Umboðsmaður: Hanna Birna gafst upp eftir að hún sagði af sér

Í áliti umboðs­manns Alþingis, varð­andi frum­kvæð­is­at­hugun hans á sam­skiptum Hönnu Birnu Krist­jáns­dóttur, fyrr­ver­andi inn­an­rík­is­ráð­herra, og Stefáns Eiríks­sonar, fyrr­ver­andi lög­reglu­stjóri á höf­uð­borg­ar­svæð­inu, má lesa hvernig afstaða ráð­herra til athug­unar umboðs­manns breytt­ist er málið vatt upp á sig.

Þar segir: „Þegar ég hóf frum­kvæð­is­at­hugun mína hafði ég með tveimur bréfum til inn­an­rík­is­ráð­herra freistað þess að fá fram afstöðu ráð­herra til þess hvað raun­veru­lega hafði farið fram í sam­skiptum ráð­herra við lög­reglu­stjór­ann en án árang­urs miðað við þær upp­lýs­ingar sem ég hafði aflað hjá lög­reglu­stjór­anum. Það atriði og sú afstaða ráð­herra sem ég taldi mig ráða af svar­bréf­unum tveimur til þess hversu alvar­legt málið væri með til­liti til þeirra laga­reglna sem reyndi á varð mér til­efni til þess að taka fram að það kæmi til greina að fara þá leið sem kveðið er á um í 2. mgr. 12. gr. laga nr. 85/1997.“

Í laga­á­kvæð­inu sem umboðs­maður nefnir, er kveðið á um að emb­ættið geti, verði það áskynja stór­vægi­legra mis­taka eða afbrota stjórn­valds, gefið Alþingi eða hlut­að­eig­andi ráð­herra sér­staka skýrslu um málið.

Umboðs­maður segir að afstaða Hönnu Birnu til athug­unar hans hafi breyst eftir að hún sagði af sér sem inn­an­rík­is­ráð­herra. „Eftir það hefur hann lýst því í bréfi til mín 8. jan­úar 2015 að það hafi verið mis­tök af hans hálfu að eiga sam­skipti við lög­reglu­stjór­ann vegna lög­reglu­rann­sókn­ar­innar meðan hún stóð yfir. Í sama bréfi kemur einnig fram breytt afstaða til þess hvert hafi verið efni sam­skipt­anna við lög­reglu­stjór­ann og til laga­reglna sem reynir á í mál­inu frá því sem komið hafði fram í fyrri svörum ráð­herra og skýr­ingum.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Lekamálið

FréttirLekamálið

Umboðs­maður Alþingis: Borgarar verða að geta treyst því að stjórn­mála­menn skipti sér ekki af lög­reglu­rann­sóknum

„Ég tel nauð­syn­legt sem umboðs­maður Alþingis að vera á varð­bergi um að slík þróun verði ekki í íslenskri stjórn­sýslu,“ segir umboðs­maður í umfjöllun sinni um hátt­semi Hönnu Birnu Krist­jáns­dóttur í árs­skýrslu fyrir 2015. Afskipti ráð­herra af störfum lög­regl­unnar drógu dilk á eftir sér.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár