Svona er hægt að lækka tryggingakostnaðinn

Aðal­steinn Leifsson, sér­fræð­ingur í samn­inga­tækni, og Andrea ofur­neyt­andi fóru yfir trygg­inga­mál Andreu í fjórða þætti Ferðar til fjár. Andrea vildi athuga hvort hún gæti lækkað kostn­að­inn við trygg­ingar heim­il­is­ins en áður en Andrea hélt í það ferða­lag, þá ráð­lagi Aðal­steinn henni að fara vel yfir þær trygg­ingar sem hún vill hafa. „Það er ágætt að fá ráð­legg­ingar frá trygg­inga­fé­lag­inu, en líka að taka eigin, upp­lýsta ákvörðun um þína trygg­inga­vernd.“

Aðal­steinn sagði flesta þá sem leita betri kjara ein­fald­lega halda á fund í sínu trygg­ing­ar­fé­lagi og biðja vin­sam­lega um betri kjör. „Það er ágætt og gott að fá betri kjör. En vanda­málið er að það getur verið erfitt að sjá hvaða kjör eru ásætt­an­leg og hver ekki. Það er erfitt að meta hvort til­boðið sé gott eða slæmt,“ sagði Aðal­steinn. Til þess að fá sam­an­burð og bæta samn­inga­stöð­una sé því best að fá til­boð frá öðru trygg­ing­ar­fé­lagi sam­tímis.

Ekki skipta strax

Andrea ræddi við tvö trygg­ing­ar­fé­lög og fékk til­boð frá báðum. Annað félag­anna var það sem hún var fyrir með sín við­skipti. Hitt félagið sem hún tal­aði við bauð henni þó betri kjör.


Aðal­steinn lagði áherslu á að stökkva ekki til og skipta um félag. „Sem ein­stak­lingur í samn­inga­við­ræðum við stórt trygg­ing­ar­fé­lag þá spáir þú í hlutum sem eru ann­ars eðlis en ein­ungis bestu kjörin. Til dæmis ástæður þess af hverju þú valdir hitt félagið í upp­hafi. Það er líka ákveðið vesen og umstang að skipta um trygg­ing­ar­fé­lag.“


Hann ráð­lagði Andreu að skoða lægra til­boðið og velta fyrir sér þessum óefn­is­legu þáttum, það er hversu mikið lægra nýja trygg­ing­ar­fé­lagið þurfi að bjóða svo það borgi sig að færa við­skiptin. „En þú sérð að það er tölu­verður munur á að ganga inn í þitt trygg­ing­ar­fé­lag án þess að vera með til­boð í hend­inni, og ganga inn vit­andi að þú ert með hag­stæð­ara til­boð ann­ars staðar frá.“


Vopnuð lægra til­boð­inu hélt Andrea á fund við sitt gamla trygg­ing­ar­fé­lag. Þar voru henni boðin enn betri kjör en hitt félagið hafði boðið og hélt hún sér því í við­skiptum á sama stað og áður. Samn­inga­við­ræð­urnar voru sann­ar­lega ferð til fjár!


Kjarninn og Stofnun um fjár­mála­læsi hafa tekið höndum saman og munu fjalla ítar­lega um heim­il­is­fjár­mál sam­hliða þátt­unum Ferð til fjár, sem sýndir verða á RÚV næstu vikur. Mark­miðið: Að stuðla að betra fjár­mála­læsi hjá lands­mönnum! Næsti þáttur er á dag­skrá fimmtu­dag­inn 12. febr­úar. Fylgstu með á Facebook-síðu Ferðar til fjár.


Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Ferð til fjár

SkýringFerð til fjár

Fjögur gröf sem útskýra fast­eigna­mark­að­inn

Í nýjasta riti Fjár­mála­stöð­ug­leika, árs­fjórð­ungs­legri skýrslu Seðla­banka Íslands, er nokkuð fjallað um þróun fast­eigna­verðs og þær hækk­anir sem orðið hafa á íbúða­verði að und­an­förnu. Þróunin á Íslandi er meðal ann­ars borin saman við önnur lönd en í skýrsl­unni segir að ekki séu merki um bólu­myndun á fast­eigna­mark­aðnum í heild. Engu að síður sé fast­eigna­verð orðið hátt á flesta mæli­kvarða í...
FréttirFerð til fjár

Vænt­ingar dvína í skugga kjara­við­ræðna

Vænt­inga­vísi­tala Gallups lækk­aði um 17 stig í apr­íl­mán­uði og mælist nú 84,3 stig. Lækkunin er sú mesta á vísi­töl­unni milli mán­aða í tæp tvö ár. Vísi­talan fór yfir 100 stig í mars síð­ast­liðnum en vísi­talan er mæld á bil­inu 0 til 200 stigug, þar sem gildið 100 þýðir að jafn­margir aðspurðra neyt­enda eru bjart­sýnir og svart­sýnir á stöðu og horfir...
FréttirFerð til fjár

Per­sónu­af­slátt­ur­inn er 610.825 krónur í ár

Per­sónu­af­sláttur ein­stak­linga er 610.825 krónur fyrir árið 2015 eða 50.902 krónur að með­al­tali á mán­uði. Það er hækkun um 4.848 krónur frá árinu 2014, eða um 404 krónur á mán­uði. Hækkunin nemur 0,8% en hún er lögum sam­kvæmt í takt við verð­bólgu­þróun. Fjallað er um per­sónu­af­slátt, stað­greiðslu og trygg­inga­gjald árs­ins 2015 í grein í Tíund, frétta­blaði Rík­is­skatt­stjóra. Fram kemur að...
FréttirFerð til fjár

Verð­bólgan étur kaup­mátt­inn

Hækkun verð­lags í mars­mán­uði varð til þess að kaup­máttur launa dróst saman um 0,8 pró­sent. Kaup­máttur launa, eins og hann mælist sam­kvæmt vísi­tölu Hag­stof­unnar, hafði hækkað nán­ast stans­laust í tólf mán­uði en dróst núna saman. Árs­hækkun kaup­máttar launa mælist engu að síður um 4 pró­sent, en árs­hækkun mæld­ist 5,6 pró­sent í febr­úar. Hag­stofan birti í dag upp­færða vísi­tölu launa í...
FréttirFerð til fjár

Íslend­ingar eru sam­vinnu­þýð­ari en aðrir

Íslenskir stúd­entar eru sam­vinnu­þýð­ari en banda­rískir stúd­entar og leggja sig harðar fram við að halda hópa­vinnu gang­andi. Ýmsir félags­þættir benda til að Íslend­ingar sam­svari sig almennt betur í hópi fólks og séu það sem kallað er á ensku group minded á kostnað ein­stak­lings­hyggju. [caption id="attachment_26395" align="alignleft" width="139"] Dr. Anna Gunn­þórs­dóttir.[/caption]Þetta sýna nið­ur­stöður rann­sóknar sem Dr. Anna Gunn­þórs­dóttir hefur unnið að...
SkýringFerð til fjár

Deilt um sam­band launa­hækk­ana og verð­bólgu

Kröfur margra stétt­ar­fé­laga í yfir­stand­andi kjara­deilum á vinnu­mark­aði hljóða upp á veru­lega hækkun launa­taxta og dæmi eru um að kröfur hljóði upp á um 20 pró­sent hækkun lægstu launa. Staðan sem uppi er á vinnu­mark­aði hefur að mati pen­inga­stefnu­nefndar Seðla­bank­ans verið ein helsta ástæða fyrir því að halda stýri­vöxtum óbreyttum und­an­farna mán­uði, þrátt fyrir lága verð­bólgu sem er undir 2,5...

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár