Kjarninn birtir úrskurð Persónuverndar í heild sinni

Eins og fram hefur komið má rekja til­urð skoð­unar Per­sónu­verndar á sam­skiptum Sigríðar Bjarkar Guð­jóns­dóttur, þáver­andi lög­reglu­stjóra á Suð­ur­nesjum, og Gísla Freys Val­dórs­sonar, þáver­andi aðstoð­ar­manns Hönnu Birnu Krist­jáns­dóttur inn­an­rík­is­ráð­herra, til fréttar sem birt­ist í DV 18. nóv­em­ber síð­ast­lið­inn þar sem greint var frá sam­skiptum tví­menn­ing­anna við árdaga leka­máls­ins svo­kall­aða.

Í frétt­inni var greint frá því að Sigríður Björk og Gísli Freyr hefðu talað tví­vegis saman í síma, dag­inn sem fyrstu frétt­irnar um hæl­is­leit­and­ann Tony Omos birt­ust í fjöl­miðlum. Þá hefur Sigríður Björk við­ur­kennt að hafa sent Gísla Frey grein­ar­gerð um Tony Omos í tölvu­pósti, síðar þennan sama dag.

Samkvæmt úrskurði Per­sónu­verndar inni­hélt skjalið sem Sigríður Björk sendi Gísla Frey, upp­lýs­ingar um rann­sókn á saka­máli þar sem Tony Omos hafði stöðu grun­aðs manns. Þá hafði skjalið að geym upp­lýs­ingar um tengsl hans við aðra ein­stak­linga sem þar eru nafn­greindir, þar á meðal Evelyn Glory Joseph. Um var að ræða drög að skýrslu sem unnin er sam­kvæmt lögum um með­ferð saka­mála, en í slíkri skýrslu er getið ein­stakra rann­sókn­ar­að­gerða og nið­ur­stöðu þeirra. Skjalið sem Sigríður Björk sendi Gísla Frey var ódag­sett og óund­ir­ritað.

Í bréfi sem Sigríður Björk sendi Per­sónu­vernd þann 3. des­em­ber 2014 kveðst hún hafa verið í góðri trú og að hún hafi ekki haft ástæðu til að ætla annað en að aðstoð­ar­maður inn­an­rík­is­ráð­herra hafi óskað eftir gögn­unum í umboði ráð­herra. Í bréfi Sigríðar til Per­sónu­verndar segir: „Ég hafði ekk­ert til­efni til að álykta, eða ætla, að ann­ar­legar ástæður gætu legið að baki beiðni aðstoð­ar­manns­ins um upp­lýs­ingar. Mér var kunn­ugt um að málið var til með­ferðar hjá ráðu­neyt­inu [...] Ég gekk út frá því að aðstoð­ar­maður ráð­herra væri hluti af þeim vinnu­hópi sem að mál­inu væri að vinna innan ráðu­neyt­is­ins og sendi honum þar af leið­andi grein­ar­gerð­ina.“


Samskipti um tölvupóstsamskipti


Per­sónu­vernd óskaði eftir tölvu­póst­sam­skiptum Gísla Freys og Sigríðar Bjarkar. Gísli Freyr svar­aði því til að hann hefði þau ekki undir höndum. Sigríður Björk svar­aði með bréfi þann 30. jan­úar síð­ast­lið­inn. Með því bréfi fylgdu upp­lýs­ingar um sam­skipti inn­an­húss hjá lög­regl­unni á Suð­ur­nesjum varð­andi skýrslu­drögin um Tony Omos og tölvu­póst­sam­skiptin við Gísla Freyr.

Í nið­ur­stöðu Per­sónu­verndar segir hins vegar að þar hafi verið um að ræða „útprentun af tölvu­bréfi lög­reglu­stjóra til hans frá 20. nóv­em­ber 2013, auð­kenndu sem „Trún­að­ar­mál“ í efn­is­línu en með svohljóð­andi texta í meg­in­máli: „Sent skv. umtali. Hefur ekki verið sýnt öðrum í þessu formi.“ Sama dag og þessi gögn bár­ust sendi fyrrum lög­reglu­stjóri á Suð­ur­nesjum Per­sónu­vernd tölvu­bréf sem hafði að geyma skjá­mynd af tengiliða­upp­lýs­ingum fyrir umræddan aðstoð­ar­mann, þar á meðal. net­fang, en af skjá­mynd­inni má sjá að þessar tengiliða­upp­lýs­ingar birt­ast í sam­hengi við fyrr­greint tölvu­bréf til aðstoð­ar­manns­ins. Í tölvu­bréf­inu sjálfu birt­ist ekki sjálft net­fangið heldur aðeins nafn hans, en í tengiliða­upp­lýs­ing­unum kemur fram að tölvu­bréfið hafi verið sent á vinnu­net­fang hans hjá inn­an­rík­is­ráðu­neyt­inu.“

Ekki vistað í málaskrá


Sam­skipti Sigríðar Bjarkar við Gísla Frey voru ekki vistuð í mála­skrá­ar­kerfi lög­reg­unnar á Suð­ur­nesjum. Þetta kom fram í bréfi frá lög­regl­unni þann 22. des­em­ber 2014. Þar segir einnig að „umræddum skýrslu­drögum hafi verið miðlað frá Lög­regl­unni á Suð­ur­nesjum til aðstoð­ar­manns­ins eftir að skjali um til­greindan hæl­is­leit­anda hafði verið miðlað til fjöl­miðla án full­nægj­andi heim­ildar. Sé því ljóst að upp­lýs­ingar í því skjali hafi ekki verið sótar úr skýrslu­drög­unum.“

„Fyrir liggur að Lög­reglan á Suð­ur­nesjum skráði ekki umrædda miðlun skýrslu­draga til inn­an­rík­is­ráðu­neyt­is­ins í mála­skrár­kerfi sitt. Þá liggur fyrir að ráðu­neytið skráði ekki í mála­skrá að því hefði borist þessi skýrslu­drög, né heldur að því hefði borist fyrr­nefnd fram­burð­ar­skýrsla frá Útlend­inga­stofnun.“

Skýrsludrögin ekki í málaskrá ráðuneytis


Skýrslu­drögin voru ekki á meðal þeirra gagna í mál sem var til með­ferðar í inn­an­rík­is­ráðu­neyt­inu um Tony Omos. „Þegar af þeirri ástæðu getur umrædd miðlun skýrslu­drag­anna frá Lög­reg­unni á Suð­ur­nesjum til ráðu­neyt­is­ins ekki fallið undir fyrr­greindar heim­ildir til vinnslu per­sónu­upp­lýs­inga í ljósi þess að nauð­syn hagi staðið til hennar í þágu stjórn­sýslu­máls. Þá liggur ekki fyrir að hún falli undir vinnslu­heim­ildir á öðrum.

Í úrskurð­ar­orði segir:

Miðlun Lög­regl­unnar á Suð­ur­nesjum á skýrslu­drögum með per­sónu­upp­lýs­ingum um Tony Omos, Evelyn Glory Joseph og fleiri ein­stak­linga til inn­an­rík­is­ráðu­neyt­is­ins hinn 20. nóv­em­ber 2013, sem og beiðni ráðu­neyt­is­ins þar að lút­andi, studd­ist ekki við við­hlít­andi heim­ild.

Skortur á skrán­ingu um miðlun drag­anna í mála­skrá lög­regl­unnar á Suð­ur­nesjum, sem og um öflun þeirra í mála­skrá inn­an­rík­is­ráðu­neyt­is­ins, fór í bága við kröfum um upp­lýs­inga­ör­yggi. Hið sama gildir um skort á skrán­ingu um mót­t­töku ráðu­neyt­is­ins hinn 20. nóv­em­ber 2013 á fram­burð­ar­skýrslu Tony Omos frá Útlend­inga­stofnun.

Ekki var gætt við­un­andi öryggis við miðlun fyrr­nefndra skýrslu­draga til ráðu­neyt­is­ins frá Lög­regl­unni á Suð­ur­nesjum og fyrr­nefndrar fram­burð­ar­skýrslu frá Útlend­inga­stofnun til ráðu­neyt­is­ins.

Í sam­tali við Kjarnann segir Sigríður Björk að við­bragða sé að vænta frá henni vegna úrskurðar Per­sónu­verndar.

Hægt er að lesa úrskurð Per­sónu­verndar hér.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Lekamálið

FréttirLekamálið

Umboðs­maður Alþingis: Borgarar verða að geta treyst því að stjórn­mála­menn skipti sér ekki af lög­reglu­rann­sóknum

„Ég tel nauð­syn­legt sem umboðs­maður Alþingis að vera á varð­bergi um að slík þróun verði ekki í íslenskri stjórn­sýslu,“ segir umboðs­maður í umfjöllun sinni um hátt­semi Hönnu Birnu Krist­jáns­dóttur í árs­skýrslu fyrir 2015. Afskipti ráð­herra af störfum lög­regl­unnar drógu dilk á eftir sér.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár