Hanna Birna neitaði að upplýsa umboðsmann um hverjir veittu henni lögfræðilega ráðgjöf

Umboðs­maður Alþingis hefur enn hvorki fengið gögn né upp­lýs­ingar um þá lög­fræði­legu ráð­gjöf sem Hanna Birna Krist­jáns­dóttir, fyrr­ver­andi inn­an­rík­is­ráð­herra, kvaðst sjálf hafa fengið innan ráðu­neyt­is­ins um hvernig haga skyldi sam­skiptum við lög­regl­una á meðan rann­sókn leka­máls­ins stóð yfir. Þetta kemur fram í áliti umboðs­manns varð­andi frum­kvæð­is­at­hugun hans á sam­skiptum Hönnu Birnu og Stefáns Eiríks­sonar, fyrr­ver­andi lög­reglu­stjóra höf­uð­borg­ar­svæð­is­ins, við rann­sókn leka­máls­ins.

Í álit­inu segir: „Í bréfum inn­an­rík­is­ráð­herra til mín hefur ráð­herra vísað til lög­fræði­legrar ráð­gjafar sem ráð­herra hafi fengið innan sem utan ráðu­neyt­is­ins um sam­skipti sín við lög­reglu­stjór­ann í tengslum við umrædda rann­sókn. Ég tek fram strax í upp­hafi að það leiðir af lögum um umboðs­mann Alþingis að eft­ir­lit umboðs­manns lýtur aðeins að þeirri ráð­gjöf sem ráð­herrar fá innan stjórn­sýsl­unnar. Í bréfum mínum og á fundum með inn­an­rík­is­ráð­herra hef ég óskað eftir upp­lýs­ingum frá ráð­herra um þessa lög­fræði­legu ráð­gjöf sem hann kveðst hafi fengið í inn­an­rík­is­ráðu­neyt­inu. Ég hef þar haft í huga ann­ars vegar að á ráð­herra hvílir lögum sam­kvæmt skylda til að leita ráð­gjafar og hins vegar að það heyrir undir eft­ir­lit umboðs­manns að ráð­gjöf opin­berra starfs­manna til ráð­herra sé rétt og í sam­ræmi við lög.“

Eins og kunn­ugt er hefur Jón Steinar Gunn­laugs­son, fyrr­ver­andi hæsta­rétt­ar­dóm­ari, upp­lýst að hann hafi veitt Hönnu Birnu lög­fræði­lega ráð­gjöf vegna leka­máls­ins. Jón Steinar stað­festi þetta með yfir­lýs­ingu í lok ágúst.

Sá ekki ástæðu til að svara spurningu umboðsmanns


Umboðs­maður óskaði sér­stak­lega eftir nán­ari skýr­ingum á lög­fræði­legu ráð­gjöf­inni með bréfi 25. ágúst síð­ast­lið­inn, sem og hvaða starfs­menn ráðu­neyt­is­ins hefðu veitt hana. Í svari ráð­herra við fyr­is­p­urn­inni sá hún ekki ástæðu til að nefna nöfn þeirra sem veittu henni lög­fræði­lega ráð­gjöf, „...enda er ábyrgðin mín sem ráð­herra.“

Í ljósi skýr­inga Hönnu Birnu bað umboðs­maður Ragn­hildur Hjalta­dóttur ráðu­neyt­is­stjóra inn­an­rík­is­ráðu­neyt­is­ins um að gera grein fyrir lög­fræði­legri ráð­gjöf sem ráð­herra hefði fengið vegna máls­ins. Ragn­hildur sagð­ist ekki geta svarað því, en tók fram að hún hefði rætt við ráð­herra við upp­haf máls­ins áður en rík­is­sak­sókn­ari sendi það til lög­regl­unnar. „Ráðu­neyt­is­stjór­inn kveðst hins vegar ekki hafa vit­neskju um hverjir innan ráðu­neyt­is­ins hefðu veitt lög­fræði­lega ráð­gjöf ef ráð­gjöfin hafi lotið að því að sam­skipti, eins og þeim væri lýst í bréfi mínu til ráð­herra 25. ágúst 2014, væru heimil. Ráðu­neyt­is­stjór­inn seg­ist ekki hafa vitað af því að sam­skipti ráð­herra og lög­reglu­stjór­ans hefðu verið með þeim hætti sem haft var eftir lög­reglu­stjór­anum í bréfi mínu. Það hefði fyrst verið þegar bréf mitt barst ráðu­neyt­inu.“

Óskaði ítrekað eftir upplýsingum á fundi með ráðherra


Þá segir í áliti umboðs­manns að hann hafi ítrekað óskað eftir upp­lýs­ingum um hverjir hafi veitt unn­an­rík­is­ráð­herra þá ráð­gjöf sem hún vís­aði til á fundi með Hönnu Birnu þann 3. des­em­ber síð­ast­lið­inn. „Ráðherra ítrek­aði þau sjón­ar­mið sem fram höfðu komið í bréfum til mín og kvaðst „enga nákvæma ráð­gjöf [hafa fengið] um það með hvaða hætti nákvæm­lega þau sam­skipti skyldu vera.“ Ráðherra minnti líka á að á þessum tíma hefði hún litið svo á að lög­reglu­stjór­inn færi ekki með stjórn rann­sókn­ar­innar og sam­skiptin hefðu því farið fram í því ljósi. Um vit­neskju ráðu­neyt­is­stjór­ans um sam­skiptin sagði ráð­herra að ráðu­neyt­is­stjór­inn hefði vitað að hann ræddi við lög­reglu­stjór­ann en þar sem þetta hefði verið tveggja manna tal hefði henni örugg­lega ekki verið kunn­ugt um hvernig þau sam­skipti voru.

Ég hef ekki fengið frek­ari gögn eða upp­lýs­ingar um þá lög­fræði­legu ráð­gjöf sem ráð­herra kveðst hafa fengið innan ráðu­neyt­is­ins um hvernig haga bæri sam­skiptum við lög­regl­una meðan rann­sókn máls­ins stóð yfir.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Lekamálið

FréttirLekamálið

Umboðs­maður Alþingis: Borgarar verða að geta treyst því að stjórn­mála­menn skipti sér ekki af lög­reglu­rann­sóknum

„Ég tel nauð­syn­legt sem umboðs­maður Alþingis að vera á varð­bergi um að slík þróun verði ekki í íslenskri stjórn­sýslu,“ segir umboðs­maður í umfjöllun sinni um hátt­semi Hönnu Birnu Krist­jáns­dóttur í árs­skýrslu fyrir 2015. Afskipti ráð­herra af störfum lög­regl­unnar drógu dilk á eftir sér.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár