Búist við niðurstöðu umboðsmanns Alþingis í lekamálinu í fyrramálið

Stjórn­skip­unar- og eft­ir­lits­nefnd Alþingis reiknar með að umboðs­maður Alþingis birti nið­ur­stöðu frum­kvæð­is­at­hug­unar emb­ætt­is­ins á sam­skiptum Hönnu Birnu Krist­jáns­dóttur, fyrr­ver­andi inn­an­rík­is­ráð­herra, og Stefáns Eiríks­sonar, fyrr­ver­andi lög­reglu­stjóra höf­uð­borg­ar­svæð­is­ins, í fyrra­málið.

Fundur hefur verið boð­aður hjá nefnd­inni klukkan átta í fyrra­málið, en hann er ekki aug­lýstur inn á vef Alþingis. Samkvæmt heim­ildum Kjarnans stóð jafn­vel til að kalla stjórn­skip­unar- og eft­ir­lits­nefnd­ina saman til fundar í kvöld, en af því varð ekki.

Heim­ildir Kjarnans herma að á fund­inum í fyrra­málið verði ann­ars vegar nið­ur­staða umboðs­manns rædd og hins vegar ákveðið með annan fund síðar um dag­inn. Sá fundur verður mögu­lega hald­inn fyrir hádegi, þar sem Hönnu Birnu verður boðið á nefnd­ar­fund­inn til að bregð­ast við nið­ur­stöðu umboðs­manns. Sterk­lega kemur til greina að síð­ari fund­ur­inn verði opinn fjöl­miðlum, að því er heim­ildir Kjarnans herma, en ein­ungis þrír nefnd­ar­menn þurfa að sam­ein­ast um til­lögu þess efnis svo hún nái fram að ganga.

Sá fundur verður aug­lýstur á vef Alþingis.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Lekamálið

FréttirLekamálið

Umboðs­maður Alþingis: Borgarar verða að geta treyst því að stjórn­mála­menn skipti sér ekki af lög­reglu­rann­sóknum

„Ég tel nauð­syn­legt sem umboðs­maður Alþingis að vera á varð­bergi um að slík þróun verði ekki í íslenskri stjórn­sýslu,“ segir umboðs­maður í umfjöllun sinni um hátt­semi Hönnu Birnu Krist­jáns­dóttur í árs­skýrslu fyrir 2015. Afskipti ráð­herra af störfum lög­regl­unnar drógu dilk á eftir sér.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár