Persónuvernd lauk ekki athugun á samskiptum Gísla Freys og Sigríðar

Stjórn Per­sónu­verndar náði ekki að ljúka athugun sinni á sam­skiptum Sigríðar Bjarkar Guð­jóns­dóttur, þáver­andi lög­reglu­stjóra á Suð­ur­nesjum, og Gísla Freys Val­dórs­sonar, þáver­andi aðstoð­ar­manns Hönnu Birnu Krist­jáns­dóttur inn­an­rík­is­ráð­herra, á fundi sínum í gær eins og vonir stóðu til.

Kjarninn greindi frá því í síð­ustu viku að Per­sónu­vernd álíti tölvu­póst, sem Sigríður Björk sendi Gísla Frey með grein­ar­gerð um hæl­is­leit­and­ann Tony Omos að kvöldi dags þegar fyrstu frétt­irnar í leka­mál­inu birt­ust í fjöl­miðlum, vera lyk­il­gagn í rann­sókn stofn­un­ar­innar. Eins og kunn­ugt er byggðu umræddar fréttir á minn­is­blaði sem Gísli Freyr lak til fjöl­miðla, og hlaut skil­orðs­bund­inn fang­els­is­dóm fyrir í Hér­aðs­dómi Reykja­víkur.

Við eft­ir­grennslan Per­sónu­verndar feng­ust þau svör hjá inn­an­rík­is­ráðu­neyt­inu og lög­reglu­stjóra­emb­ætt­inu á Suð­ur­nesjum að tölvu­póst­inn væri þar hvergi að finna. Þá óskaði Per­sónu­vernd bréfleiðis eftir því að Sigríður Björk og Gísli afhentu tölvu­póst­inn. Þá krafði Per­sónu­vernd Sigríði um skýr­ingar á því hvernig hún hefði tryggt gagna­ör­yggi þegar hún sendi Gísla Frey grein­ar­gerð­ina um Tony Omos. Per­sónu­vernd féllst á beiðni Sigríðar um fram­lengdan frest til að afhenda umbeðin gögn, sá frestur rann út á föstu­dag­inn.

Öll umbeðin gögn komin til Persónuverndar


Í sam­tali við Kjarnann segir Björg Thoraren­sen, stjórn­ar­for­maður Per­sónu­verndar, að öll umbeðin gögn vegna máls­ins hafi nú skilað sér til stofn­un­ar­innar. Vonir hafi staðið til að ljúka mál­inu á fundi stjórn­ar­innar í gær, en það hafi ekki reynst ger­legt. Björg segir að nú sé unnið að því að fara gaum­gæfi­lega yfir gögn, og úti­lokar ekki að Per­sónu­vernd muni óska eftir frek­ari gögnum vegna rann­sókn­ar­innar. Aðspurð um hvað hafi valdið seinkun á fyr­ir­hug­aðri afgreiðslu máls­ins, vildi stjórn­ar­for­maður Per­sónu­verndar ekki svara neinu til um það.

Næsti stjórn­ar­fundur hjá Per­sónu­vernd er fyr­ir­hug­aður 26. febr­úar næst­kom­andi. Stofn­unin mun því ekki afgreiða málið fyrir sitt leyti fyrr en í fyrsta lagi þá. Í fram­hald­inu verður máls­að­ilum kynnt nið­ur­staða stofn­un­ar­innar og hún birt að loknum umsagn­ar­fresti. Því er ljóst að tölu­verður dráttur verður á birt­ingu úrskurðar Per­sónu­verndar.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Lekamálið

FréttirLekamálið

Umboðs­maður Alþingis: Borgarar verða að geta treyst því að stjórn­mála­menn skipti sér ekki af lög­reglu­rann­sóknum

„Ég tel nauð­syn­legt sem umboðs­maður Alþingis að vera á varð­bergi um að slík þróun verði ekki í íslenskri stjórn­sýslu,“ segir umboðs­maður í umfjöllun sinni um hátt­semi Hönnu Birnu Krist­jáns­dóttur í árs­skýrslu fyrir 2015. Afskipti ráð­herra af störfum lög­regl­unnar drógu dilk á eftir sér.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár