Hagfræðidoktor og Ingólfur Arnarson útskýra hagfræði

„Bóka­skil­grein­ingin er sú að hag­fræði er félags­vís­indi sem fjalla um hvernig ein­stak­lingar, fyr­ir­tæki og þjóðir skipta með sér gæðum sem eru af skornum skammti. En meira skýr­andi væri að segja að hag­fræði er grein sem notar vís­inda­legar aðferðir til þess að sjá hvernig ákvarð­anir eru teknar,“ sagði Sigríður Bene­dikts­dóttir í síð­asta þætti af Ferð til fjár, þegar hún var beðin um að útskýra hag­fræði. Sigríður er doktor í hag­fræði frá Yale-háskóla í Banda­ríkj­unum og var þar kenn­ari áður en hún tók við starfi fram­kvæmda­stjóra stöð­ug­leika­sviðs hjá Seðla­banka Íslands.

Þeir Breki Karlsson og Helgi Seljan, umsjón­ar­menn þátt­ar­ins, leit­uðu til Ingólfs Arn­ar­sonar og konu hans Hall­veigar Fróða­dóttur til þess að skýra hag­fræð­inga enn frekar.

[caption id="attachment_17310" align="alignnone" width="1920"] Ingólfur Arnarson og Hallveig Fróða­dóttir standa frammi fyrir mik­il­vægri spurn­ingu: Hversu miklum tíma eiga þau að eyða í berja­tínslu?[/caption]

Ingólfur og Hallveig eru ósam­mála um hversu miklum tíma þau eiga að eyða dag­lega í að tína ber, upp­á­halds fæðu sína og lífs­við­ur­væri. Til þess að eiga nóg af berjum þurfa þau að tína ber í fjórar klukku­stundir á dag, en Ingólfur vill bæta klukku­stund við vinnu­dag­inn. Fram til þessa hafa þau tínt 1.000 ber á fjórum klukku­stundum hvern dag. Það er nokkuð skyn­sam­legt af Ingólfi að fjölga vinnu­stundum, hjónin gætu þá átt birgðir af berjum ef eitt­hvað kemur upp á eða tekið sér frí á sunnu­dögum.

En hjónin elska að prjóna og að lengja vinnu­dag­inn myndi að sjálf­sögðu koma niður á prjóna­iðj­unni. Hallveig er hreint ekki viss hvort það sé þessi virði.

[caption id="attachment_17311" align="alignnone" width="1440"] Ingólfur skýrir fyrir eig­in­konu sinni hvers vegna þau ættu að tína ber klukku­stund lengur á hverjum degi.[/caption]

Ingólfur teiknar upp ein­falt graf fyrir konu sína. Lárétti ásinn sýnir tíma og lóð­rétti ásinn sýnir þann fjölda berja sem hjónin geta tínt. Því fleiri klukku­stundum sem þau eyða í berja­tínslu, því meira tína þau. En Ingólfur skýrir að eftir fimm klukku­stunda tínslu þá hægi veru­lega á hversu miklu þau afkasta. Því sé best að hætta þá og prjóna í stað­inn.

Ingólfur hefur þarna kom­ist að því að afköst og vinnu­stundir hald­ast ekki endi­lega í hendur. Sá sem vinnur lengst, hann afkastar ekki endi­lega mest. Að fimm klukku­stundum liðnum er tími til kom­inn að enda vinnu­dag­inn, þegar dregur veru­lega úr afköstum.

Með ein­földum hætti má segja að „prjóna­tím­inn“ eftir fjög­urra klukku­stunda tínslu kosti hjónin 250 ber. Það er að segja, ef þau væru ekki að prjóna, þá gætu þau tínt 250 ber til við­bótar við þau 1000 sem þau tíndu á fyrstu fjórum klukku­stund­unum. En ef þau prjóna að lok­inni fimm klukku­stunda tínslu þá kostar sá prjóna­tími minna í berjum talið, þar sem þau hefðu hvort sem er tínt mun færri ber vegna þreytu.

Þau Sigríður og Ingólfur skýrðu með þessum hætti grunn­hug­mynd hag­fræð­innar. Fyrir áhuga­sama er þetta svar Gylfa Magn­ús­sonar, dós­ent við Háskóla Íslands á Vís­inda­vefnum hnit­miðað og fróð­legt, auk þess sem bókin Hagfræði í hnot­skurn skýrir fræði­grein­ina með grein­ar­góðum hætti.

Kjarninn og Stofnun um fjár­mála­læsi hafa tekið höndum saman og munu fjalla ítar­lega um heim­il­is­fjár­mál sam­hliða þátt­unum Ferð til fjár, sem sýndir verða á RÚV næstu vikur. Mark­miðið: Að stuðla að betra fjár­mála­læsi hjá lands­mönnum! Fyrsti þátt­ur­inn var á dag­skrá fimmtu­dag­inn 15. jan­úar. Fylgstu með á Facebook-síðu Ferð til fjár.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Ferð til fjár

SkýringFerð til fjár

Fjögur gröf sem útskýra fast­eigna­mark­að­inn

Í nýjasta riti Fjár­mála­stöð­ug­leika, árs­fjórð­ungs­legri skýrslu Seðla­banka Íslands, er nokkuð fjallað um þróun fast­eigna­verðs og þær hækk­anir sem orðið hafa á íbúða­verði að und­an­förnu. Þróunin á Íslandi er meðal ann­ars borin saman við önnur lönd en í skýrsl­unni segir að ekki séu merki um bólu­myndun á fast­eigna­mark­aðnum í heild. Engu að síður sé fast­eigna­verð orðið hátt á flesta mæli­kvarða í...
FréttirFerð til fjár

Vænt­ingar dvína í skugga kjara­við­ræðna

Vænt­inga­vísi­tala Gallups lækk­aði um 17 stig í apr­íl­mán­uði og mælist nú 84,3 stig. Lækkunin er sú mesta á vísi­töl­unni milli mán­aða í tæp tvö ár. Vísi­talan fór yfir 100 stig í mars síð­ast­liðnum en vísi­talan er mæld á bil­inu 0 til 200 stigug, þar sem gildið 100 þýðir að jafn­margir aðspurðra neyt­enda eru bjart­sýnir og svart­sýnir á stöðu og horfir...
FréttirFerð til fjár

Per­sónu­af­slátt­ur­inn er 610.825 krónur í ár

Per­sónu­af­sláttur ein­stak­linga er 610.825 krónur fyrir árið 2015 eða 50.902 krónur að með­al­tali á mán­uði. Það er hækkun um 4.848 krónur frá árinu 2014, eða um 404 krónur á mán­uði. Hækkunin nemur 0,8% en hún er lögum sam­kvæmt í takt við verð­bólgu­þróun. Fjallað er um per­sónu­af­slátt, stað­greiðslu og trygg­inga­gjald árs­ins 2015 í grein í Tíund, frétta­blaði Rík­is­skatt­stjóra. Fram kemur að...
FréttirFerð til fjár

Verð­bólgan étur kaup­mátt­inn

Hækkun verð­lags í mars­mán­uði varð til þess að kaup­máttur launa dróst saman um 0,8 pró­sent. Kaup­máttur launa, eins og hann mælist sam­kvæmt vísi­tölu Hag­stof­unnar, hafði hækkað nán­ast stans­laust í tólf mán­uði en dróst núna saman. Árs­hækkun kaup­máttar launa mælist engu að síður um 4 pró­sent, en árs­hækkun mæld­ist 5,6 pró­sent í febr­úar. Hag­stofan birti í dag upp­færða vísi­tölu launa í...
FréttirFerð til fjár

Íslend­ingar eru sam­vinnu­þýð­ari en aðrir

Íslenskir stúd­entar eru sam­vinnu­þýð­ari en banda­rískir stúd­entar og leggja sig harðar fram við að halda hópa­vinnu gang­andi. Ýmsir félags­þættir benda til að Íslend­ingar sam­svari sig almennt betur í hópi fólks og séu það sem kallað er á ensku group minded á kostnað ein­stak­lings­hyggju. [caption id="attachment_26395" align="alignleft" width="139"] Dr. Anna Gunn­þórs­dóttir.[/caption]Þetta sýna nið­ur­stöður rann­sóknar sem Dr. Anna Gunn­þórs­dóttir hefur unnið að...
SkýringFerð til fjár

Deilt um sam­band launa­hækk­ana og verð­bólgu

Kröfur margra stétt­ar­fé­laga í yfir­stand­andi kjara­deilum á vinnu­mark­aði hljóða upp á veru­lega hækkun launa­taxta og dæmi eru um að kröfur hljóði upp á um 20 pró­sent hækkun lægstu launa. Staðan sem uppi er á vinnu­mark­aði hefur að mati pen­inga­stefnu­nefndar Seðla­bank­ans verið ein helsta ástæða fyrir því að halda stýri­vöxtum óbreyttum und­an­farna mán­uði, þrátt fyrir lága verð­bólgu sem er undir 2,5...

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár