Flestir tilbúnir að skipta á lottómiðum

Hvernig bregst fólk við þegar það er beðið um að skipta á lottó-miðum? Út á það gekk til­raunin í síð­asta þætti af Ferð til fjár á RÚV. Haukur Freyr Gylfason aðjúnkt við Háskól­ann í Reykja­vík og sér­legur til­raun­ar­maður Ferðar til fjár, hélt í Happa­húsið í Kringl­unni og bað fólk um að skipta á lottómiða sem það hafði keypt skömmu áður á öðrum eins miða – nema með öðrum tölum auð­vitað.

[caption id="attachment_18526" align="alignnone" width="1309"] Haukur Freyr Gylfason, aðjúnkt við HR.[/caption]

Til­raunin varpar ljósi á hvort fólk hugsi mikið um þá eft­ir­sjá sem gæti fylgt því að skipta á vinn­ings­miða. Fram kom í þætt­inum að þeir sem láta hræðslu og eft­ir­sjá hafa mikil áhrif á sig bregð­ast seinna við en aðrir. Það getur til dæmis haft áhrif í hluta­bréfa­við­skiptum.

Viltu skipta?

Viðbrögð miða-eig­enda voru mis­jöfn þegar við báðum þá um að skipta á miðum við okkur. Flestir sögðu þó já, en örfáir vildu hrein­lega ekki taka séns­inn. Það gæti tekið á ef við myndum vinna á mið­ann þeirra.


Árna Hjart­ar­syni, lottó-kaup­anda í Kringl­unni, fannst til að mynda ekk­ert mál að skipta um miða. „Ég sé að þú hefur ekki trú á þessum miða. Þá verð ég að láta þig hafa annan sem er betri,“ sagði hann. Aðrir sögðu nei, það yrði sárt að sjá vinn­ing­inn fara annað á mið­ann sem þau höfðu í hönd­unum.


Nið­ur­stöður þess­arar fjórðu til­raunar Ferðar til fjár eru þær að sumir forð­ast eft­ir­sjá eins og heitan eld­inn og vildu alls ekki skipta, á meðan öðrum fannst það lítið mál. Hugsa flestir Íslend­ingar lítið um mögu­lega eft­ir­sjá og bregð­ast skjótt við aðstæðum?


Fyrri til­raunir:


Verð­vit­und ábóta­vant.


Syk­ur­púða­til­raunin.


Hefur hegðun ann­arra áhrif á hegðun þína?


Kjarninn og Stofnun um fjár­mála­læsi hafa tekið höndum saman og munu fjalla ítar­lega um heim­il­is­fjár­mál sam­hliða þátt­unum Ferð til fjár, sem sýndir verða á RÚV næstu vikur. Mark­miðið: Að stuðla að betra fjár­mála­læsi hjá lands­mönnum! Næsti þáttur er á dag­skrá fimmtu­dag­inn 12. febr­úar. Fylgstu með á Facebook-síðu Ferðar til fjár.


Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Ferð til fjár

SkýringFerð til fjár

Fjögur gröf sem útskýra fast­eigna­mark­að­inn

Í nýjasta riti Fjár­mála­stöð­ug­leika, árs­fjórð­ungs­legri skýrslu Seðla­banka Íslands, er nokkuð fjallað um þróun fast­eigna­verðs og þær hækk­anir sem orðið hafa á íbúða­verði að und­an­förnu. Þróunin á Íslandi er meðal ann­ars borin saman við önnur lönd en í skýrsl­unni segir að ekki séu merki um bólu­myndun á fast­eigna­mark­aðnum í heild. Engu að síður sé fast­eigna­verð orðið hátt á flesta mæli­kvarða í...
FréttirFerð til fjár

Vænt­ingar dvína í skugga kjara­við­ræðna

Vænt­inga­vísi­tala Gallups lækk­aði um 17 stig í apr­íl­mán­uði og mælist nú 84,3 stig. Lækkunin er sú mesta á vísi­töl­unni milli mán­aða í tæp tvö ár. Vísi­talan fór yfir 100 stig í mars síð­ast­liðnum en vísi­talan er mæld á bil­inu 0 til 200 stigug, þar sem gildið 100 þýðir að jafn­margir aðspurðra neyt­enda eru bjart­sýnir og svart­sýnir á stöðu og horfir...
FréttirFerð til fjár

Per­sónu­af­slátt­ur­inn er 610.825 krónur í ár

Per­sónu­af­sláttur ein­stak­linga er 610.825 krónur fyrir árið 2015 eða 50.902 krónur að með­al­tali á mán­uði. Það er hækkun um 4.848 krónur frá árinu 2014, eða um 404 krónur á mán­uði. Hækkunin nemur 0,8% en hún er lögum sam­kvæmt í takt við verð­bólgu­þróun. Fjallað er um per­sónu­af­slátt, stað­greiðslu og trygg­inga­gjald árs­ins 2015 í grein í Tíund, frétta­blaði Rík­is­skatt­stjóra. Fram kemur að...
FréttirFerð til fjár

Verð­bólgan étur kaup­mátt­inn

Hækkun verð­lags í mars­mán­uði varð til þess að kaup­máttur launa dróst saman um 0,8 pró­sent. Kaup­máttur launa, eins og hann mælist sam­kvæmt vísi­tölu Hag­stof­unnar, hafði hækkað nán­ast stans­laust í tólf mán­uði en dróst núna saman. Árs­hækkun kaup­máttar launa mælist engu að síður um 4 pró­sent, en árs­hækkun mæld­ist 5,6 pró­sent í febr­úar. Hag­stofan birti í dag upp­færða vísi­tölu launa í...
FréttirFerð til fjár

Íslend­ingar eru sam­vinnu­þýð­ari en aðrir

Íslenskir stúd­entar eru sam­vinnu­þýð­ari en banda­rískir stúd­entar og leggja sig harðar fram við að halda hópa­vinnu gang­andi. Ýmsir félags­þættir benda til að Íslend­ingar sam­svari sig almennt betur í hópi fólks og séu það sem kallað er á ensku group minded á kostnað ein­stak­lings­hyggju. [caption id="attachment_26395" align="alignleft" width="139"] Dr. Anna Gunn­þórs­dóttir.[/caption]Þetta sýna nið­ur­stöður rann­sóknar sem Dr. Anna Gunn­þórs­dóttir hefur unnið að...
SkýringFerð til fjár

Deilt um sam­band launa­hækk­ana og verð­bólgu

Kröfur margra stétt­ar­fé­laga í yfir­stand­andi kjara­deilum á vinnu­mark­aði hljóða upp á veru­lega hækkun launa­taxta og dæmi eru um að kröfur hljóði upp á um 20 pró­sent hækkun lægstu launa. Staðan sem uppi er á vinnu­mark­aði hefur að mati pen­inga­stefnu­nefndar Seðla­bank­ans verið ein helsta ástæða fyrir því að halda stýri­vöxtum óbreyttum und­an­farna mán­uði, þrátt fyrir lága verð­bólgu sem er undir 2,5...

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár