Hanna Birna spurði Stefán hvort hann hefði „virkilega talað við umboðsmann“

Umboðs­maður Alþingis sendi Hönnu Birnu Krist­jáns­dóttur, fyrr­ver­andi inn­an­rík­is­ráð­herra, fyrsta bréfið vegna leka­máls­ins svo­kall­aða þann 30. júlí síð­ast­lið­inn. Þar óskaði umboðs­maður eftir upp­lýs­ingum frá ráð­herra, svo hann gæti tekið afstöðu til þess hvort hann tæki málið til form­legrar athug­unar. Tildrög bréfs­ins má rekja til fréttar DV sem birt­ist dag­inn áður, þar sem full­yrt var að Stefán Eiríks­son, þáver­andi lög­reglu­stjóri á höf­uð­borg­ar­svæð­inu, hefði ákveðið að láta af störfum vegna afskipta Hönnu Birnu af lög­reglu­rann­sókn leka­máls­ins.

Í bréfi umboðs­manns til ráð­herra kemur jafn­framt fram að hann hafi átt sam­töl við Stefán Eiríks­son og Sigríði Frið­jóns­dóttur rík­is­sak­sókn­ara, sem einnig liggi til grund­vallar fyr­ir­spurn hans til ráð­herra.

Hringdi rakleiðis í Stefán og krafðist upplýsinga


Í áliti umboðs­manns, vegna frum­kvæð­is­at­hug­unar hans á sam­skiptum Hönnu Birnu og Stefáns vegna lög­reglu­rann­sóknar á leka­mál­inu, kemur fram að ráð­herra hafi hringt í lög­reglu­stjór­ann í kjöl­far bréfs­ins og spurt hvort hann hafi haft sam­band við umboðs­mann Alþingis.

Í álit­inu segir: „Lög­reglu­stjór­inn tjáði mér að ráð­herra hefði ekki verð sáttur við að hann hefði greint umboðs­manni frá sam­skiptum þeirra og spurt hvort hann hefði „virki­lega talað við umboðs­mann.“ [...] Þá hefur lög­reglu­stjór­inn greint mér frá því að þegar ráð­herra var að und­ir­búa svar­bréf til mín, sem síðar varð bréf, dags. 1. ágúst 2014, hafi lög­maður sem starf­aði fyrir ráð­herra hringt í hann og borið undir hann efn­is­at­riði í bréf­inu og spurt hvort hann gerði athuga­semdir við það. Til svara lög­reglu­stjór­ans við spurn­ingu lög­manns­ins var ekki vitnað í svar­bréfi ráð­herra til mín en það kom síðar fram í opin­berri umræðu að til­tekin orð úr þeim svörum áttu að vera til stað­fest­ingar á rétt­mæti orða ráð­herra um málið. Lög­reglu­stjór­inn tók fram í lýs­ingu sinni á sam­tal­inu við lög­mann­inn að hann hefði hins vegar sagt fleira en það hefði ekki fylgt með þegar aðrir greindu frá sam­tal­inu.“

Umboðs­maður minnir á að lög­reglu­stjóri hafi gefið grein­ar­góða lýs­ingu á sam­skiptum sínum við inn­an­rík­is­ráð­herra að beiðni umboðs­manns vegna lög­bund­ins eft­ir­lits hans með stjórn­sýsl­unni. „Ég tel að það geti hvorki sam­rýmst þeim sjón­ar­miðum sem lýst var í upp­hafi þessa kafla né þeim laga­reglum sem eft­ir­lit umboðs­manns Alþingis bygg­ist á að ráð­herra eða lög­maður á hans vegum hafi beint sam­band við þann opin­bera starfs­mann sem veitt hefur umboðs­manni upp­lýs­ingar og krefji hann skýr­inga á því sem hann hefur greint umboðs­manni frá. Eftir að umboðs­maður hefur tekið málið til skoð­unar, eins og í þessu máli, eiga sam­skipti vegna þess að fara fram milli umboðs­manns og stjórn­valds­ins, í þessu til­viki inn­an­rík­is­ráð­herra.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Lekamálið

FréttirLekamálið

Umboðs­maður Alþingis: Borgarar verða að geta treyst því að stjórn­mála­menn skipti sér ekki af lög­reglu­rann­sóknum

„Ég tel nauð­syn­legt sem umboðs­maður Alþingis að vera á varð­bergi um að slík þróun verði ekki í íslenskri stjórn­sýslu,“ segir umboðs­maður í umfjöllun sinni um hátt­semi Hönnu Birnu Krist­jáns­dóttur í árs­skýrslu fyrir 2015. Afskipti ráð­herra af störfum lög­regl­unnar drógu dilk á eftir sér.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár