Í fjórða þætti af Ferð til fjár á RÚV hittum við Meðaljón, hressan náunga sem heldur með Arsenal í enska boltanum og hlustar á U2. Meðaljón hefur gengið menntaveginn í 20 ára. Við fengum að vita hvað það hefur kostað.
[caption id="attachment_19879" align="alignnone" width="1018"] Fyrstu tíu árin gekk Jón í grunnskóla. Fyrir grunnskólagönguna greiddi hann, eða foreldrar hans, samtals 130 þúsund krónur. Á sama tíma greiddi ríkið 15 milljónir króna fyrir grunnskólagöngu Jóns.[/caption]
[caption id="attachment_19878" align="alignnone" width="1046"] Þegar Jón útskrifaðist úr framhaldsskóla hafði hann greitt um 900 þúsund krónur á þeim fjórum árum sem hann var í framhaldsskóla. Ríkið lagði á móti fram þrjár milljónir.[/caption]
[caption id="attachment_19880" align="alignnone" width="967"] Nýlega lauk Jón þriggja ára námi við háskóla. Það kostaði hann um 800 þúsund krónur en ríkið greiddi 6,6 milljónir á móti.[/caption]
[caption id="attachment_19877" align="alignnone" width="923"] Jón hefur því varið um 2,7 milljónum króna í 20 ára menntagöngu og ríkið greitt 27 milljónir á móti. Hið opinbera hefur þannig greitt rúmlega 90 prósent þeirrar fjárhæðar sem skólaganga Jóns kostaði.[/caption]
Kjarninn og Stofnun um fjármálalæsi hafa tekið höndum saman og munu fjalla ítarlega um heimilisfjármál samhliða þáttunum Ferð til fjár, sem sýndir verða á RÚV næstu vikur. Markmiðið: Að stuðla að betra fjármálalæsi hjá landsmönnum! Næsti þáttur er á dagskrá fimmtudaginn 12. febrúar. Fylgstu með á Facebook-síðu Ferðar til fjár.
Veistu meira? Láttu okkur vita
Það tókst ekki að sækja formið. Reyndu aftur eftir augnablik.



















































Athugasemdir