Hagur heimilanna ekki betri síðan fyrir hrun

Margt bendir til þess að hagur heim­il­anna hafi vænkast umtals­vert á síð­asta ári og benda tölu­legar upp­lýs­ingar til að kaup­máttur launa hafi auk­ist, íbúða­verð hækkað, vinnu­afls­notkun hafi auk­ist og atvinnu­leysið minnkað. Grein­ing Íslands­banka fjallar um bætta fjár­hags­stöðu íslenskra heim­ila í dag og segir ljóst að staðan hafi ekki verið betri síðan fyrir hrun banka­kerf­is­ins 2008.

Í pósti grein­ing­ar­deild­ar­innar er bent á að laun hafi hækkað um 5,8% á síð­asta ári. Hækkunin hafi verið meiri á árunum 2010 og 2011, en lág verð­bólga á síð­asta ári hafi gert það að verkum að hækkun launa skil­aði meiri kaup­mátt­ar­aukn­ingu en sést hefur hér á landi síðan 2007. Kaup­mátt­ar­aukn­ing síð­asta árs var 3,7% sam­an­borið við 3,8% árið 2007. Það ár var metár síðan Hag­stofan hóf að mæla kaup­mátt árið 1998.

„Kaup­máttur launa var í lok síð­ast­lið­ins árs orð­inn svip­aður og hann var þegar hann var mestur á þenslu­skeið­inu fyrir hrun bank­anna 2008. Hafði hann þá auk­ist um 15,6% frá því að hann var minnstur eftir hrunið. Segja má að hér sé um mark­verðan árangur að ræða, a.m.k. ef borið er saman við þá kaup­mátt­ar­aukn­ingu sem verið hefur í flestum nálægum ríkjum á sama tíma,“ segir í grein­ingu bank­ans.

Minna atvinnu­leysi og hærra íbúða­verð

Aðrir mæli­kvarðar sem grein­ing­ar­deildin lítur til eru þróun atvinnu­þátt­töku og íbúða­verðs. Atvinnu­leysi minnk­aði í fyrra, var 5% að með­al­tali sam­an­borið við 5,4% árið 2013 og 6% árið 2012. „Atvinnu­leysið er enn nokkuð hátt sam­an­borið við það sem það var fyrir hrunið 2008, en í því sam­bandi er rétt að hafa í huga að þá var mikil spenna á inn­lendum vinnu­mark­aði. Einnig hefur jafn­væg­isat­vinnu­leysið auk­ist í hag­kerf­inu. Þannig má segja með nokk­urri vissu að sá slaki sem mynd­að­ist á inn­lendum vinnu­mark­aði í kjöl­far hruns­ins 2008 sé því sem næst horf­inn,“ segir í grein­ing­unni.

Íbúða­verð hækk­aði um 8,6% á höf­uð­borg­ar­svæð­inu í fyrra og er það mesta hækkun íbúða­verðs á svæð­inu frá 2007, þegar það hækk­aði um 10,8% milli ára. Sömu sögu er að segja af land­inu öllu, þar sem verð hækk­aði um 8,4%. „Verð­hækkun hús­næðis hefur bætt hag þeirra heim­ila sem eiga sitt eigið hús­næði, sem eru all­flest íslensk heim­ili eða 73% á árinu 2013 sam­kvæmt könnun Hag­stof­unnar. Eru 55% heim­il­anna með hús­næð­is­lán og í flestum til­fellum um verð­tryggt lán að ræða. Eig­in­fjár­staða heim­il­anna hefur í þessum til­fellum auk­ist umtals­vert, en verð­bólgan var sér­stak­lega lág yfir síð­ast­liðið ár eða 0,8%.“

Spá áfram­hald­andi þróun í sömu átt

Greining Íslands­banka spáir því að hagur heim­il­anna haldi áfram að batna á þessu ári. „Spáum við því að laun muni hækka um 6,6% yfir þetta ár og að verð­bólgan verði 2,0% sam­kvæmt okkar nýj­ustu verð­bólgu­spá sem birt var nú um miðjan jan­úar. Kaup­máttur launa mun því aukast tals­vert á árinu gangi þessi spá eftir, þó aukn­ingin verði heldur minni en yfir þetta ár. Einnig reiknum við með því að hús­næð­is­verð hækki umtals­vert í ár þó við væntum einnig hæg­ari hækk­unar þar en á síð­asta ár. Raunverð íbúða mun halda áfram að hækka sam­kvæmt okkar spá. Eig­in­fjár­staða heim­il­anna í hús­næði mun því styrkj­ast enn frekar á þessu ári gangi spáin eftir.“

Kjarninn og Stofnun um fjár­mála­læsi hafa tekið höndum saman og munu fjalla ítar­lega um heim­il­is­fjár­mál sam­hliða þátt­unum Ferð til fjár, sem sýndir verða á RÚV næstu vikur. Mark­miðið: Að stuðla að betra fjár­mála­læsi hjá lands­mönnum! Næsti þáttur er á dag­skrá fimmtu­dag­inn 29. jan­úar. Fylgstu með á Facebook-síðu Ferð til fjár.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Ferð til fjár

SkýringFerð til fjár

Fjögur gröf sem útskýra fast­eigna­mark­að­inn

Í nýjasta riti Fjár­mála­stöð­ug­leika, árs­fjórð­ungs­legri skýrslu Seðla­banka Íslands, er nokkuð fjallað um þróun fast­eigna­verðs og þær hækk­anir sem orðið hafa á íbúða­verði að und­an­förnu. Þróunin á Íslandi er meðal ann­ars borin saman við önnur lönd en í skýrsl­unni segir að ekki séu merki um bólu­myndun á fast­eigna­mark­aðnum í heild. Engu að síður sé fast­eigna­verð orðið hátt á flesta mæli­kvarða í...
FréttirFerð til fjár

Vænt­ingar dvína í skugga kjara­við­ræðna

Vænt­inga­vísi­tala Gallups lækk­aði um 17 stig í apr­íl­mán­uði og mælist nú 84,3 stig. Lækkunin er sú mesta á vísi­töl­unni milli mán­aða í tæp tvö ár. Vísi­talan fór yfir 100 stig í mars síð­ast­liðnum en vísi­talan er mæld á bil­inu 0 til 200 stigug, þar sem gildið 100 þýðir að jafn­margir aðspurðra neyt­enda eru bjart­sýnir og svart­sýnir á stöðu og horfir...
FréttirFerð til fjár

Per­sónu­af­slátt­ur­inn er 610.825 krónur í ár

Per­sónu­af­sláttur ein­stak­linga er 610.825 krónur fyrir árið 2015 eða 50.902 krónur að með­al­tali á mán­uði. Það er hækkun um 4.848 krónur frá árinu 2014, eða um 404 krónur á mán­uði. Hækkunin nemur 0,8% en hún er lögum sam­kvæmt í takt við verð­bólgu­þróun. Fjallað er um per­sónu­af­slátt, stað­greiðslu og trygg­inga­gjald árs­ins 2015 í grein í Tíund, frétta­blaði Rík­is­skatt­stjóra. Fram kemur að...
FréttirFerð til fjár

Verð­bólgan étur kaup­mátt­inn

Hækkun verð­lags í mars­mán­uði varð til þess að kaup­máttur launa dróst saman um 0,8 pró­sent. Kaup­máttur launa, eins og hann mælist sam­kvæmt vísi­tölu Hag­stof­unnar, hafði hækkað nán­ast stans­laust í tólf mán­uði en dróst núna saman. Árs­hækkun kaup­máttar launa mælist engu að síður um 4 pró­sent, en árs­hækkun mæld­ist 5,6 pró­sent í febr­úar. Hag­stofan birti í dag upp­færða vísi­tölu launa í...
FréttirFerð til fjár

Íslend­ingar eru sam­vinnu­þýð­ari en aðrir

Íslenskir stúd­entar eru sam­vinnu­þýð­ari en banda­rískir stúd­entar og leggja sig harðar fram við að halda hópa­vinnu gang­andi. Ýmsir félags­þættir benda til að Íslend­ingar sam­svari sig almennt betur í hópi fólks og séu það sem kallað er á ensku group minded á kostnað ein­stak­lings­hyggju. [caption id="attachment_26395" align="alignleft" width="139"] Dr. Anna Gunn­þórs­dóttir.[/caption]Þetta sýna nið­ur­stöður rann­sóknar sem Dr. Anna Gunn­þórs­dóttir hefur unnið að...
SkýringFerð til fjár

Deilt um sam­band launa­hækk­ana og verð­bólgu

Kröfur margra stétt­ar­fé­laga í yfir­stand­andi kjara­deilum á vinnu­mark­aði hljóða upp á veru­lega hækkun launa­taxta og dæmi eru um að kröfur hljóði upp á um 20 pró­sent hækkun lægstu launa. Staðan sem uppi er á vinnu­mark­aði hefur að mati pen­inga­stefnu­nefndar Seðla­bank­ans verið ein helsta ástæða fyrir því að halda stýri­vöxtum óbreyttum und­an­farna mán­uði, þrátt fyrir lága verð­bólgu sem er undir 2,5...

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár