Innanríksráðuneytið hafnar beiðni Kjarnans um gögn vegna lekamálsins

Inn­an­rík­is­ráðu­neytið hefur hafnað beiðni Kjarnans um gögn varð­andi leka­málið svo­kall­aða, þar sem með­ferð hennar þykir of tíma­frek eða mann­afls­frek.

Kjarninn sendi inn­an­rík­is­ráðu­neyt­inu fyr­ir­spurn fyrir rúmum mán­uði síðan, nánar til­tekið þann 2. febr­úar síð­ast­lið­inn, þar sem farið var fram á afhend­ingu á öllum kvitt­unum, álits­gerðum og tölvu­póst­sam­skiptum í tengslum við lög­fræði- og almanna­tengsla­ráð­gjöf sem fyrr­ver­andi ráð­herra eða ráðu­neytið leit­aði eftir í tengslum við leka­málið svo­kall­aða. Í fyr­ir­spurn Kjarnans var vísað til upp­lýs­inga­laga.

Í svari inn­an­rík­is­ráðu­neyt­is­ins sem barst Kjarn­anum í dag, eftir ítrek­aðar óskir um að erindi Kjarnans yrði svarað, segir að umbeðin gögn séu ekki aðgengi­leg og sam­an­tekt þeirra útheimti umtals­verða vinnu í ráðu­neyt­inu.

Inn­an­rík­is­ráðu­neytið hafnar að verða við beiðni Kjarnans um gögn, með vísan til upp­lýs­inga­laga þar sem kveðið er á um að beiðni megi í und­an­tekn­ing­ar­til­fellum hafna ef: „Meðferð hennar tæki svo mik­inn tíma eða krefð­ist svo mik­illar vinnu að ekki telst af þeim sökum fært að verða við henni.“

Kjarninn hefur ákveðið að kæra ákvörðun inn­an­rík­is­ráðu­neyt­is­ins til úrskurð­ar­nefndar um upp­lýs­inga­mál.

Að end­ingu biðst inn­an­rík­is­ráðu­neytið vel­virð­ingar á því hversu seint fyr­ir­spurn Kjarnans var svarað.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Lekamálið

FréttirLekamálið

Umboðs­maður Alþingis: Borgarar verða að geta treyst því að stjórn­mála­menn skipti sér ekki af lög­reglu­rann­sóknum

„Ég tel nauð­syn­legt sem umboðs­maður Alþingis að vera á varð­bergi um að slík þróun verði ekki í íslenskri stjórn­sýslu,“ segir umboðs­maður í umfjöllun sinni um hátt­semi Hönnu Birnu Krist­jáns­dóttur í árs­skýrslu fyrir 2015. Afskipti ráð­herra af störfum lög­regl­unnar drógu dilk á eftir sér.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár