475 bíða eftir afplánun í fangelsi, allt að fimm ára bið

Alls bíða 475 dóm­þolar eftir því að hefja afplánun í íslenskum fang­elsum. Sá sem hefur beðið lengst hefur beðið í tæp fimm ára eftir því að hefja afplánun. Ástæðan er ein­föld, öll fang­elsi eru yfir­full, dómar eru að lengj­ast og mála­flokk­ur­inn hefur setið á hak­anum árum saman.

Fang­els­is­mála­stofnun hefur látið Kjarn­anum í té ýmsa töl­fræði og upp­lýs­ingar um stöðu fang­els­is­mála á Íslandi. Kjarninn mun fjalla ítar­lega um mála­flokk­inn næstu daga.

Beðið eftir Hólmsheiði


Rúm 50 ár eru síðan að ákveðið var fyrst að byggja nýtt örygg­is­fang­elsi á Höf­uð­borg­ar­svæð­inu. Litla-Hraun hefur gegnt hlut­verki stærsta öryggifang­elsis lands­ins um ára­tuga­skeið en ætið hefur verið ljóst að hús­næðið hentar ekki full­kom­lega undir starf­sem­ina, enda var Litla-Hraun byggt sem spít­ali, og að það er löngu hætt að geta tekið við öllum þeim fjölda sem það þarf að geta tekið við.

Alls eru sex fang­elsi á Íslandi. Fjögur þeirra eru lokuð: Litla-Hraun, Fang­elsið á Akureyri, Hegn­ing­ar­húsið við Skóla­vörðu­stíg og Fang­elsið í Kópavogi (sem er það eina sem hýsir kven­kyns fanga).Auk þeirra eru opin fang­elsi að Sogni og Kvía­bryggju.

Til stendur að loka bæði Hegn­ing­ar­hús­inu, sem var tekið í notkun fyrir um 140 árum síðan og er á unda­þágu frá heil­brigð­is­yf­ir­völdum vegna þess að það upp­fyllir ekki lág­marks­skil­yrði, og Fang­els­inu í Kópavogi um leið og nýtt fang­elsi rís á Hólms­heiði. Það er nú í bygg­ingu og á að opna haustið 2015. Fang­els­is­rýmum fjölgar þá um 30 tals­ins.

Næsta grein mun fjalla um fjölgun á biðlistum eftir afplán­un­ar­plássi og hvernig staðan horfir við fang­els­is­mála­yf­ir­völdum.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Fangelsi

FréttirFangelsi

Með­al­dómur fanga á Íslandi í dag er rúm­lega fjögur ár

Þann 13. októ­ber síð­ast­lið­inn voru 139 fangar að afplána óskil­orðs­bundna fang­els­is­refs­ingu í fang­elsum íslenska rík­is­ins. Auk þess afplán­aði einn vara­refs­ingu vegna fésekta og 15 sátu í gæslu­varð­haldi. Þeir sem sátu inni þann dag voru því sam­tals 155 tals­ins. Það eru um 86 pró­sent þeirra 180 dóm­þola sem eru að afplána óskil­orðs­bundna fang­els­is­refs­ingu. Hluti þeirra, alls 25 manns, afplánar hana utan...
FréttirFangelsi

Helm­ingur fanga hefur áður afplánað, flestir sitja inni vegna fíkni­efna

Um helm­ingur þeirra sem afplána dóma í íslenskum fang­elsum hafa setið inni áður. Íslend­ingar eru í miklum meiri­hluta í fang­els­unum, eða 91 pró­sent vist­manna. Flestir sitja inni fyrir fíkni­efna­brot, kyn­ferð­is­glæpi eða ofbeld­is­brot. Þetta kemur fram í svari Fang­els­is­mála­stofn­unar rík­is­ins við fyr­ir­spurn Kjarnans um mála­flokk­inn. Kjarninn hefur fjallað ítar­lega um hann und­an­farna daga.Lang­flestir eru Íslend­ingar Þótt 139 fangar sitji í fang­elsum...

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár