Það er ekki alltaf tóm vitleysa að kaupa lottómiða

Því er stundum haldið fram að eitt það alvit­laus­asta sem fólk getur gert sé það að kaupa lottómiða. Líkurnar á að landa fyrsta vinn­ingi eru sára­litlar og taki maður viku­lega þátt í Lottó Íslenskrar get­spár með 10 raða miða þá nemur kostn­að­ur­inn tæpum 68.000 krónum á ári.

En jafn­vel þótt lík­urnar á vinn­ingi séu allt að því hlægi­legar, þá getur það stundum verið hyggi­legt að taka þátt. Eftir því sem pott­ur­inn stækkar, því skyn­sam­legra er að kaupa miða. Aðrar ástæður en auk­inn hagn­aður geta einnig rétt­lætt lottómiða­kaup. Það er ekki leið­in­legt að láta sig dreyma um hvað hægt sé að gera við nokkra tugi millj­óna króna, er það?

Hverjar eru líkurnar?

Íslend­ingar geta tekið þátt í þremur mis­mun­andi lottóum. Fyrst er það hið klass­íska laug­ar­dagslottó Íslenskrar Getspár, Lottóið. Vikulega eru fimm kúlur dregnar upp í beinni útsend­ingu af sam­tals 40 kúlum. Líkurnar á að röð sé með sömu tölur og þær sem birt­ast í sjón­varp­inu eru

1 á móti 658.008

og tíu raðir kosta 1.300 krónur eða 67.600 krónur á ári.*

Á mið­viku­dögum er það síðan Vík­inga­lottóið, spilað með frænd­fólk­inu í Skand­in­avíu. Vinn­ings­fjár­hæð­irnar eru öllu hærri en í Lottóinu, enda fleiri þátt­tak­endur, en lík­urnar á vinn­ingi eru jafn­framt mun lægri. Líkurnar á að fá fyrsta vinn­ing í Vík­inga­lottó­inu eru

1 á móti 12. 271. 512

og tíu raðir kosta 700 krónur eða 36.400 krónur á ári.*

Í Vík­inga­lottó eru sex tölur dregnar út af alls 48. Sá sem kaupir tíu raða miða í hverri viku, eða um 520 raðir á hverju ári, getur átt von á því að fá sex tölur réttar um það bil einu sinni á 23.500 ára fresti, að því er skrifað er um á Vís­inda­vef Háskóla Íslands. Að auki þarf ofur­töl­una til þess að landa stærsta vinn­ingi, sem vænta má í eitt skipti af hverjum átta. Að fá sex réttar auk ofur­töl­unnar er því átta sinnum erf­ið­ara en að fá aðeins sex rétta.


Af ein­hverri ástæðu hafa það oft­ast verið Norðmenn sem hreppa fyrsta vinn­ing­inn.


Á föstu­dögum er það síðan Euro Jackpot, sam­evr­ópskur lottó­leikur. Líkurnar á að vinna þann gullpott eru enn minni en í Vík­inga­lottói, eða

1 á móti 59.325.280

og tíu raðir kosta 3.200 krónur eða 166.400 krónur á ári.*

Kaupi maður tíu raða lottómiða í öllum leikj­unum í hverri viku þá nemur kostn­að­ur­inn sam­tals 270.000 krónum á ári. Að því gefnu að þú vinnir ekki stóran vinn­ing, og lík­urnar eru sann­ar­lega ekki með þér, þá er hægt að gera mjög margt skyn­sam­legra fyrir pen­ing­inn.

Kostnaðurinn við dagdrauma

Neil Irwin, blaða­maður Upshot hjá New York Times, skrif­aði nýverið áhuga­verða grein þar sem hann tal­aði fyrir þátt­töku í lottó­inu, að upp­fylltum ákveðnum skil­yrðum. Vegna þess hversu ótrú­lega litlar líkur séu á að fá fyrsta vinn­ing, þá þurfi kaup­andi að hafa efni á að tapa and­virði lottómið­ans. Eigi maður í fjár­hags­vand­ræðum, já eða glími við spilafíkn, þá sé sömu­leiðis best að láta lottóið eiga sig. En líti maður á kaup á lottómiðum sem neyslu en ekki fjár­fest­ingu, og líti þannig á að lottó svipi til þess að fara í bíó eða kaupa rauð­víns­flösku, þá megi finna skyn­sam­leg rök fyrir því að taka þátt.


„Það er gaman að ímynda sér fram­tíð­ina eftir að hafa unnið háar fjár­hæðir. Hver lætur sig ekki dreyma um hvað hann myndi kaupa eftir að hafa unnið í lottó?“ spyr Irwin í grein­inni. Þannig megi líta á að kostn­að­ur­inn við miða­kaupin sé ein­fald­lega kostn­aður við að láta sig dreyma um lífið eftir „þann stóra“.


„Þetta eru heldur ekki endi­lega inn­an­tómir dagdraumar. Stundum geta þessir draumar leitt til jákvæðra breyt­inga í lífi þínu. Hvað myndir þú gera ef þú fengir fyrsta vinn­ing? Myndir þú ferð­ast um heim­inn? Kannski ættir þú að safna þér fyrir heims­reisu, jafn­vel þótt þú ferð­ist í almennu far­rými en ekki í einka­þotu,“ skrifar hann, í laus­legri þýð­ingu.

Skynsamari kaup ef potturinn er stór

Irwin bendir jafn­framt á að eftir því sem pott­ur­inn stækkar, því skyn­sam­legra er að taka þátt út frá sjón­ar­hóli töl­fræð­innar. Ástæðan er sú að lottópott­ur­inn stækkar ef hann rennur ekki út vik­una áður – pen­ing­ana sem fólk eyddi í lottómiða í síð­ustu viku er hægt að vinna í þess­ari viku. Með öðrum orðum þá fer núvirði lottómið­ans hækk­andi eftir því sem pott­ur­inn stækkar.


„Þegar þú kaupir miða og líkur eru á stórum vinn­ingi, þá ertu í raun að veðja á að þú vinnir pen­inga sem annað fólk eyddi í lottómiða með röngum tölum,“ segir Irwin.

Borgar það sig um næstu helgi?

Lottópottur helg­ar­innar hjá Íslenskri get­spá, dreg­inn út þann 14. febr­úar, stefndi í 47 millj­ónir króna. Hann gekk ekki út og verður pott­ur­inn því sexfaldur næst. „Geislandi stjörnur og glim­merklæddar millj­ónir“ sagði í aug­lýs­ingu á vef­síðu félags­ins fyrir fimm­falda lottópott­inn. Nær allar líkur voru á að þessar geislandi stjörnur og glim­merklæddu millj­ónir verði ekki þínar. En að öllu fram­an­sögðu, og í ljósi stækk­andi lottópotts, borgar sig þá að taka þátt um næstu helgi, þar sem stærð potts­ins verður eflaust í kringum 60 millj­ónir króna?


Hjálmar Gíslason, fram­kvæmd­ar­stjóri hjá Qlik og einn eig­anda Kjarnans, skrif­aði árið 2011 stutta grein þar sem spurði þess­arar sömu spurn­ingar. Rétt eins og fram hefur komið í þess­ari grein, þá svar­aði Hjálmar: „Oftast ekki, en þegar fyrsti vinn­ingur er marg­faldur geta þó skap­ast aðstæður að það sé hrein­lega fín hagn­að­ar­von í því að taka þátt í Lottóinu.“


Hjálmar gerði reikni­líkan sem hjálpar til við að ákveða hvort það borgi sig að spila í lottó, að gef­inni stærð potts­ins. Líkanið má finna hér, en þeir sem vilja fara að ráðum lík­ans­ins ættu ekki að taka þátt um næstu helg­ina.


*Árs­kostn­aður er mið­aður við að keyptur sé tíu raða miði í hverri viku.


Í excel-skjal­inu, sem er frá 2011, er verð á lottóröð stillt í 100 krónur. Það þarf að upp­færa hand­virkt, verð í dag er 130 krónur.

Tengt efni:
Flestir til­búnir að skipta á lottómiðum.

Kjarninn og Stofnun um fjár­mála­læsi hafa tekið höndum saman og munu fjalla ítar­lega um heim­il­is­fjár­mál sam­hliða þátt­unum Ferð til fjár, sem sýndir verða á RÚV næstu vikur. Mark­miðið: Að stuðla að betra fjár­mála­læsi hjá lands­mönnum! Næsti þáttur er á dag­skrá fimmtu­dag­inn 19. febr­úar. Fylgstu með á Facebook-síðu Ferðar til fjár.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Ferð til fjár

SkýringFerð til fjár

Fjögur gröf sem útskýra fast­eigna­mark­að­inn

Í nýjasta riti Fjár­mála­stöð­ug­leika, árs­fjórð­ungs­legri skýrslu Seðla­banka Íslands, er nokkuð fjallað um þróun fast­eigna­verðs og þær hækk­anir sem orðið hafa á íbúða­verði að und­an­förnu. Þróunin á Íslandi er meðal ann­ars borin saman við önnur lönd en í skýrsl­unni segir að ekki séu merki um bólu­myndun á fast­eigna­mark­aðnum í heild. Engu að síður sé fast­eigna­verð orðið hátt á flesta mæli­kvarða í...
FréttirFerð til fjár

Vænt­ingar dvína í skugga kjara­við­ræðna

Vænt­inga­vísi­tala Gallups lækk­aði um 17 stig í apr­íl­mán­uði og mælist nú 84,3 stig. Lækkunin er sú mesta á vísi­töl­unni milli mán­aða í tæp tvö ár. Vísi­talan fór yfir 100 stig í mars síð­ast­liðnum en vísi­talan er mæld á bil­inu 0 til 200 stigug, þar sem gildið 100 þýðir að jafn­margir aðspurðra neyt­enda eru bjart­sýnir og svart­sýnir á stöðu og horfir...
FréttirFerð til fjár

Per­sónu­af­slátt­ur­inn er 610.825 krónur í ár

Per­sónu­af­sláttur ein­stak­linga er 610.825 krónur fyrir árið 2015 eða 50.902 krónur að með­al­tali á mán­uði. Það er hækkun um 4.848 krónur frá árinu 2014, eða um 404 krónur á mán­uði. Hækkunin nemur 0,8% en hún er lögum sam­kvæmt í takt við verð­bólgu­þróun. Fjallað er um per­sónu­af­slátt, stað­greiðslu og trygg­inga­gjald árs­ins 2015 í grein í Tíund, frétta­blaði Rík­is­skatt­stjóra. Fram kemur að...
FréttirFerð til fjár

Verð­bólgan étur kaup­mátt­inn

Hækkun verð­lags í mars­mán­uði varð til þess að kaup­máttur launa dróst saman um 0,8 pró­sent. Kaup­máttur launa, eins og hann mælist sam­kvæmt vísi­tölu Hag­stof­unnar, hafði hækkað nán­ast stans­laust í tólf mán­uði en dróst núna saman. Árs­hækkun kaup­máttar launa mælist engu að síður um 4 pró­sent, en árs­hækkun mæld­ist 5,6 pró­sent í febr­úar. Hag­stofan birti í dag upp­færða vísi­tölu launa í...
FréttirFerð til fjár

Íslend­ingar eru sam­vinnu­þýð­ari en aðrir

Íslenskir stúd­entar eru sam­vinnu­þýð­ari en banda­rískir stúd­entar og leggja sig harðar fram við að halda hópa­vinnu gang­andi. Ýmsir félags­þættir benda til að Íslend­ingar sam­svari sig almennt betur í hópi fólks og séu það sem kallað er á ensku group minded á kostnað ein­stak­lings­hyggju. [caption id="attachment_26395" align="alignleft" width="139"] Dr. Anna Gunn­þórs­dóttir.[/caption]Þetta sýna nið­ur­stöður rann­sóknar sem Dr. Anna Gunn­þórs­dóttir hefur unnið að...
SkýringFerð til fjár

Deilt um sam­band launa­hækk­ana og verð­bólgu

Kröfur margra stétt­ar­fé­laga í yfir­stand­andi kjara­deilum á vinnu­mark­aði hljóða upp á veru­lega hækkun launa­taxta og dæmi eru um að kröfur hljóði upp á um 20 pró­sent hækkun lægstu launa. Staðan sem uppi er á vinnu­mark­aði hefur að mati pen­inga­stefnu­nefndar Seðla­bank­ans verið ein helsta ástæða fyrir því að halda stýri­vöxtum óbreyttum und­an­farna mán­uði, þrátt fyrir lága verð­bólgu sem er undir 2,5...

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár