Umboðsmaður: Hanna Birna hafði ítrekuð og mikil afskipti af rannsókn lekamálsins

Umboðs­maður Alþingis hefur birt nið­ur­stöðu frum­kvæð­is­at­hug­unar sinnar á sam­skiptum Hönnu Birnu Krist­jáns­dóttur, fyrr­ver­andi inn­an­rík­is­ráð­herra, og Stefáns Eiríks­sonar, fyrr­ver­andi lög­reglu­stjóra á höf­uð­borg­ar­svæð­inu, vegna rann­sóknar leka­máls­ins svo­kall­aða. Þar segir hann að ráð­herra hafi gengið langt út fyrir vald­svið sitt.

Í nið­ur­stöðukafla álits­ins segir: „Að framan hef ég lýst því áliti mínu að fyrr­ver­andi inn­an­rík­is­ráð­herra hafi sett fram við lög­reglu­stjór­ann athuga­semdir og gagn­rýni á rann­sókn saka­máls sem voru veru­lega umfram það sem gat sam­rýmst því að um væri að ræða efn­is­legar fyr­ir­spurnir til að greiða fyrir rann­sókn máls­ins eða með­ferð gagna frá ráðu­neyt­inu. Af efni sam­skipt­anna, sam­kvæmt lýs­ingu lög­reglu­stjóra, tel ég ljóst að þau hafi falið í sér ítrek­aða gagn­rýni og beinar athuga­semdir ráð­herra við það hvernig emb­ætti lög­reglu­stjór­ans stóð að rann­sókn­inni, vinnu­brögð lög­regl­unnar og ein­stakar rann­sókn­ar­at­hafnir. Ég lít svo á að þarna hafi verið um að ræða harða gagn­rýni ráð­herra á ákvarð­anir og störf lög­regl­unnar í þessu máli. Í sam­ræmi við fram­an­greint er það nið­ur­staða mín að efni sam­skipta inn­an­rík­is­ráð­herra við lög­reglu­stjór­ann á höf­uð­borg­ar­svæð­inu hafi ekki sam­rýmst þeim reglum sem ráð­herra bar að virða um sjálf­stæði og hlut­lægni lög­regl­unnar. Sam­skiptin voru því ósam­rým­an­leg stöðu ráð­herra sem yfir­stjórn­anda lög­regl­unnar. Þá tel ég að tengsl ráð­herra og hags­munir af fram­vindu rann­sóknar saka­máls­ins hafi verið slíkir að sam­skiptin, miðað við efni þeirra, hafi farið í bága við hina óskráðu meg­in­reglu um sér­stakt hæfi í stjórn­sýsl­unni. Í sam­ræmi við fram­an­greindar nið­ur­stöður get ég ekki fall­ist á að það sem kemur fram í bréfi fyrr­ver­andi inn­an­rík­is­ráð­herra til mín, dags. 8. jan­úar 2015, um að orðin „fylli­lega“ og „nægi­lega“ eigi hér við. Þeim reglum sem um ræðir var ein­fald­lega ekki fylgt.“

Hanna Birna hefur beðist afsökunar á framgöngu sinni


Þá segir umboðs­maður að ráð­herra hafi ekki gætt nægi­lega að því að virða þá stöðu sem lög­reglu­stjór­inn var í og þau við­mið um hátt­semi sem ráð­herra beri að fylgja í sam­skiptum við for­stöðu­mann und­ir­stofn­unar. Þá kemur fram í nið­ur­stöðu umboðs­manns að Hanna Birna hafi beðist afsök­unar á sam­skiptum sínum við Stefán og fram­göngu sinni í þeim.

Svo segir umboðs­maður: „Þá er það nið­ur­staða mín að sam­skipti aðstoð­ar­manna ráð­herra, sem höfðu á þeim tíma rétt­ar­stöðu sak­born­ings, við lög­reglu­stjór­ann þar sem þeir ósk­uðu eftir að hann brygð­ist við til­tek­inni frétt hafi ekki verið í sam­ræmi við hina óskráðu hæf­is­reglu stjórn­sýslu­rétt­ar­ins.“ Er þarna átt við Gísla Frey Val­dórs­son, sem hlaut nýverið skil­orðs­bund­inn dóm fyrir aðild sína að leka­mál­inu, og Þóreyju Vil­hjálms­dóttur sem stefndi tveimur blaða­mönnum DV vegna umfjöll­unar þeirra um leka­málið.

Fór á svig við lög um Stjórnarráð Íslands


Umboðs­maður segir að inn­an­rík­is­ráð­herra hafi gerst brot­legur við lög með fram­ferði sínu. „Á grund­velli þeirra upp­lýs­inga sem ég hef aflað hefur inn­an­rík­is­ráð­herra ekki sýnt fram á að hann hafi fylgt 20. gr. laga nr. 115/2011, um Stjórn­ar­ráð Íslands, þar sem kveðið er á um skyldu ráð­herra til að leita sér ráð­gjafar. Ég beini þeim til­mælum til þess ráð­herra sem nú fer með inn­an­rík­is­ráðu­neytið að gætt verði að þessu atriði í starfi ráðu­neyt­is­ins fram­vegis.“

„Með vísan til þess eft­ir­lits­hlut­verks sem umboðs­manni Alþingis er falið með stjórn­sýsl­unni legg ég ríka áherslu á að afskipti ráð­herra sem fór með yfir­stjórn lög­regl­unnar af lög­reglu­rann­sókn saka­máls, sem tengd­ist honum sjálfum á til­tek­inn hátt og sú fram­ganga sem lög­reglu­stjór­inn lýsir, eru ekki aðeins and­stæð þeim reglum sem fjallað er um í álit­inu heldur eru þau einnig til þess fallin að gera þeim sem rann­saka saka­mál óhægt um vik að rækja það starf sitt í sam­ræmi við gild­andi reglur.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Lekamálið

FréttirLekamálið

Umboðs­maður Alþingis: Borgarar verða að geta treyst því að stjórn­mála­menn skipti sér ekki af lög­reglu­rann­sóknum

„Ég tel nauð­syn­legt sem umboðs­maður Alþingis að vera á varð­bergi um að slík þróun verði ekki í íslenskri stjórn­sýslu,“ segir umboðs­maður í umfjöllun sinni um hátt­semi Hönnu Birnu Krist­jáns­dóttur í árs­skýrslu fyrir 2015. Afskipti ráð­herra af störfum lög­regl­unnar drógu dilk á eftir sér.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár