Bensínið jafn dýrt og 2007 – Minni verðmunur á mjólk og bensíni

Verð á bens­ín­lítra á afgreiðslu­stöðvum olíu­fé­lag­anna er í dag svipað og það var fyrir um sjö árum síðan.* Á föstu verð­lagi er lítra­verðið í dag ekki fjarri algengu verði á tíma­bil­unum 2004 til 2007 og 200o til 2001. Það er þó enn tölu­vert hærra en það var fyrir alda­mótin 2000. Grafið hér að neðan sýnir þró­un­ina frá 1997 til 2015 þar sem með­al­verð hvers árs hefur verið umreiknað yfir í krónur á verð­lagi árs­ins 2014.

Verð á bens­íni á föstu verð­lagi 1997 til 2015

|

Create infographics

Bens­ín­verð hefur lækkað hratt frá miðju síð­asta ári. Algengt er að lítra­verð við dæl­una sé nú um 50 krónum lægra en það var um mitt síð­asta ár. Áhuga­vert er að skoða þróu­ina í sam­an­burði við aðra algenga vöru á heim­il­inu eins og mjólk. Sú var tíðin að lítri af bens­íni og mjólk kost­aði nán­ast það sama. Árið 1999 kost­aði mjólk­ur­lítr­inn um 73 krónur sam­kvæmt verð­lags­mæl­ingu Hag­stof­unnar og verð á lítra af 95 okt­ana bens­íni með fullri þjón­ustu kost­aði 78 krónur. Verðið var nokkuð svipað fram til árs­ins 2000.


Á graf­inu hér að ofan eru verð­breyt­ingar á mjólk og bens­íni sýndar eins og þær birt­ust út í verslun á hverju ári, þ.e. ekki hefur verið tekið til verð­bólgu í land­inu. Verð­mun­ur­inn á bens­íni og mjólk var um 50 krónur árið 2006, árið 2012 var hann orð­inn um 135 krónur og er í dag um 70 krónur.




Töluvert önnur mynd fæst þegar verð­breyt­ingar á mjólk og bens­íni eru færðar á fast verð­lag árs­ins 2014. Þá sést að þrátt fyrir að lítri af mjólk sé út í verslun um 50 krónum dýr­ari í dag en hann var árið 2004, þá hefur hann í raun lækkað í verði, séu verð hvers árs umreikn­aðir á virði krón­unnar árið 2014 (fast verð­lag).


Verð­mun­ur­inn á þessum tveimur vörum var þannig meiri árið 2006 en hann er í dag, eða tæpar 80 krónur árið 2006 sam­an­borið við um 70 krónur í dag. Á föstu verð­lagi var mun­ur­inn árið 2012 heilar 145 krónur. Verð­lækk­anir und­an­farið hafa þar með dregið veru­lega úr bil­inu á milli mjólkur og bens­íns, þótt enn sé nokkuð langt í það verði eins og skömmu fyrir alda­mótin 2000.


Tengt efni:


- Hversu miklu skila olíu­lækk­anir sér í minni útgjöldum heim­il­is­ins? Við reikn­uðum það út hér.


-Frétt NY Times um verð­breyt­ingar á bens­íni í Banda­ríkj­unum á föstu verð­lagi.


*Með því að færa verð hvers árs á fast verð­lag árs­ins 2014 er búið að leið­rétta verð bens­ín­lítrans fyrir breyt­ingum á verð­mæti hverrar krónu. Vegna breyt­inga á virði gjald­miðla, sem í sögu­legu til­liti krón­unnar hefur ávallt verið rýrnun, þá þarf sífellt fleiri krónur til að kaupa sama magn af vörum og áður. þetta mælir verð­bólgan, sem er breyt­ing á vísi­tölu neyslu­verðs síð­ustu tólf mán­uði. Við útreikn­ina í þess­ari grein var not­ast við með­al­tal vísi­tölu neyslu­verðs á hverju ári.


Kjarninn og Stofnun um fjár­mála­læsi hafa tekið höndum saman og munu fjalla ítar­lega um heim­il­is­fjár­mál sam­hliða þátt­unum Ferð til fjár, sem sýndir verða á RÚV næstu vikur. Mark­miðið: Að stuðla að betra fjár­mála­læsi hjá lands­mönnum! Næsti þáttur er á dag­skrá fimmtu­dag­inn 29. jan­úar. Fylgstu með á Facebook-síðu Ferð til fjár.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Ferð til fjár

SkýringFerð til fjár

Fjögur gröf sem útskýra fast­eigna­mark­að­inn

Í nýjasta riti Fjár­mála­stöð­ug­leika, árs­fjórð­ungs­legri skýrslu Seðla­banka Íslands, er nokkuð fjallað um þróun fast­eigna­verðs og þær hækk­anir sem orðið hafa á íbúða­verði að und­an­förnu. Þróunin á Íslandi er meðal ann­ars borin saman við önnur lönd en í skýrsl­unni segir að ekki séu merki um bólu­myndun á fast­eigna­mark­aðnum í heild. Engu að síður sé fast­eigna­verð orðið hátt á flesta mæli­kvarða í...
FréttirFerð til fjár

Vænt­ingar dvína í skugga kjara­við­ræðna

Vænt­inga­vísi­tala Gallups lækk­aði um 17 stig í apr­íl­mán­uði og mælist nú 84,3 stig. Lækkunin er sú mesta á vísi­töl­unni milli mán­aða í tæp tvö ár. Vísi­talan fór yfir 100 stig í mars síð­ast­liðnum en vísi­talan er mæld á bil­inu 0 til 200 stigug, þar sem gildið 100 þýðir að jafn­margir aðspurðra neyt­enda eru bjart­sýnir og svart­sýnir á stöðu og horfir...
FréttirFerð til fjár

Per­sónu­af­slátt­ur­inn er 610.825 krónur í ár

Per­sónu­af­sláttur ein­stak­linga er 610.825 krónur fyrir árið 2015 eða 50.902 krónur að með­al­tali á mán­uði. Það er hækkun um 4.848 krónur frá árinu 2014, eða um 404 krónur á mán­uði. Hækkunin nemur 0,8% en hún er lögum sam­kvæmt í takt við verð­bólgu­þróun. Fjallað er um per­sónu­af­slátt, stað­greiðslu og trygg­inga­gjald árs­ins 2015 í grein í Tíund, frétta­blaði Rík­is­skatt­stjóra. Fram kemur að...
FréttirFerð til fjár

Verð­bólgan étur kaup­mátt­inn

Hækkun verð­lags í mars­mán­uði varð til þess að kaup­máttur launa dróst saman um 0,8 pró­sent. Kaup­máttur launa, eins og hann mælist sam­kvæmt vísi­tölu Hag­stof­unnar, hafði hækkað nán­ast stans­laust í tólf mán­uði en dróst núna saman. Árs­hækkun kaup­máttar launa mælist engu að síður um 4 pró­sent, en árs­hækkun mæld­ist 5,6 pró­sent í febr­úar. Hag­stofan birti í dag upp­færða vísi­tölu launa í...
FréttirFerð til fjár

Íslend­ingar eru sam­vinnu­þýð­ari en aðrir

Íslenskir stúd­entar eru sam­vinnu­þýð­ari en banda­rískir stúd­entar og leggja sig harðar fram við að halda hópa­vinnu gang­andi. Ýmsir félags­þættir benda til að Íslend­ingar sam­svari sig almennt betur í hópi fólks og séu það sem kallað er á ensku group minded á kostnað ein­stak­lings­hyggju. [caption id="attachment_26395" align="alignleft" width="139"] Dr. Anna Gunn­þórs­dóttir.[/caption]Þetta sýna nið­ur­stöður rann­sóknar sem Dr. Anna Gunn­þórs­dóttir hefur unnið að...
SkýringFerð til fjár

Deilt um sam­band launa­hækk­ana og verð­bólgu

Kröfur margra stétt­ar­fé­laga í yfir­stand­andi kjara­deilum á vinnu­mark­aði hljóða upp á veru­lega hækkun launa­taxta og dæmi eru um að kröfur hljóði upp á um 20 pró­sent hækkun lægstu launa. Staðan sem uppi er á vinnu­mark­aði hefur að mati pen­inga­stefnu­nefndar Seðla­bank­ans verið ein helsta ástæða fyrir því að halda stýri­vöxtum óbreyttum und­an­farna mán­uði, þrátt fyrir lága verð­bólgu sem er undir 2,5...

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár