Hanna Birna krafði Stefán um skýringar á því sem hann sagði umboðsmanni

Í nið­ur­stöðu umboðs­manns Alþingis kemur fram að Hanna Birna Krist­jáns­dóttir, fyrr­ver­andi inn­an­rík­is­ráð­herra, eða lög­maður á hennar vegum hafi krafið Stefán Eiríks­son, fyrr­ver­andi lög­reglu­stjóra á höf­uð­borg­ar­svæð­inu, um skýr­ingar á því sem hann greindi umboðs­manni Alþingis frá við frum­kvæð­is­at­hugun á sam­skiptum þeirra.

Í nið­ur­stöð­unni segir: „Ég tel að það geti hvorki sam­rýmst sjón­ar­miðum um gagn­sæja stjórn­sýslu né laga­reglum sem eft­ir­lit umboðs­manns Alþingis bygg­ist á að ráð­herra eða lög­maður á hans vegum hafi beint sam­band við þann opin­bera starfs­mann sem veitt hefur umboðs­manni upp­lýs­ingar og krefji hann skýr­ingar á því sem hann hefur greint umboðs­manni frá. Eftir að umboðs­maður hefur tekið mál til skoð­unar eiga sam­skiptin að fara fram milli umboðs­manns og stjórn­valds­ins. Ég vænti þess að umfjöllun mín verði stjórn­völdum almennt í fram­tíð­inni til­efni til að gæta að þessum atriðum í störfum sínum.“

Í sam­tali við Kjarnann sagði Stefán Eiríks­son, fyrr­ver­andi lög­reglu­stjóri á höf­uð­borg­ar­svæð­inu að hann muni ekki tjá sig frekar um rann­sókn leka­máls­ins.

Fór á svig við lög um Stjórnarráð Íslands


Þá segir í nið­ur­stöðu umboðs­manns að Hanna Birna hafi ekki sýnt fram á að hún hafi fylgt lögum um Stjórn­ar­ráð Íslands, í fram­göngu sinni við rann­sókn leka­máls­ins, nánar til­tekið 20. grein lag­anna þar sem segir að ráð­herra skuli leita álits ráðu­neytis til að tryggja að ákvarð­anir og athafnir hans séu lögum sam­kvæmt. „Ég beini þeim til­mælum til þess ráð­herra sem nú fer með inn­an­rík­is­ráðu­neytið að gætt verði að þessu atriði í starfi ráðu­neyt­is­ins fram­vegis.“

Umboðs­maður Alþingis hefur komið ábend­ingum á fram­færi við Sigmund Davíð Gunn­laugs­son for­sæt­is­ráð­herra, um fram­kvæmd og grund­völl siða­reglna fyrir ráð­herra, reglur um skrán­ingu form­legra sam­skipta og funda og hlut­verk og stöðu aðstoð­ar­manna ráð­herra. „Þær lúta einkum að því að þörf sé á að kanna betur almenna fram­kvæmd þess­ara reglna og eftir atvikum hvort þær megi gera skýr­ari.“

Þá segir umboðs­maður: „Með vísan til þess eft­ir­lits­hlut­verks sem umboðs­manni Alþingis er falið með stjórn­sýsl­unni legg ég ríka áherslu á að afskipti ráð­herra sem fór með yfir­stjórn lög­regl­unnar af lög­reglu­rann­sókn saka­máls, sem tengd­ist honum sjálfum á til­tek­inn hátt og sú fram­ganga sem lög­reglu­stjór­inn lýsir, eru ekki aðeins and­stæð þeim reglum sem fjallað er um í álit­inu heldur eru þau einnig til þess fallin að gera þeim sem rann­saka saka­mál óhægt um vik að rækja það starf sitt í sam­ræmi við gild­andi reglur. Þær reglur miða að því að með saka­mála­rann­sókn sé hið sanna og rétta leitt í ljós og m.a. lagður grund­völlur að ákvörðun hand­hafa ákæru­valds um sak­sókn, sbr. 53. gr. laga nr. 88/2008, um með­ferð saka­mála. Þá eru slík afskipti almennt til þess fallin að skapa tor­tryggni um aðkomu ráð­herra að lög­reglu­rann­sóknum, óháð því hvort það hafi orðið reyndin í þessu til­tekna máli.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Lekamálið

FréttirLekamálið

Umboðs­maður Alþingis: Borgarar verða að geta treyst því að stjórn­mála­menn skipti sér ekki af lög­reglu­rann­sóknum

„Ég tel nauð­syn­legt sem umboðs­maður Alþingis að vera á varð­bergi um að slík þróun verði ekki í íslenskri stjórn­sýslu,“ segir umboðs­maður í umfjöllun sinni um hátt­semi Hönnu Birnu Krist­jáns­dóttur í árs­skýrslu fyrir 2015. Afskipti ráð­herra af störfum lög­regl­unnar drógu dilk á eftir sér.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár