20 dómar fyrndust í fyrra, fangelsisbiðlistar hafa tvöfaldast

Biðlistar eftir því að hefja afplánun í fang­elsi hafa lengst mikið und­an­farin ár, sér­stak­lega eftir banka­hrun. Árið 2009 biðu 213 að með­al­tali eftir því að hefja afplánun. Árið eftir hafði þeim fjölgað um 63 og 2011 voru þeir 320. Í hitteð­fyrra biðu 366 að með­al­tali eftir því að hefja afplánun og í fyrra voru þeir 388. Nú eru þeir 475, eða 123 pró­sent fleiri en biðu fyrir fimm árum. Þetta hefur leitt til þess að mun fleiri dómar fyrn­ast án þess að dóm­þolar þurfi að sitja þá af sér. Í fyrra fyrnd­ust 20 dómar, eða tæp­lega fimm sinnum fleiri en árið 2009. Þetta kemur fram í upp­lýs­ingum sem Fang­els­is­mála­stofnun tók saman fyrir Kjarnann, sem mun fjalla ítar­lega um mála­flokk­inn næstu daga.

Sér­stakar reglur eru til staðar hjá fang­els­is­yf­ir­völdum til að bregð­ast við þessu ástandi. Dómþolum sem dæmdir eru í tveggja ára fang­elsi eða hærri eru í for­gangi. Sama gildir um þá sem ger­ast sekir um ref­is­verðan verknað eða reyna að koma sér­undan refs­ingu. Auk þess leit­ast Fang­els­is­stofnun við að verða við beiðni þeirra sem óska eftir að hefja afplánun ef þess er nokkur kostur. Svo er alls ekki alltaf.

Fyrning aukist um 450 prósent


Páll Winkel, for­stjóri Fang­els­is­mála­stofn­unar, segir að fanga­rýmum muni fjölga um að minnsta kosti 30 með opnun Hólms­heiðar. Hann segir þó ljóst er að fleiri úrræði þurfa að koma til svo hægt verði að vinna á þeim mikla vanda sem biðlistar eftir afplánun eru. „Þetta eru úrræði eins og rýmkun reglna um afplánun með sam­fé­lags­þjón­ustu og raf­rænt eft­ir­lit. Þá má skoða þá leið að breyta reynslu­lausn­ar­reglum tíma­bundið en það er verk­efni sem Alþingi þarf að fara yfir. Auk þess fyrn­ast ákveðnar refs­ingar í þessu árferði.“

Það liggur því fyrir, að vegna skorts á fang­elsis­plássum og öðrum úrræðum, fyrn­ast refs­ingar dæmdra brota­manna þannig að þeir þurfa aldrei að sitja af sér þá dóma sem þeir hafa hlotið. Þetta hefur auk­ist gríð­ar­lega á und­an­förnum árum. Á árinu 2009 fyrnd­ust tveir afplán­un­ar­dómar þar sem sam­eig­in­leg dæmd refs­ing nam 240 dögum. Í fyrra fyrnd­ust 20 dómar, þar sem sam­eig­in­leg refsi­vist var 1.325 dagar. Fyrning hefur því auk­ist um 450 pró­sent, ef horft er til þeirra daga sem fyrn­ast.

Páll seg­ist ekki geta svarað því með ein­földum hætti hvað fjölga þyrfti fang­elsis­plássum mikið til að eyða biðlistum. „Þaðer ekk­ert ein­falt svar við þessu. Það er mögu­legt að grípa til ýmissa úrræða sem hafa áhrif á biðlista auk þess að fjölga plássum.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Fangelsi

FréttirFangelsi

Með­al­dómur fanga á Íslandi í dag er rúm­lega fjögur ár

Þann 13. októ­ber síð­ast­lið­inn voru 139 fangar að afplána óskil­orðs­bundna fang­els­is­refs­ingu í fang­elsum íslenska rík­is­ins. Auk þess afplán­aði einn vara­refs­ingu vegna fésekta og 15 sátu í gæslu­varð­haldi. Þeir sem sátu inni þann dag voru því sam­tals 155 tals­ins. Það eru um 86 pró­sent þeirra 180 dóm­þola sem eru að afplána óskil­orðs­bundna fang­els­is­refs­ingu. Hluti þeirra, alls 25 manns, afplánar hana utan...
FréttirFangelsi

Helm­ingur fanga hefur áður afplánað, flestir sitja inni vegna fíkni­efna

Um helm­ingur þeirra sem afplána dóma í íslenskum fang­elsum hafa setið inni áður. Íslend­ingar eru í miklum meiri­hluta í fang­els­unum, eða 91 pró­sent vist­manna. Flestir sitja inni fyrir fíkni­efna­brot, kyn­ferð­is­glæpi eða ofbeld­is­brot. Þetta kemur fram í svari Fang­els­is­mála­stofn­unar rík­is­ins við fyr­ir­spurn Kjarnans um mála­flokk­inn. Kjarninn hefur fjallað ítar­lega um hann und­an­farna daga.Lang­flestir eru Íslend­ingar Þótt 139 fangar sitji í fang­elsum...
FréttirFangelsi

475 bíða eftir afplánun í fang­elsi, allt að fimm ára bið

Alls bíða 475 dóm­þolar eftir því að hefja afplánun í íslenskum fang­elsum. Sá sem hefur beðið lengst hefur beðið í tæp fimm ára eftir því að hefja afplánun. Ástæðan er ein­föld, öll fang­elsi eru yfir­full, dómar eru að lengj­ast og mála­flokk­ur­inn hefur setið á hak­anum árum saman. Fang­els­is­mála­stofnun hefur látið Kjarn­anum í té ýmsa töl­fræði og upp­lýs­ingar um stöðu fang­els­is­mála...

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár