Góð ráð við bílakaup og bölvun sigurvegarans

Andrea Sóleyjar og Björg­vins­dóttir, eða Andrea ofur­neyt­andi eins og áhorf­endur Ferðar til fjár þekkja hana, leit­aði sér að nýjum bíl í síð­asta þætti. Eins og fyrr þá var Aðal­steinn Leifsson, sér­fræð­ingur í samn­inga­tækni, Andreu til ráð­gjafar og veitti henni góð ráð.

„Það sem ger­ist oft í bíla­kaupum er að fólk verður ást­fangið af til­teknum bíl. Það verður að eign­ast þennan ákveðna bíl. Þegar við erum komin með þá til­finn­ingu að við verðum að eign­ast hlut­inn, þá erum við oft til­búin að gera nán­ast hvað sem er til þess að eign­ast hann. Þá hverfur okkar samn­ings­staða út um glugg­ann,“ sagði Aðal­steinn.


Lausnin væri sú að hafa alltaf nokkra val­mögu­leika. „Ef við getum leyst okkar þarfir með því að kaupa ólíka bíla, þá batnar samn­ings­staða okkar til muna. Í öllum samn­ings­við­ræðum sem þú vilt fara í, þá áttu að hafa ólíka val­mögu­leika. Við reynum að semja við tvo eða þrjá á sama tíma, og þar er allt algjör­lega uppi á borð­inum og við gerum það heið­ar­lega. Því lengra sem við komumst með einum selj­anda, því betri samn­ings­stöðu höfum við að semja við hinn.“

Bölvun sigurvegarans

Áður en Andrea hélt úti á bíla­sölu, þá útskýrði Aðal­steinn hvernig það geti gerst að eig­andi bíls­ins verði ánægð­ari en ella ef hún borgar minna fyrir bíl­inn. Slíkt kall­ist bölvun sig­ur­veg­ar­ans og geti gerst þegar maður sam­þykkir strax til­boðið sem býðst. Til dæmis, ef eig­andi bíls­ins vill fá 1,1 milljón fyrir hann, og kaup­and­inn segir um hæl: „Frábært, ég tek hann,“ þá getur sú til­finn­ing setið í selj­and­anum að hann hefði getað fengið hærra verð fyrir bíl­inn – bölvun sig­ur­veg­ar­ans.


Andrea hélt út á bíla­sölu. Hún vildi finna bíl sem hentar henni og börn­unum þremur, vinum þeirra, far­angri og hverju öðru sem fjöl­skyldu­bíll þarf að ferja. „Sjö manna strumpar­úta með stórri hurð“ var bíll­inn sem Andrea leit­aði að, en hún hefur fram til þessa keyrt bíl for­eldra sinna. Hún rifj­aði upp ráð Aðal­steins: Að vita hversu mikið hún er til­búin að borga fyrir bíl­inn og hversu mikið hún getur farið út fyrir þá upp­hæð.


Fyrsti bíl­inn sem Andrea sá var sjö manna strumpar­úta sem kost­aði 990 þús­und krónur. Hinn bíl­inn sem hent­aði var af sömu gerð, árinu yngri og á til­boðs­verði, 1.490 þús­und krónur í stað 1.650 þús­und áður. Með falda mynda­vél fór hún og ræddi við bíla­sölu­menn­ina og bauð 580 þús­und í fyrri bíl­inn, eða 410 þús­und krónum lægra en ásett verð. Hún hafði í huga að borga allt að 700 þús­und fyrir bíl­inn, en að ráði Aðal­steins bauð hún tölu­vert lægra verð, eða 580 þús­und. Viti menn, eig­and­inn sam­þykkti til­boðið sím­leiðis, og Andrea upp­lifði bölvun sig­ur­veg­ar­ans!


Henni leið aðeins betur þegar í ljós kom að eig­and­inn hafði hringt og ætlað að hætta við, honum þótti til­boðið of lágt en stóð þó við það ef Andrea væri áhuga­söm.


Þess ber að geta að Andrea keyrir enn um á bíl for­eldra sinna. Það er kannski besta sparn­að­ar­leiðin eftir allt saman?


Kjarninn og Stofnun um fjár­mála­læsi hafa tekið höndum saman og munu fjalla ítar­lega um heim­il­is­fjár­mál sam­hliða þátt­unum Ferð til fjár, sem sýndir verða á RÚV næstu vikur. Mark­miðið: Að stuðla að betra fjár­mála­læsi hjá lands­mönnum! Næsti þáttur er á dag­skrá fimmtu­dag­inn 5. febr­úar. Fylgstu með á Facebook-síðu Ferðar til fjár.


Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Ferð til fjár

SkýringFerð til fjár

Fjögur gröf sem útskýra fast­eigna­mark­að­inn

Í nýjasta riti Fjár­mála­stöð­ug­leika, árs­fjórð­ungs­legri skýrslu Seðla­banka Íslands, er nokkuð fjallað um þróun fast­eigna­verðs og þær hækk­anir sem orðið hafa á íbúða­verði að und­an­förnu. Þróunin á Íslandi er meðal ann­ars borin saman við önnur lönd en í skýrsl­unni segir að ekki séu merki um bólu­myndun á fast­eigna­mark­aðnum í heild. Engu að síður sé fast­eigna­verð orðið hátt á flesta mæli­kvarða í...
FréttirFerð til fjár

Vænt­ingar dvína í skugga kjara­við­ræðna

Vænt­inga­vísi­tala Gallups lækk­aði um 17 stig í apr­íl­mán­uði og mælist nú 84,3 stig. Lækkunin er sú mesta á vísi­töl­unni milli mán­aða í tæp tvö ár. Vísi­talan fór yfir 100 stig í mars síð­ast­liðnum en vísi­talan er mæld á bil­inu 0 til 200 stigug, þar sem gildið 100 þýðir að jafn­margir aðspurðra neyt­enda eru bjart­sýnir og svart­sýnir á stöðu og horfir...
FréttirFerð til fjár

Per­sónu­af­slátt­ur­inn er 610.825 krónur í ár

Per­sónu­af­sláttur ein­stak­linga er 610.825 krónur fyrir árið 2015 eða 50.902 krónur að með­al­tali á mán­uði. Það er hækkun um 4.848 krónur frá árinu 2014, eða um 404 krónur á mán­uði. Hækkunin nemur 0,8% en hún er lögum sam­kvæmt í takt við verð­bólgu­þróun. Fjallað er um per­sónu­af­slátt, stað­greiðslu og trygg­inga­gjald árs­ins 2015 í grein í Tíund, frétta­blaði Rík­is­skatt­stjóra. Fram kemur að...
FréttirFerð til fjár

Verð­bólgan étur kaup­mátt­inn

Hækkun verð­lags í mars­mán­uði varð til þess að kaup­máttur launa dróst saman um 0,8 pró­sent. Kaup­máttur launa, eins og hann mælist sam­kvæmt vísi­tölu Hag­stof­unnar, hafði hækkað nán­ast stans­laust í tólf mán­uði en dróst núna saman. Árs­hækkun kaup­máttar launa mælist engu að síður um 4 pró­sent, en árs­hækkun mæld­ist 5,6 pró­sent í febr­úar. Hag­stofan birti í dag upp­færða vísi­tölu launa í...
FréttirFerð til fjár

Íslend­ingar eru sam­vinnu­þýð­ari en aðrir

Íslenskir stúd­entar eru sam­vinnu­þýð­ari en banda­rískir stúd­entar og leggja sig harðar fram við að halda hópa­vinnu gang­andi. Ýmsir félags­þættir benda til að Íslend­ingar sam­svari sig almennt betur í hópi fólks og séu það sem kallað er á ensku group minded á kostnað ein­stak­lings­hyggju. [caption id="attachment_26395" align="alignleft" width="139"] Dr. Anna Gunn­þórs­dóttir.[/caption]Þetta sýna nið­ur­stöður rann­sóknar sem Dr. Anna Gunn­þórs­dóttir hefur unnið að...
SkýringFerð til fjár

Deilt um sam­band launa­hækk­ana og verð­bólgu

Kröfur margra stétt­ar­fé­laga í yfir­stand­andi kjara­deilum á vinnu­mark­aði hljóða upp á veru­lega hækkun launa­taxta og dæmi eru um að kröfur hljóði upp á um 20 pró­sent hækkun lægstu launa. Staðan sem uppi er á vinnu­mark­aði hefur að mati pen­inga­stefnu­nefndar Seðla­bank­ans verið ein helsta ástæða fyrir því að halda stýri­vöxtum óbreyttum und­an­farna mán­uði, þrátt fyrir lága verð­bólgu sem er undir 2,5...

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár