Mjög sjaldgæft að fangar vilji hefja afplánun áður en þeir eru boðaðir

Mjög sjald­gæft er að ein­stak­lingar leit­ist eftir því að hefja afplánun fang­els­is­dóma áður en þeir eru boð­aðir til afplán­unar. Þegar slíkar óskir ber­ast er allt reynt til að koma til móts við þær, segir Páll Winkel, for­stjóri Fang­els­is­mála­stofn­unar.

DV greindi frá því fyrr í dag að Ólafur Ólafsson, einn sak­born­ing­anna í Al Thani-mál­inu svo­kall­aða, hafi þegar óskað eftir því að hefja afplánun. Hana hafa Ólafur hafið, líkt og aðrir fangar, í Hegn­ing­ar­hús­inu við Skóla­vörðu­stíg og hann hafi síðan verið færður í opna fang­elsið að Kvía­bryggju. Ólafur hlaut fjög­urra og hálfs árs dóm í Hæsta­rétti fyrr í þessum mán­uði.

Samkvæmt heim­ildum Kjarnans hafa aðrir dóm­þolar í Al Thani-mál­inu ekki óskað eftir því að hefja afplánun og bíða því boð­unar til að hefja fang­els­is­vist sína. Menn­irnir fjórir sem hlutu dóma í því máli, sem að mati Hæsta­réttar var alvar­leg­asta efna­hags­brota­mál sem dæmt hefur verið í á Íslandi, hlutu fjög­urra til fimm og hálfs árs fang­els­is­dóma.

Vilja bregðast skjótt við


Páll Winkel seg­ist ekki geta tjáð sig um mál ein­stakra fanga. Stofn­unin sem hann stýri vinni ein­fald­lega innan þess ramma sem henni er mark­aður í lögum. „Ef ein­stak­lingur óskar eftir því að kom­ast inn í afplánun, þrátt fyrir langan boð­un­ar­lista, þá er leit­ast við að verða við því eins skjótt og hægt er. Það á jafnt við um ein­stak­linga sem eru að koma í fyrsta sinn til afplán­unar og menn sem eru að koma inn í tuttug­asta sinn.“

Páll segir að það sé hins vegar ákaf­lega sjald­gæft að ein­stak­lingar óski eftir því að hefja afplánun áður en þeir eru boð­aðir til hennar.

[caption id="attachment_9861" align="alignnone" width="1024"] Samkvæmt upp­lýs­ingum frá Fang­els­is­mála­stofnun er sam­setn­ing fanga á Litla Hrauni svipuð og hún er í opnu fang­elsum lands­ins.[/caption]

Fjöldi rýma í opnum fang­elsum á Íslandi hefur auk­ist mjög á und­an­förnum árum. Kvía­bryggja var stækkuð árið 2008 og rýmum þar þá fjölgað úr 14 í 22. Þegar Sogni var breytt í opið fang­elsi bætt­ust 20 rými við, og stundum eru fleiri fangar vistaðir á þessum tveimur stöðum en opin­ber rým­is­geta þeirra segir til um, enda boð­un­ar­listar mjög langir.

Kjarninn greindi til að mynda frá því í októ­ber í fyrra að 475 manns biðu eftir því að hefja afplánun í íslenskum fang­elsum. Sá sem hafði beðið lengst hafði beðið í fimm ár.

Svipuð samsetning og á Litla Hrauni


Alls­konar fangar afplána í opnum fang­elsum,ekki bara menn sem hafa verið dæmdir fyrir efna­hags­brot. Þar sitja líka ein­stak­lingar sem hafa hlotið þunga dóma en hafa unnið sig upp í rétt­indum á meðan að á afplánun stendur. Því eru vistaðir ein­stak­lingar á Kvía­bryggju sem hafa hlotið dóma fyrir mann­dráp, kyn­ferð­is­brot gagn­vart börnum, stór­fellt fíkni­efna­smygl, síbrot osfr. Samkvæmt upp­lýs­ingum frá Fang­els­is­mála­stofnun er sam­setn­ing fanga í þessum tveimur opnu fang­elsum mjög svipuð og á Litla Hrauni.

Mikil breyt­ing verður í fang­els­is­málum þjóð­ar­innar undir lok þessa árs þegar nýtt fang­elsi á Hólms­heiði verður opnað. Við það mun fang­els­is­rýmum fjölga um 30 og hægt verður að vinna á löngum biðlistum. Samhliða stendur til að loka bæði Hegn­ing­ar­hús­inu, sem var tekið í notkun fyrir um 140 árum síðan og er á unda­þágu frá heil­brigð­is­yf­ir­völdum vegna þess að það upp­fyllir ekki lág­marks­skil­yrði, og Fang­els­inu í Kópavogi.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár