Bogi útskýrir hlutabréfavísitölur

Helga Seljan þótti Bogi Ágústs­son heldur óskýr þegar hann las frétt um hækkun á hluta­bréfa­vísi­tölum Dow Jones, Nasdaq og S&P, í fjórða þætti Ferðar til fjár. Bogi var í miðri setn­ingu, að segja frá hækkun Dow Jones vísi­töl­unnar, þegar Helgi krafð­ist útskýr­inga.

„Vá,“ sagði Helgi. „Hvað var þetta?“


„Þetta eru ann­ars konar vísi­tölur,“ sagði Bogi en í þriðja þætti útskýrði Bogi vísi­tölu neyslu­verðs. „Dow Jones vísi­talan mælir verð á hluta­bréfum í þrjá­tíu stórum banda­rískum fyr­ir­tækjum. Hún er ekk­ert ofboðs­lega mikið notuð. Vísi­talan er mikið notuð í fjöl­miðlum en ekki eins mikið á verð­bréfa­mörk­uðum, aðrar hluta­bréfa­vísi­tölur þykja gagn­legri,“ sagði Bogi við Helga.


„Ókei, próf­aðu núna að útskýra þetta fyrir mér eins og ég sé fimm ára,“ sagði Helgi, og gerði Boga það nokkuð auð­veld­ara fyrir með réttri lík­ams­stell­ingu.


„Vísi­talan mælir verð á hluta­bréfum í 30 stórum fyr­ir­tækjum í amer­íku. Hvort að það fer hækk­andi eða lækk­andi. Ef að hluta­bréfa­verð þess­ara félaga þá hækkar vísi­talan, en lækkar ef hluta­bréfa­verð lækkar,“ útskýrði hann. Félögin sem til­heyra Dow Jones vísi­töl­unni eru öll rót­gróin banda­rísk félög og er vægi þeirra í vísi­töl­unni mis­jafnt eftir stærð þeirra. Meðal fyr­ir­tækj­anna eru Coca-Cola Company, Walt Disney, Exxon, Microsoft og stór fjár­mála­fyr­ir­tæki. http://money.cnn.com/data/dow30/.

Lítil áhrif á almenning

„Hvaða áhrif hefði þetta á Helga eldri,“ spurði Helgi.


„Ekkert mjög mikil, nema það yrðu mjög miklar sveiflur og mikið hrun,“ svar­aði Bogi. „Til dæmis þegar kreppan mikla hófst á 4. ára­tug síð­ustu aldar, þá varð gríð­ar­legt hrun hluta­bréfa á Wall Street. En frá degi til dags, þá hefur þetta litla þýð­ingu fyrir þig, því þú átt engin hluta­bréf.“

Svona er íslenska hlutabréfavísitalan

Á Íslandi er helsta hluta­bréfa­vísi­talan OMX I8. Hún mælir breyt­ingar á hluta­bréfa­verði átta stærstu hluta­fé­lag­anna í Kaup­höll­inni og er vægi þeirra í vísi­töl­unni mis­jafnt eftir stærð þeirra. Félögin átta eru Eimskip, Grandi, Hagar, Icelandair, Marel, N1, TM og VÍS. Með til­komu nýrra félaga hefur vísi­tala Kaup­hall­ar­innar breyst nokkuð. Á síð­asta ári var þróun vísi­töl­unnar með þessum hætti, en hækkun frá árs­byrjun til árs­loka nam tæpum tveimur pró­sentum:




Kjarninn og Stofnun um fjár­mála­læsi hafa tekið höndum saman og munu fjalla ítar­lega um heim­il­is­fjár­mál sam­hliða þátt­unum Ferð til fjár, sem sýndir verða á RÚV næstu vikur. Mark­miðið: Að stuðla að betra fjár­mála­læsi hjá lands­mönnum! Næsti þáttur er á dag­skrá fimmtu­dag­inn 19. febr­úar. Fylgstu með á Facebook-síðu Ferðar til fjár.


Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Ferð til fjár

SkýringFerð til fjár

Fjögur gröf sem útskýra fast­eigna­mark­að­inn

Í nýjasta riti Fjár­mála­stöð­ug­leika, árs­fjórð­ungs­legri skýrslu Seðla­banka Íslands, er nokkuð fjallað um þróun fast­eigna­verðs og þær hækk­anir sem orðið hafa á íbúða­verði að und­an­förnu. Þróunin á Íslandi er meðal ann­ars borin saman við önnur lönd en í skýrsl­unni segir að ekki séu merki um bólu­myndun á fast­eigna­mark­aðnum í heild. Engu að síður sé fast­eigna­verð orðið hátt á flesta mæli­kvarða í...
FréttirFerð til fjár

Vænt­ingar dvína í skugga kjara­við­ræðna

Vænt­inga­vísi­tala Gallups lækk­aði um 17 stig í apr­íl­mán­uði og mælist nú 84,3 stig. Lækkunin er sú mesta á vísi­töl­unni milli mán­aða í tæp tvö ár. Vísi­talan fór yfir 100 stig í mars síð­ast­liðnum en vísi­talan er mæld á bil­inu 0 til 200 stigug, þar sem gildið 100 þýðir að jafn­margir aðspurðra neyt­enda eru bjart­sýnir og svart­sýnir á stöðu og horfir...
FréttirFerð til fjár

Per­sónu­af­slátt­ur­inn er 610.825 krónur í ár

Per­sónu­af­sláttur ein­stak­linga er 610.825 krónur fyrir árið 2015 eða 50.902 krónur að með­al­tali á mán­uði. Það er hækkun um 4.848 krónur frá árinu 2014, eða um 404 krónur á mán­uði. Hækkunin nemur 0,8% en hún er lögum sam­kvæmt í takt við verð­bólgu­þróun. Fjallað er um per­sónu­af­slátt, stað­greiðslu og trygg­inga­gjald árs­ins 2015 í grein í Tíund, frétta­blaði Rík­is­skatt­stjóra. Fram kemur að...
FréttirFerð til fjár

Verð­bólgan étur kaup­mátt­inn

Hækkun verð­lags í mars­mán­uði varð til þess að kaup­máttur launa dróst saman um 0,8 pró­sent. Kaup­máttur launa, eins og hann mælist sam­kvæmt vísi­tölu Hag­stof­unnar, hafði hækkað nán­ast stans­laust í tólf mán­uði en dróst núna saman. Árs­hækkun kaup­máttar launa mælist engu að síður um 4 pró­sent, en árs­hækkun mæld­ist 5,6 pró­sent í febr­úar. Hag­stofan birti í dag upp­færða vísi­tölu launa í...
FréttirFerð til fjár

Íslend­ingar eru sam­vinnu­þýð­ari en aðrir

Íslenskir stúd­entar eru sam­vinnu­þýð­ari en banda­rískir stúd­entar og leggja sig harðar fram við að halda hópa­vinnu gang­andi. Ýmsir félags­þættir benda til að Íslend­ingar sam­svari sig almennt betur í hópi fólks og séu það sem kallað er á ensku group minded á kostnað ein­stak­lings­hyggju. [caption id="attachment_26395" align="alignleft" width="139"] Dr. Anna Gunn­þórs­dóttir.[/caption]Þetta sýna nið­ur­stöður rann­sóknar sem Dr. Anna Gunn­þórs­dóttir hefur unnið að...
SkýringFerð til fjár

Deilt um sam­band launa­hækk­ana og verð­bólgu

Kröfur margra stétt­ar­fé­laga í yfir­stand­andi kjara­deilum á vinnu­mark­aði hljóða upp á veru­lega hækkun launa­taxta og dæmi eru um að kröfur hljóði upp á um 20 pró­sent hækkun lægstu launa. Staðan sem uppi er á vinnu­mark­aði hefur að mati pen­inga­stefnu­nefndar Seðla­bank­ans verið ein helsta ástæða fyrir því að halda stýri­vöxtum óbreyttum und­an­farna mán­uði, þrátt fyrir lága verð­bólgu sem er undir 2,5...

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár