Helmingur fanga hefur áður afplánað, flestir sitja inni vegna fíkniefna

Um helm­ingur þeirra sem afplána dóma í íslenskum fang­elsum hafa setið inni áður. Íslend­ingar eru í miklum meiri­hluta í fang­els­unum, eða 91 pró­sent vist­manna. Flestir sitja inni fyrir fíkni­efna­brot, kyn­ferð­is­glæpi eða ofbeld­is­brot. Þetta kemur fram í svari Fang­els­is­mála­stofn­unar rík­is­ins við fyr­ir­spurn Kjarnans um mála­flokk­inn. Kjarninn hefur fjallað ítar­lega um hann und­an­farna daga.

Langflestir eru Íslendingar


Þótt 139 fangar sitji í fang­elsum rík­is­ins eru alls 180 dóm­þolar í afplánun vegna óskil­orðs­bund­inna dóma. Það þýðir að 41 afplánar utan fang­elsis. Af þessum hópi hafa 89 áður verið í afplánun, eða 49,44 pró­sent. Af þeim sem eru í afplánun eru 164 Íslend­ingar og 86 þeirra, eða 52,44 pró­sent, hafa verið áður í afplánun. Íslend­ingar eru því lík­legri en erlendir fangar að hafa setið áður inni.

Flestir þeirra 139 fanga sem afplána í íslenskum fang­elsum í dag sitja inni fyrir fíkni­efna­brot, eða 42 tals­ins. Næst­flestir sitja inni fyrir kyn­ferð­is­brot, eða 25 tals­ins, og 22 fangar sitja inni fyrir ofbeld­is­brot. Jafn­margir fangar sitja inni fyrir mann­d­ráð og þjófnað/skjala­fals/fjár­svik, eða 17 tals­ins.

Þegar horft er á alla fanga í afplánun, líka þá sem afplána utan fang­elsa, eru 55 að afplána vegna fíkni­efna­brota, 31 fyrir kyn­ferð­is­brot og jafn margir vegna ofbeld­is­brota. Enginn sem afplánar vegna mann­dráps gerir það utan fang­elsa.

Mun fleiri undir rafrænu eftirliti


Mikið hefur verið rætt um önnur úrræði til að fram­fylgja fulln­ustu refs­inga. Árið 2012, nánar til­tekið í febr­úar það ár, hóf Fang­els­is­mála­stofnun raf­rænt eft­ir­lit með hluta þeirra sem eru í afplánun. Þeir eru þá hluti af sam­fé­lag­inu á meðan að þeir afplána, en ganga með sér­stakan raf­rænan búnað á sér sem segir til um stað­setn­ingu þeirra. Á fyrsta ári raf­ræns eft­ir­lits voru 5,4 dóm­þolar undir slíku. Í fyrra var með­al­talið 5,9 og það sem af er þessu ári er það rétt rúm­lega átta. Því er ljóst að notkun á úrræð­inu er að aukast mikið.

Tæplega ell­efu pró­sent þeirra sem afplána í íslenskum fang­elsum eru erlendir rík­is­borg­arar. Þeir eru 15 tals­ins, en einn slíkur afplánar auk þess utan fang­elsis. Til við­bótar sitja fjórir erlendir rík­is­borg­arar í gæslu­varð­haldi.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Fangelsi

FréttirFangelsi

Með­al­dómur fanga á Íslandi í dag er rúm­lega fjögur ár

Þann 13. októ­ber síð­ast­lið­inn voru 139 fangar að afplána óskil­orðs­bundna fang­els­is­refs­ingu í fang­elsum íslenska rík­is­ins. Auk þess afplán­aði einn vara­refs­ingu vegna fésekta og 15 sátu í gæslu­varð­haldi. Þeir sem sátu inni þann dag voru því sam­tals 155 tals­ins. Það eru um 86 pró­sent þeirra 180 dóm­þola sem eru að afplána óskil­orðs­bundna fang­els­is­refs­ingu. Hluti þeirra, alls 25 manns, afplánar hana utan...
FréttirFangelsi

475 bíða eftir afplánun í fang­elsi, allt að fimm ára bið

Alls bíða 475 dóm­þolar eftir því að hefja afplánun í íslenskum fang­elsum. Sá sem hefur beðið lengst hefur beðið í tæp fimm ára eftir því að hefja afplánun. Ástæðan er ein­föld, öll fang­elsi eru yfir­full, dómar eru að lengj­ast og mála­flokk­ur­inn hefur setið á hak­anum árum saman. Fang­els­is­mála­stofnun hefur látið Kjarn­anum í té ýmsa töl­fræði og upp­lýs­ingar um stöðu fang­els­is­mála...

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár