Ódýrast að panta flug 47 dögum fyrir brottför

Vilji fólk greiða sem minnst fyrir flug­far­gjöld, þá er að með­al­tali ódýr­ast að kaupa flug­miða 47 dögum fyrir brott­för, sam­kvæmt grein­ingu ferða­leit­ar­vél­ar­innar CheapAir.com á nærri fimm millj­ónum flug­ferða árið 2014. Árið áður var best að kaupa flug­miða 54 dögum fyrir brott­för.

CheapAir kann­aði verð­breyt­ingar á flug­far­gjöldum allt að 320 dögum fyrir brott­för. Í flestum til­fellum bók­uðu kaup­endur flug einum til fjórum mán­uðum fyrir ferð­ina. Hvað ein­staka viku­daga varðar þá er ódýr­ast að fljúga á þriðju­dögum og mið­viku­dögum en dýr­ast á sunnu­dögum og föstu­dögum.

Mun ódýrara ef keypt er á réttum tíma

Fjallað er um grein­ingu CheapAir á vef­síðu CNN. Haft er eftir for­stjóra félags­ins að þótt allir vilji fá nákvæmt svar við því hvenær best sé að bóka miða, þá sé málið ekki svo ein­falt. Ótal­margt hafi áhrif á verð flug­miða, eins og árs­tími, áfanga­staður og við­burðir.


Greingin sýnir þó fram á að sé flug­miði keyptur á lægsta mögu­lega verði, þá nemur sparn­að­ur­inn að með­al­tali 201 doll­ara, jafn­virði um 26 þús­und króna. Er þá ekki litið til miða­verðs tveimur vikur fyrir brott­för, en þá er verð jafnan í hæstu hæðum.

Ekki kaupa of seint né of snemma

Þessar upp­lýs­ingar hjálpa kaup­endum lítið við það að ákveða hvenær nákvæm­lega best er að kaupa flug­miða – að öðru leyti en að með­al­tali sé það best 47 dögum fyrir brott­för.


Í það minnsta er víst að ekki borgar sig að kaupa flug­miða stuttu fyrir ferða­lagið. Miðaverð innan við tveimur vikum fyrir brott­för er að jafn­aði 15 þús­und krónum dýr­ara en ann­ars og á síð­ustu sjö dögum fyrir brott­för er verðið að jafn­aði 23 þús­und krónum dýr­ara en það var með lengri fyr­ir­vara.


Þá borgar sig heldur ekki að kaupa mið­ann of snemma. Þegar flug­miðar eru fyrst settir í sölu þá eru þeir um 50 doll­urum hærri en lægsta verð. Raunar breyt­ist „lægsta gjald“ að með­al­tali um 70 sinnum frá því því að flug­fé­lög hefja sölu. Ástæðan fyrir tíðum breyt­ingum á lægsta verði er einkum taktík flug­fé­lag­anna að lækka verðið tíma­bundið til þess að selja fleiri sæti.


Kjarninn og Stofnun um fjár­mála­læsi hafa tekið höndum saman og munu fjalla ítar­lega um heim­il­is­fjár­mál sam­hliða þátt­unum Ferð til fjár, sem sýndir verða á RÚV næstu vikur. Mark­miðið: Að stuðla að betra fjár­mála­læsi hjá lands­mönnum! Næsti þáttur er á dag­skrá fimmtu­dag­inn 19. febr­úar. Fylgstu með á Facebook-síðu Ferðar til fjár.


Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Ferð til fjár

SkýringFerð til fjár

Fjögur gröf sem útskýra fast­eigna­mark­að­inn

Í nýjasta riti Fjár­mála­stöð­ug­leika, árs­fjórð­ungs­legri skýrslu Seðla­banka Íslands, er nokkuð fjallað um þróun fast­eigna­verðs og þær hækk­anir sem orðið hafa á íbúða­verði að und­an­förnu. Þróunin á Íslandi er meðal ann­ars borin saman við önnur lönd en í skýrsl­unni segir að ekki séu merki um bólu­myndun á fast­eigna­mark­aðnum í heild. Engu að síður sé fast­eigna­verð orðið hátt á flesta mæli­kvarða í...
FréttirFerð til fjár

Vænt­ingar dvína í skugga kjara­við­ræðna

Vænt­inga­vísi­tala Gallups lækk­aði um 17 stig í apr­íl­mán­uði og mælist nú 84,3 stig. Lækkunin er sú mesta á vísi­töl­unni milli mán­aða í tæp tvö ár. Vísi­talan fór yfir 100 stig í mars síð­ast­liðnum en vísi­talan er mæld á bil­inu 0 til 200 stigug, þar sem gildið 100 þýðir að jafn­margir aðspurðra neyt­enda eru bjart­sýnir og svart­sýnir á stöðu og horfir...
FréttirFerð til fjár

Per­sónu­af­slátt­ur­inn er 610.825 krónur í ár

Per­sónu­af­sláttur ein­stak­linga er 610.825 krónur fyrir árið 2015 eða 50.902 krónur að með­al­tali á mán­uði. Það er hækkun um 4.848 krónur frá árinu 2014, eða um 404 krónur á mán­uði. Hækkunin nemur 0,8% en hún er lögum sam­kvæmt í takt við verð­bólgu­þróun. Fjallað er um per­sónu­af­slátt, stað­greiðslu og trygg­inga­gjald árs­ins 2015 í grein í Tíund, frétta­blaði Rík­is­skatt­stjóra. Fram kemur að...
FréttirFerð til fjár

Verð­bólgan étur kaup­mátt­inn

Hækkun verð­lags í mars­mán­uði varð til þess að kaup­máttur launa dróst saman um 0,8 pró­sent. Kaup­máttur launa, eins og hann mælist sam­kvæmt vísi­tölu Hag­stof­unnar, hafði hækkað nán­ast stans­laust í tólf mán­uði en dróst núna saman. Árs­hækkun kaup­máttar launa mælist engu að síður um 4 pró­sent, en árs­hækkun mæld­ist 5,6 pró­sent í febr­úar. Hag­stofan birti í dag upp­færða vísi­tölu launa í...
FréttirFerð til fjár

Íslend­ingar eru sam­vinnu­þýð­ari en aðrir

Íslenskir stúd­entar eru sam­vinnu­þýð­ari en banda­rískir stúd­entar og leggja sig harðar fram við að halda hópa­vinnu gang­andi. Ýmsir félags­þættir benda til að Íslend­ingar sam­svari sig almennt betur í hópi fólks og séu það sem kallað er á ensku group minded á kostnað ein­stak­lings­hyggju. [caption id="attachment_26395" align="alignleft" width="139"] Dr. Anna Gunn­þórs­dóttir.[/caption]Þetta sýna nið­ur­stöður rann­sóknar sem Dr. Anna Gunn­þórs­dóttir hefur unnið að...
SkýringFerð til fjár

Deilt um sam­band launa­hækk­ana og verð­bólgu

Kröfur margra stétt­ar­fé­laga í yfir­stand­andi kjara­deilum á vinnu­mark­aði hljóða upp á veru­lega hækkun launa­taxta og dæmi eru um að kröfur hljóði upp á um 20 pró­sent hækkun lægstu launa. Staðan sem uppi er á vinnu­mark­aði hefur að mati pen­inga­stefnu­nefndar Seðla­bank­ans verið ein helsta ástæða fyrir því að halda stýri­vöxtum óbreyttum und­an­farna mán­uði, þrátt fyrir lága verð­bólgu sem er undir 2,5...

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár