Verðhjöðnun í Danmörku - Ólíklegt á Íslandi

Verðlag í Danmörku er 0,1 pró­sent lægra en það var fyrir ári síðan, sam­kvæmt verð­lags­mæl­ingum hag­stofu lands­ins. Þetta er í fyrsta sinn í sex­tíu ár hið minnsta sem verð­hjöðnun mælist í land­inu. Á frétta­síðu Bloomberg er bent á að Danmörk sé þar með gengið í „verð­hjöðn­un­ar­klúbb“ Evrópu. Eins og nýverið var fjallað var um í Kjarn­anum þá er verð­bólga almennt afar lág um þessar mundir í löndum álf­unnar. Á síð­asta ári voru sex lönd sem glímdu við verð­hjöðnun.

Gott fyrir efnahag og almenning

Þótt verð­hjöðnun geti verið merki um hæga­gang í efna­hags­líf­inu, þá telja danskir sér­fræð­ingar að lækkun verð­lags sé jákvæð fyrir efna­hag lands­ins og almenn­ing. Verð­hjöðnun er helst rakin til lækk­ana á olíu­af­urðum og segir Jan Sterup Nielsen, grein­andi hjá Nordea í Kaup­manna­höfn, að svo lengi sem þessi þróun sé vegna lækk­andi olíu­verðs þá muni hún ýta undir kaup­mátt danskra heim­ila.

Verðhjöðnun á Íslandi?



Verð­bólga á Íslandi mælist nú 0,8 pró­sent og hefur ekki verið lægri í 16 ár. Rétt eins og í Danmörku og víða ann­ars staðar hafa olíu­lækk­anir á heims­mörk­uðum haft mikil áhrif til lækk­unar verð­bólg­unnar. Í graf­inu hér að ofan má sjá hvernig verð­bólga hefur þró­ast í Danmörku og á Íslandi frá árs­byrjun 2012.


Ólíklegt þykir þó að verð­lag lækki svo mikið að hér mælist verð­hjöðnun. Pen­inga­stefnu­nefnd Seðla­banka Íslands segir lækkun olíu­verðs aðeins tíma­bund­inn þátt til lækk­unar verð­bólgu. Nefndin ákvað í síð­ustu viku að halda stýri­vöxtum óbreyttum þrátt fyrir að verð­bólga sé afar lág, en stýri­vöxt­unum er ætlað að ýmist halda verð­bólg­unni í skefjum (ef verð­bólga er of há þá eru vextir hækk­aðir) eða örva efna­hag­inn með til­heyr­andi verð­lags­hækk­unum (ef verð­bólga er of lág þá eru vextir lækk­aðir). Hið síð­ar­nefnda hefur aldrei átt við á Íslandi í þeim mæli að stýri­vextir nálgist núll pró­sent, eins og raunin er víða í Evrópu í dag. Seðla­bank­inn Íslands spáir því að verð­bólga verði áfram lág, eða undir tveimur pró­sentum fram á árið 2016.


Kjarninn og Stofnun um fjár­mála­læsi hafa tekið höndum saman og munu fjalla ítar­lega um heim­il­is­fjár­mál sam­hliða þátt­unum Ferð til fjár, sem sýndir verða á RÚV næstu vikur. Mark­miðið: Að stuðla að betra fjár­mála­læsi hjá lands­mönnum! Næsti þáttur er á dag­skrá fimmtu­dag­inn 12. febr­úar. Fylgstu með á Facebook-síðu Ferðar til fjár.


Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Ferð til fjár

SkýringFerð til fjár

Fjögur gröf sem útskýra fast­eigna­mark­að­inn

Í nýjasta riti Fjár­mála­stöð­ug­leika, árs­fjórð­ungs­legri skýrslu Seðla­banka Íslands, er nokkuð fjallað um þróun fast­eigna­verðs og þær hækk­anir sem orðið hafa á íbúða­verði að und­an­förnu. Þróunin á Íslandi er meðal ann­ars borin saman við önnur lönd en í skýrsl­unni segir að ekki séu merki um bólu­myndun á fast­eigna­mark­aðnum í heild. Engu að síður sé fast­eigna­verð orðið hátt á flesta mæli­kvarða í...
FréttirFerð til fjár

Vænt­ingar dvína í skugga kjara­við­ræðna

Vænt­inga­vísi­tala Gallups lækk­aði um 17 stig í apr­íl­mán­uði og mælist nú 84,3 stig. Lækkunin er sú mesta á vísi­töl­unni milli mán­aða í tæp tvö ár. Vísi­talan fór yfir 100 stig í mars síð­ast­liðnum en vísi­talan er mæld á bil­inu 0 til 200 stigug, þar sem gildið 100 þýðir að jafn­margir aðspurðra neyt­enda eru bjart­sýnir og svart­sýnir á stöðu og horfir...
FréttirFerð til fjár

Per­sónu­af­slátt­ur­inn er 610.825 krónur í ár

Per­sónu­af­sláttur ein­stak­linga er 610.825 krónur fyrir árið 2015 eða 50.902 krónur að með­al­tali á mán­uði. Það er hækkun um 4.848 krónur frá árinu 2014, eða um 404 krónur á mán­uði. Hækkunin nemur 0,8% en hún er lögum sam­kvæmt í takt við verð­bólgu­þróun. Fjallað er um per­sónu­af­slátt, stað­greiðslu og trygg­inga­gjald árs­ins 2015 í grein í Tíund, frétta­blaði Rík­is­skatt­stjóra. Fram kemur að...
FréttirFerð til fjár

Verð­bólgan étur kaup­mátt­inn

Hækkun verð­lags í mars­mán­uði varð til þess að kaup­máttur launa dróst saman um 0,8 pró­sent. Kaup­máttur launa, eins og hann mælist sam­kvæmt vísi­tölu Hag­stof­unnar, hafði hækkað nán­ast stans­laust í tólf mán­uði en dróst núna saman. Árs­hækkun kaup­máttar launa mælist engu að síður um 4 pró­sent, en árs­hækkun mæld­ist 5,6 pró­sent í febr­úar. Hag­stofan birti í dag upp­færða vísi­tölu launa í...
FréttirFerð til fjár

Íslend­ingar eru sam­vinnu­þýð­ari en aðrir

Íslenskir stúd­entar eru sam­vinnu­þýð­ari en banda­rískir stúd­entar og leggja sig harðar fram við að halda hópa­vinnu gang­andi. Ýmsir félags­þættir benda til að Íslend­ingar sam­svari sig almennt betur í hópi fólks og séu það sem kallað er á ensku group minded á kostnað ein­stak­lings­hyggju. [caption id="attachment_26395" align="alignleft" width="139"] Dr. Anna Gunn­þórs­dóttir.[/caption]Þetta sýna nið­ur­stöður rann­sóknar sem Dr. Anna Gunn­þórs­dóttir hefur unnið að...
SkýringFerð til fjár

Deilt um sam­band launa­hækk­ana og verð­bólgu

Kröfur margra stétt­ar­fé­laga í yfir­stand­andi kjara­deilum á vinnu­mark­aði hljóða upp á veru­lega hækkun launa­taxta og dæmi eru um að kröfur hljóði upp á um 20 pró­sent hækkun lægstu launa. Staðan sem uppi er á vinnu­mark­aði hefur að mati pen­inga­stefnu­nefndar Seðla­bank­ans verið ein helsta ástæða fyrir því að halda stýri­vöxtum óbreyttum und­an­farna mán­uði, þrátt fyrir lága verð­bólgu sem er undir 2,5...

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár