, í til­efni af Alþjóð­legri fjár­mála­læs­isviku. „Við notum pen­inga sem mæli­ein­ingu en það er vand­með­farið, því aðrar mæli­ein­ingar sem við notum eru fast-skil­greindar. Það eru pen­ingar ekki,“ sagði Lúðvík og benti máli sínu til stuðn­ings að metri væri alltaf metri og að kíló væri alltaf kíló.

„Virði pen­inga finnum við út frá því verð­mæti sem við erum til­búin að gefa fyrir vör­una. Við getum alltaf skipt á pen­ingum fyrir aðra vöru,“ sagði hann og tók dæmi af gossjálfsal­anum í Seðla­bank­anum, þar sem kók­flaska kostar 230 krónur. „Það þýðir að ein króna kostar 1/230 af kók­flösku. Ef virði pen­inga breyt­ist, þá breyt­ist verð annnarra vara talið í pen­ingum. Það kall­ast breyt­ing á verð­lagi. Við tölum um verð­bólgu ef virði pen­inga minnkar og verð­hjöðnun ef það eykst,· sagði Lúðík.

Bíómiðinn hækkað en er ódýrari

Dæmi um hvernig verð­gildi pen­inga hefur breyst er verð­hækkun á bíómiða. Bíómiði kost­aði 800 krónur árið 2003 en kost­aði 1.300 krónur árið 2013. Hann hefur því hækkað á þessum tíma um 62 pró­sent. Á sama tíma hafa galla­buxur hækkað um 122%.


„Ef við mælum þetta aftur á móti með sömu ein­ingu, rétt eins og við myndum nota metra ef við værum að mæla vega­lengd, og notum verð­gili krón­unnar frá 2007, þá hefur bíómið­inn í raun lækkað um 10 pró­sent. Bíómið­inn er orð­inn ódýr­ari, þó við borgum fleiri krónur fyrir hann.“

Hvað ef metrinn rýrnar?

Frá árunum 2003 til 2013 rýrn­aði verð­gildi krón­unnar um 45%, útskýrði Lúðvík. „Hvað hefði gerst ef metr­inn hefði rýrnað um 45 pró­sent,“ spurði hann og sagði 388 kíló­metra vega­lengd­ina milli Reykja­víkur og Akur­eyrar árið 2003 þá vera 705 kíló­metra árið 2013. „Við þyrftum alltaf að vera að upp­færa kortin, rétt eins og við upp­færum verð­skrárnar.“


Lúðvík sagði þennan mis­skiln­ing gæta víða, það er að fólk tali eins og verð­gildi krón­unnar hafi verið það sama í gegnum árin. „Svona talar fólk oft um lánin sín, sem það hefur borgað mikið af en þau hafi samt hækkað. Það hefur borgað í allt annarri ein­ingu,“ sagði Lúðvík og tók fram að slíkar villur hafi ratað víða, til dæmis í skýrslu frá Fjár­mála­eft­ir­lit­inu og í nið­ur­stöðu dóms.


Hér má sjá glær­urnar frá erindi Lúðvíks og hér má sjá erindi hans sem hefst á 41. mín­útu. Lúðvík tók sér­stak­lega fram að skoð­anir hans end­ur­spegla ekki skoð­anir Seðla­bank­ans.


Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Ferð til fjár

SkýringFerð til fjár

Fjögur gröf sem útskýra fast­eigna­mark­að­inn

Í nýjasta riti Fjár­mála­stöð­ug­leika, árs­fjórð­ungs­legri skýrslu Seðla­banka Íslands, er nokkuð fjallað um þróun fast­eigna­verðs og þær hækk­anir sem orðið hafa á íbúða­verði að und­an­förnu. Þróunin á Íslandi er meðal ann­ars borin saman við önnur lönd en í skýrsl­unni segir að ekki séu merki um bólu­myndun á fast­eigna­mark­aðnum í heild. Engu að síður sé fast­eigna­verð orðið hátt á flesta mæli­kvarða í...
FréttirFerð til fjár

Vænt­ingar dvína í skugga kjara­við­ræðna

Vænt­inga­vísi­tala Gallups lækk­aði um 17 stig í apr­íl­mán­uði og mælist nú 84,3 stig. Lækkunin er sú mesta á vísi­töl­unni milli mán­aða í tæp tvö ár. Vísi­talan fór yfir 100 stig í mars síð­ast­liðnum en vísi­talan er mæld á bil­inu 0 til 200 stigug, þar sem gildið 100 þýðir að jafn­margir aðspurðra neyt­enda eru bjart­sýnir og svart­sýnir á stöðu og horfir...
FréttirFerð til fjár

Per­sónu­af­slátt­ur­inn er 610.825 krónur í ár

Per­sónu­af­sláttur ein­stak­linga er 610.825 krónur fyrir árið 2015 eða 50.902 krónur að með­al­tali á mán­uði. Það er hækkun um 4.848 krónur frá árinu 2014, eða um 404 krónur á mán­uði. Hækkunin nemur 0,8% en hún er lögum sam­kvæmt í takt við verð­bólgu­þróun. Fjallað er um per­sónu­af­slátt, stað­greiðslu og trygg­inga­gjald árs­ins 2015 í grein í Tíund, frétta­blaði Rík­is­skatt­stjóra. Fram kemur að...
FréttirFerð til fjár

Verð­bólgan étur kaup­mátt­inn

Hækkun verð­lags í mars­mán­uði varð til þess að kaup­máttur launa dróst saman um 0,8 pró­sent. Kaup­máttur launa, eins og hann mælist sam­kvæmt vísi­tölu Hag­stof­unnar, hafði hækkað nán­ast stans­laust í tólf mán­uði en dróst núna saman. Árs­hækkun kaup­máttar launa mælist engu að síður um 4 pró­sent, en árs­hækkun mæld­ist 5,6 pró­sent í febr­úar. Hag­stofan birti í dag upp­færða vísi­tölu launa í...
FréttirFerð til fjár

Íslend­ingar eru sam­vinnu­þýð­ari en aðrir

Íslenskir stúd­entar eru sam­vinnu­þýð­ari en banda­rískir stúd­entar og leggja sig harðar fram við að halda hópa­vinnu gang­andi. Ýmsir félags­þættir benda til að Íslend­ingar sam­svari sig almennt betur í hópi fólks og séu það sem kallað er á ensku group minded á kostnað ein­stak­lings­hyggju. [caption id="attachment_26395" align="alignleft" width="139"] Dr. Anna Gunn­þórs­dóttir.[/caption]Þetta sýna nið­ur­stöður rann­sóknar sem Dr. Anna Gunn­þórs­dóttir hefur unnið að...
SkýringFerð til fjár

Deilt um sam­band launa­hækk­ana og verð­bólgu

Kröfur margra stétt­ar­fé­laga í yfir­stand­andi kjara­deilum á vinnu­mark­aði hljóða upp á veru­lega hækkun launa­taxta og dæmi eru um að kröfur hljóði upp á um 20 pró­sent hækkun lægstu launa. Staðan sem uppi er á vinnu­mark­aði hefur að mati pen­inga­stefnu­nefndar Seðla­bank­ans verið ein helsta ástæða fyrir því að halda stýri­vöxtum óbreyttum und­an­farna mán­uði, þrátt fyrir lága verð­bólgu sem er undir 2,5...

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár