Heldur úti ítarlegri upplýsingaveitu um fasteignamarkaðinn

Þröstur Svein­björns­son, hag­fræð­ingur og for­rit­ari, hefur um nokk­urra ára skeið haldið úti vef­síð­unni Lana­reiknir.is. Á síð­unni eru upp­lýs­ingar um nær allt það sem við­kemur fast­eigna­mark­að­inum og fast­eigna­lánum, meðal ann­ars ásett með­al­verð fast­eigna skipt eftir hverfum höf­uð­borg­ar­svæð­is­ins, þróun fast­eigna­verðs sam­kvæmt nýj­ustu opin­beru gögnum og reikni­vélar fyrir mis­mun­andi lána­form. Þá eru einnig upp­lýs­ingar um þau kjör sem við­skipta­bank­arnir eru að bjóða og nýj­ustu efna­hags­fréttir.

Þröstur segir hug­mynd­ina fyrst hafa kviknað þegar hann starf­aði hjá Umboðs­manni skuld­ara fyrir nokkrum árum. „Ég fékk spurn­ingar um kosti verð­tryggðra og óverð­tryggðra lána og fór þá að vinna að þessu verk­efni. Ég bjó til reikni­vélar sem sýndu mun­inn á mis­mun­andi lána­formunum.“


Reikni­vél­arnar er allar að finna inn á lána­reiknir.is. Vefsíðan hefur þó tekið tölu­verðum breyt­ingum og er nú heild­stæð­ari fast­eigna­vefur en áður. Þröstur vinnur að enn frek­ari breyt­ingum og stefnir á að setja þær loftið innan tíðar.

Sýnir verðþróun eftir hverfum

Lána­reiknir.is not­ast við opin­berar upp­lýs­ingar Þjóð­skrár um verð­þróun á fast­eigna­mark­að­inum og einnig fast­eigna­vefi Vísis og Mbl.is. Til dæmis er hægt að sjá að í dag er ásett með­al­verð á fast­eign til sölu í Aust­ur­bænum um 40,3 millj­ónir króna. Alls eru 237 íbúðir til sölu á svæð­inu. Fer­metra­verð þeirrar dýr­ustu er 720 þús­und krónur en fer­metra­verð þeirrar ódýr­ustu er 243 þús­und krónur. Upp­lýs­ing­arnar upp­fær­ast dag­lega.


Hægt er að sækja sam­bæri­legar upp­lýs­ingar fyrir öll hverfi höf­uð­borg­ar­svæð­is­ins auk þess sem nákvæm stað­setn­ing hverrar íbúðar birt­ist á korti með helstu upp­lýs­ingum um stærð og gerð.


Kjara­samn­ing­arnir skipta máli


Fast­eigna­verð hækk­aði um tæp 10% á síð­asta ári og spá sumir grein­ing­ar­að­ilar að slíkar hækk­anir haldi áfram næstu árin . Spurður um eigin sýn á þró­un­ina segir Þröstur að í sam­an­burði við mark­að­inn fyrir hrun þá sé fjöldi samn­inga langt frá því sem þá þekkt­ist, þótt velta á mark­aði sé nú á svip­uðum stað. „Þannig er velta á hvern samn­ing að aukast. Það er vert að hafa í huga að inn­koma fast­eigna­sjóða hefur haft áhrif. Þeir hafa að stærstum hluta fjár­fest mið­svæðis í Reykja­vík og ef borið er saman ásett verð á þessu svæði og raun­verð frá Þjóðskrá, þá má sjá að hækk­unin hefur verið mest mið­svæðið.

[caption id="attachment_15673" align="alignnone" width="2363"] Verð­breyt­ingar og velta á fast­eigna­mark­að­inum á höf­uð­borg­ar­svæð­inu 2007 til 2014.[/caption]

Hvað áfram­hald­andi þróun varðar segir Þröstur að ytri horfur skipti miklu máli. „Ef verð­bólgan er áfram lág og vextir lækka þá er lík­legt að fast­eigna­verð hækki í takt við það. Ef kaup­mátt­ar­þró­unin verður hag­felld þá eykst greiðslu­geta fólks. Komandi kjara­samn­ingar skipta því mjög miklu máli, hvort þeir heppn­ist þannig að kaup­máttur eykst, en að launa­hækk­anir fari ekki allar út í verð­lagið,“ segir Þröstur. Hann telur þetta miklu máli skipta og talar fyrir hóf­legum hækk­unum fast­eigna­verðs „Skulda­leið­rétt­ingin getur einnig haft jákvæð áhrif, þar sem greiðslu­byrði fólks lækkar. Ég sé þó ekki að þau áhrif verði eins mikil og sumir hafa viljað af láta, þótt lækk­unin geti vissu­lega hjálpað.“


Kjarninn og Stofnun um fjár­mála­læsi hafa tekið höndum saman og munu fjalla ítar­lega um heim­il­is­fjár­mál sam­hliða þátt­unum Ferð til fjár, sem sýndir verða á RÚV næstu vikur. Mark­miðið: Að stuðla að betra fjár­mála­læsi hjá lands­mönnum! Næsti þáttur er á dag­skrá fimmtu­dag­inn 5. febr­úar. Fylgstu með á Facebook-síðu Ferðar til fjár.



Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Ferð til fjár

SkýringFerð til fjár

Fjögur gröf sem útskýra fast­eigna­mark­að­inn

Í nýjasta riti Fjár­mála­stöð­ug­leika, árs­fjórð­ungs­legri skýrslu Seðla­banka Íslands, er nokkuð fjallað um þróun fast­eigna­verðs og þær hækk­anir sem orðið hafa á íbúða­verði að und­an­förnu. Þróunin á Íslandi er meðal ann­ars borin saman við önnur lönd en í skýrsl­unni segir að ekki séu merki um bólu­myndun á fast­eigna­mark­aðnum í heild. Engu að síður sé fast­eigna­verð orðið hátt á flesta mæli­kvarða í...
FréttirFerð til fjár

Vænt­ingar dvína í skugga kjara­við­ræðna

Vænt­inga­vísi­tala Gallups lækk­aði um 17 stig í apr­íl­mán­uði og mælist nú 84,3 stig. Lækkunin er sú mesta á vísi­töl­unni milli mán­aða í tæp tvö ár. Vísi­talan fór yfir 100 stig í mars síð­ast­liðnum en vísi­talan er mæld á bil­inu 0 til 200 stigug, þar sem gildið 100 þýðir að jafn­margir aðspurðra neyt­enda eru bjart­sýnir og svart­sýnir á stöðu og horfir...
FréttirFerð til fjár

Per­sónu­af­slátt­ur­inn er 610.825 krónur í ár

Per­sónu­af­sláttur ein­stak­linga er 610.825 krónur fyrir árið 2015 eða 50.902 krónur að með­al­tali á mán­uði. Það er hækkun um 4.848 krónur frá árinu 2014, eða um 404 krónur á mán­uði. Hækkunin nemur 0,8% en hún er lögum sam­kvæmt í takt við verð­bólgu­þróun. Fjallað er um per­sónu­af­slátt, stað­greiðslu og trygg­inga­gjald árs­ins 2015 í grein í Tíund, frétta­blaði Rík­is­skatt­stjóra. Fram kemur að...
FréttirFerð til fjár

Verð­bólgan étur kaup­mátt­inn

Hækkun verð­lags í mars­mán­uði varð til þess að kaup­máttur launa dróst saman um 0,8 pró­sent. Kaup­máttur launa, eins og hann mælist sam­kvæmt vísi­tölu Hag­stof­unnar, hafði hækkað nán­ast stans­laust í tólf mán­uði en dróst núna saman. Árs­hækkun kaup­máttar launa mælist engu að síður um 4 pró­sent, en árs­hækkun mæld­ist 5,6 pró­sent í febr­úar. Hag­stofan birti í dag upp­færða vísi­tölu launa í...
FréttirFerð til fjár

Íslend­ingar eru sam­vinnu­þýð­ari en aðrir

Íslenskir stúd­entar eru sam­vinnu­þýð­ari en banda­rískir stúd­entar og leggja sig harðar fram við að halda hópa­vinnu gang­andi. Ýmsir félags­þættir benda til að Íslend­ingar sam­svari sig almennt betur í hópi fólks og séu það sem kallað er á ensku group minded á kostnað ein­stak­lings­hyggju. [caption id="attachment_26395" align="alignleft" width="139"] Dr. Anna Gunn­þórs­dóttir.[/caption]Þetta sýna nið­ur­stöður rann­sóknar sem Dr. Anna Gunn­þórs­dóttir hefur unnið að...
SkýringFerð til fjár

Deilt um sam­band launa­hækk­ana og verð­bólgu

Kröfur margra stétt­ar­fé­laga í yfir­stand­andi kjara­deilum á vinnu­mark­aði hljóða upp á veru­lega hækkun launa­taxta og dæmi eru um að kröfur hljóði upp á um 20 pró­sent hækkun lægstu launa. Staðan sem uppi er á vinnu­mark­aði hefur að mati pen­inga­stefnu­nefndar Seðla­bank­ans verið ein helsta ástæða fyrir því að halda stýri­vöxtum óbreyttum und­an­farna mán­uði, þrátt fyrir lága verð­bólgu sem er undir 2,5...

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár